Wednesday, December 19, 2007

Æfing í kvöld


Á mánudag var frábær æfing, mæting fín og mikil harka. Eru menn ekki almennt að fara að mæta í kvöld ?

Meðfylgjandi er mögnuð liðsmynd sem tekin var í stórsigri okkar á HR.

Monday, December 17, 2007

Stórsigur og æfing

Já það var heldur betur kátt í "Höllinni" á föstudagskvöld. Þá komu HR í heimsókn og skíttöpuðu á móti b-liði Fimleikafélagsins. Við sumsé sigruðum með 40 mörkum gegn 17 mörkum gestana. Skýrslan væntanleg inn í kvöld. Það má heldur ekki gleyma stórtíðindum vetrarins, en FH-b spilaði í nýjum búningum sem þóttu prýða hvern kropp dásamlega.

En eru menn ekki að stefna á að mæta á æfingu í kvöld?

Friday, December 14, 2007

Leikurinn í kvöld

Það er greinilegt að guðirnir eru að gefa okkur auka kraft með því að blása all duglega á landsmenn og brjóta þannig mótherja okkar niður. Það er ekkert annað en sigur sem kemur til greina í kvöld!

Nokkrir fastamenn mæta ekki en við hinir ættum að vera færir um að loka þessu máli.

Hvernig er með dómgæslu, Beggi varstu búnn að heyra eða Óli?

Það sem stendur uppúr fyrir þennan leik, eru klárlega nýju búningarnir.

Látið vita með dómaramál sem fyrst svo við þurfum ekki að standa í sömu leiðindunum alltaf.

Wednesday, December 12, 2007

Æfing í kvöld, leikur á föstudag!

Reynum að ná góðri mætingu í kvöld, skelfileg mæting á mánudag sem má ekki endurtaka sig. Við verðum að rífa okkur upp af rassgatinu og vinna HR gleðismellina á föstudag. Dómaramál eru mönnum ofarlega í huga enda á eftir að redda því eins og venjulega, ég talaði við Egil bróður hans Svenna en hann er því miður ekki laus. Óli þú ræðir við þína menn og reynum aftur Nóra.

Annars þá áttu búningarnir að koma úr merkingu í dag, en það náðist ekki þannig að morgundagurinn er stóri dagurinn.

Sjáumst í kvöld!

Monday, December 10, 2007

FH vs HK

Fyrsta tapið á tímabilinu staðreynd í döprum leik af okkur hálfu. Flestir voru að spila illa. Vörnin var mjög slök og markvarslan eftir því. Þó voru nokkrir góðir kaflar en ansi stuttir. Sóknarlega vorum við þokkalegir en vantaði að slútta betur og smá skynsemi og þolinmæði. HK var að spila fast eins og við mátti búast og fór það í skapið á Adda sem lét finna fyrir sér og passaði vel uppá að hafa höggið vel sýnilegt fyrir alla Hafnfirðinga og nærsveitunga. Óli átti nokkrar góðar slummur en nokkur illa ígrunduð skot að auki. Hemmi var öflugur í fyrri hálfleik en sást ekki í þeim seinni. Annars voru eins og áður segir flest allir að spila illa og um að gera að girða sig í brók fyrir næsta leik á föstudaginn. Ég legg til að menn (og ég þar á meðal) mæti tímanlega á æfingar og við förum að taka almennilega á því á æfingum. Einnig verðum við að hafa gaman að því sem við erum að gera og mæta með brosið bæði á æfingar og í leiki. Annars er tölfræðin svona en hún er kannski ekki alveg 100% þar sem maður gleymdi sér aðeins vegna spennu í leiknum.

Raggi: 11 varin, 3 tapaðir boltar og 1 unninn bolti.
Fúsi: 2 varin.
Hemmi: 1/2, 1 stoðsending, tvö varin skot og 1 fiskað víti.
Höddi: 2/6, 2 stoðsendingar, 1 tapaður bolti, 1 fiskað víti.
Addi: 2/3, Rautt spjald.
Eiki: 2/2, 1 tapaður bolti.
Jói: 3/6.
Beggi: 1/4, 2 tapaðir boltar.
Óli: 10/17, 1 stoðsending, 1 tapaður bolti, 1 unninn bolti, 2 varin skot.
GAtli: 2/4, 2 tapaðir boltar.
Peter: 1/2, 1 unninn bolti.
Siggi: 7/11, 1 stoðsending, 3 tapaðir boltar, 2 unnir boltar.
Hilmar og Toby mættu en spiluðu ekki. Gauarnir stóðu sig með stakri prýði í dómgæslunni og fá þakkir fyrir að fórna sér fyrir liðið.

Vonast til að sjá sem flesta á æfingunni í kvöld og Hemmi mætir vonandi með ný og vellyktandi vesti.

kv. Hilmar

Friday, December 7, 2007

Komasvooo!!!!

Kæru félagar!

Í kvöld skiljast hafrarnir frá sauðunum.
Við erum ekki sauðir!
Við ætlum að sigra þetta HK lið og það sannfærandi!
Við erum með breiðan og jafnan hóp skipaðan bæði efnilegum guttum og mönnum sem eru svo hoknir af reynslu að það hálfa væri nóg.
Það sem skiptir máli er að við byrjum allir að hugsa um leikinn ekki seinna en núna!
...og ekkert múður!
Við þurfum að hugsa um VARNARVINNUNA!
Við þurfum að hugsa um að ÚTRÝMA feilsendingum!
Við þurfum að hugsa eins og SIGURVEGARAR!
Mætum tímanlega klukkan 20:20 og ekkert múður.

ÁFRAM FHb!

Wednesday, December 5, 2007

Æfing í kvöld, búningar og dómarar

Það er æfing í kvöld, væri fínt að fá góða mætingu svo við getum tekið gott spil og reynt þannig að taka smá hraða og gleði.

Varðandi búninga, Gatli og Fúsi eiga enn eftir að greiða.

Dómarar fyrir föstudag, Óli, getur þú tjekkað á dúddunum síðan seinast?

Sjáumst!

Monday, December 3, 2007

Lukkan næsta fórnarlamb!

En eins og Hilli sagði, ekkert vanmat takk. Mætum í leikinn í kvöld dýrvitlausir tökum öfluga upphitun að hætti Sigga.

Mæting klukkan 20.57.

Minni á að enn eiga þrír eftir að greiða fyrir búninga.