Wednesday, January 7, 2009

Æfing í kvöld

Sælir piltar og gleðilegt ár. Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Reynum að láta sem flesta vita svo það verði almennileg mæting. Ég mæti og Elli líka. Annars hef ég ekkert heyrt meira með bikarkeppnina en við eigum leik næsta miðvikudag við Heimsliðið í Mýrinni. Þannig að við verðum að mæta vel í dag og á morgun. Ég legg svo til að menn breyti um siði á nýju ári og fari að mæta tímanlega.

14 comments:

Anonymous said...

Gleðilegt ár!
Ég er ekki alveg klár hvort ég mæti eða ekki en ég lét allavega nokkur Lukkutröll vita af æfingunni og þeir ætluðu kannski að láta sjá sig, en þeir hafa líka sagt það áður.
kv.
Eiki

Anonymous said...

sælir drengir og gleðilegt ár.

ég ákvað í tilefni á nýja árinu að hafa samband við Geira Hall varðandi það að fá tíma á mánudögum, sem ég tel vera lykilinn að einhverri mætingu hjá okkur.

hann tók vel í það og er að athuga málið og ætlar að láta okkur vita um leið og það er útséð.

annars kemst ég ekkert á miðvikudögum og sjáumst á morgun

kv

Gaui

Anonymous said...

siggi mætir

Anonymous said...

Geiri vildi líka láta okkur vita af því að þó það sé leikur hjá mfl kvenna 21 jan að þá fellur ekkert niður æfingin þá hjá okkur, verður bara á hálfan sal spilað þá

kv Gaui

Anonymous said...

kemst ekki í kvöld.

kv. Haukur

Daniel said...

Gleðilegt ár
Stefni á að mæta í kvöld

Hermann Fannar said...

Ég mæti og Raggi líka...

Anonymous said...

gleðilegt ár
það er svona 80% líkur á mér.
Reyni eins og ég get.
kv. Arnar

Anonymous said...

Ég mæti loksins aftur.

kv Fúsmann

Anonymous said...

sælir

það eru um 83,742% á að ég mæti í kvöld.

annars langar mig bara að segja að þið eruð frábærir strákar og ég hef hugsað afar hlýtt til ykkar síðustu vikur.

Knús og kossar
Jói Skagfjörð

Anonymous said...

Stefni á mætingu..

Kv.
GRS

Anonymous said...

jói við elskum þig líka

Anonymous said...

komst ekki sorry
kv. Arnar

Beggi said...

komst ekki í gær