Tuesday, September 30, 2008

Nú förum við norður og ekkert rugl!

Dregið var í bikarnum í gær og fengum við KA sem samanstendur af reynsluboltum af norðurlandi. Þeir fá heimaleik þar sem þeir eru ekki í neinni deild en við að sjálfsögðu í Utandeild. Leikina á að spila nú um helgina og stakk ég uppá að við myndum spila á laugardeginum og kannski öl á eftir. Hvað finnst ykkur? Eru menn ekki klárir í þetta??? Er ekki málið að keyra norður á nokkrum bílum, vinna leikinn, hella í sig og gista??? Hverjir eru menn og hverjir eru mýs??? Ef það hentar betur gætum við væntanlega frestað leiknum um viku.

Svo er Utandeildin farin að byrja og eru 12 lið skráð til leiks: Afturelding, FH, Júmboys, Leiftri, Heimsliðið, HKR, Höttur, Kíklóparnir, Kórdrengirnir, Lukkan, Selfoss og Víkingur. Lagt er til að það verði spiluð einföld umferð og svo átta liða úrslitakeppni. Einnig verði bætt inn bikarkeppni utandeildarliða sem verði væntanlega spiluð í janúar.

Wednesday, September 24, 2008

Lukkulegur Lukkuleikur

Lukkan hefur skorað á Lukkulega leikmenn FH-B í æfingarleik í kvöld. Vonast er eftir Lukkulegri mætingu og megi Lukkan vera með ykkur.

21.30

Wednesday, September 17, 2008

Miðvikudagsæfing

Minni menn á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Vonast til þess að sjá sem flesta því það verður sennilega ekki æfing á föstudaginn. Ef allir leggjast á bæn þá er kannski von til þess að Stykkið og Hemmi mæti.

Friday, September 12, 2008

Æfing í kvöld

Ætla menn ekki að mæta á æfingu í kvöld klukkan 19:30??? Ég er a.m.k. til og vona að það mæti sem flestir. Reynið að fá sem flesta til að mæta og skrá sig hér á síðunni svo við höfum einhverja hugmynd hversu margir við verðum. Og ekki gleyma köldum.

Friday, September 5, 2008

Föstudagsæfing

Við eigum semsagt æfingu í kvöld klukkan 19:30 og spurning hverjir ætla að mæta? Trúi ekki öðru en að menn séu klárir í kvöld bæði þar sem menn er nýbyrjaðir að hreyfa sig á ný og æfingin er snemma. Legg samt til að menn taki með sér öl. Endilega reynið að smala sem flestum. Ég mæti.

Tuesday, September 2, 2008

Tímar

Sælir, við erum komnir með miðvikudaga klukkan 21.30 og föstudaga klukkan 19.30.

Einar Andri vill láta töfluna rúlla í eina viku áður en þetta er staðfest. Þar sem þetta er heldur minna en undanfarin ár, þá var ég að spá í að tala við Pétur um að reyna að fá einn tíma í Risanum td. á mánudögum undir fótbolta.

Hvernig leggst það í menn?

Annars er þá bara stefnan tekin á æfingu á morgun.