Sunday, March 30, 2008

Fyrsti úrslitaleikurinn

Þá er komið að fyrsta úrslitaleiknum hjá okkur og held ég að það hljóti að vera auðvelt fyrir menn að gíra sig upp eftir hörmulega frammistöðu í síðasta leik. Leikurinn er við HK í Digranesi klukkan 18:00 og legg ég til að menn mæti tímanlega, svona einu sinni til tilbreytingar, klukkan 17:15 og allir verði klárir í hörku upphitun 17:30. Vonandi mæta sem flestir því okkur veitir ekki af liðstyrknum. Menn verða að muna að taka leikgleðina og baráttuna með svo verðum við að spila okkar leik og leggja allt í sölurnar. Ég þykist vita að Raggi ætli að fara á kostum í markinu, Eiki hendi inn slatta úr hraðaupphlaupum og Óli setji nokkrar sleggjur. Hinir fylgja svo að sjálfsögðu með. Ef allt gengur vel gæti Addi jafnvel nælt í eitt rautt...

Áfram FH-B!!!

Friday, March 28, 2008

Föstudagur - ÆFING

Það verður æfing í kvöld. Ekki vitlaust að kippa einni bjórdollu með til að ræða taktík fyrir sunnudag.

Látið vita í comments ef þið komið.

Nei ekkert EF nú mæta allir... OG KÁLFI þú skuldar!

Sjáumst klukkan 20.55

Luv
Herminator

Wednesday, March 26, 2008

Æfing í kvöld! - Leikur á sunnudag

Jæja, þá eru þessir páskar yfirstaðnir og vonandi koma menn vel undan eggjum og steikum. En í kvöld hefst alvaran aftur. Æfing klukkan 21.30 og svo er "must win" leikur á sunnudag gegn HK. Reynum að hafa þetta svoldið massíft og mæta með gleðina í farteskinu.

Sjáumst...

Tuesday, March 18, 2008

Stórkostlega slök framistaða!

Ég veit ekki hvar maður á að byrja eftir aðra eins útreið. Jú byrja á jákvæðu þáttunum en ég vil setja plús á Hilla og Begga sem virtust einu mennirnir sem langaði. Við hinir ættum að skammast okkar fyrir þessa framistöðu. Ég nenni ekki að fara að greina e-ð það sem illa fór en líkurnar á því að við náum að sigra þessa deild eru engar ef við ætlum að spila svona.

Hysjum upp brækur og klárum það sem eftir er með sæmd.

Hendi líka tveim plúsum á Sigga og Adda fyrir að fórna sé fyrir málstaðinn!

Eru menn í stuði fyrir æfingu á miðvikudag. Væntanlega þá æfingu og ÖL.

Wednesday, March 12, 2008

Æfing í kvöld - leikur á mánudag.

Það verður sumsé ekki leikur í kvöld heldur mánudaginn næsta.

Mætingin er ekki búin að vera alveg nógu massíf uppá síðkastið sem er synd þar sem við erum í bullandi sjéns.

Ég lýsi hér með eftir fleiri mönnum. Kálfinn, Pedda og fleiri :)

Leikurinn gegn Lukkunni verður sumsé spilaður í tímanum okkar á mánudag og ef þú ert enn tæpur Siggi, dæmir þú þá ekki fyrir bjór?

Norska leynivopnið kemur með nýpressað harpix úr skógarlundi í Osló.

Monday, March 10, 2008

Æfing í kvöld ofl

Að sjálfsögðu verður æfing í kvöld klukkan 21:00 eins og vanalega. Reynið að draga menn með ykkur svo við náum að spila á tvö mörk. Mætingin var ekki nógu góð í síðustu viku. Held að Óli sé búinn að grenja í gegn softball í upphitun þannig að hann mætir væntanlega tímanlega til að stilla upp. Vona að aðrir mæti líka tímanlega svona til tilbreytingar.
Samkvæmt leikjaplani á að vera leikur við Lukkuna á föstudaginn en hugmynd er um að fresta honum til mánudags til að leynivopnið okkar frá Noregi geti verið með. Mér líst samt betur á að hafa leikinn á miðvikudag (frí daginn eftir) og fjölmenna svo í öl á eftir.
Laugvetningar eru búnir að draga sig úr keppni þannig að úrslit úr þeirra leikjum falla niður. Það hefur engin áhrif á þau lið sem við erum í baráttu við um sigur í deildinni. Við áttum leik við þá 18. apríl. Spurning hvort menn vilji ekki fá frestaða Júmboys leikinn þá í staðinn? Svo þurfum við að reyna að finna tíma fyrir Húsavík. Spurning hvort Stykkið taki ekki að sér að finna út úr því...

Friday, March 7, 2008

Leikurinn í kvöld

Leikurinn í kvöld við WC er klukkan 21:00 í Mýrinni í Garðabæ. Mæting 20:15. Að venju mæta allir sem geta því okkur veitir ekki af okkar besta mannskap. Nú eru allir leikir hjá okkur úrslitaleikir og því verða menn að mæta 100% tilbúnir.

Áfram FH-B!

Wednesday, March 5, 2008

Æfing í kvöld

Það verður æfing í kvöld klukkan 21:30. Vonandi mæta sem flestir því við eigum mikilvægan leik fyrir höndum á föstudaginn og þurfum því að taka vel á því á æfingunni í kvöld.

Monday, March 3, 2008

Tvö stig í hús

Sigur á ÍH á föstudaginn 42-33 skilaði tveimur stigum í hús og við höldum áfram stefnunni á titilinn. Það var góður fyrri hálfleikur sem skilaði þessum sigri en við vorum með níu marka forystu í hálfleik 24-15. Gaui lögga átti mjög góðan fyrri hálfleik, eins og flestir í liðinu og Danni átti frábæran leik og endaði með 12 mörk. Klárlega maður leiksins. Við náðum okkur aldrei alveg á strik í seinni hálfleik og voru menn ekki alveg 100% í honum en gerðu það sem þurfti til að landa sigri gegn annars ágætu liði ÍH. Óli og Gaui klikkuðu báðir sínum vítum og Danni hirti punktinn af þeim og sýndi fádæma öryggi.
Mörkin skoruðu:
Danni 12
Óli 9
Gaui lögga 7
Eiki 5
Höddi og Siggi 3
Stykkið 2
Pedda 1

Hilmar stóð í markinu og varði 20-25 skot. Aðrir sem spiluðu voru Jói og Toby.
Held að Óli fái ekki að taka fleiri víti og klárlega fær Stykkið ekki að halda fleiri hálfleiksræður!

Vonast til að sjá sem flesta á æfingu í kvöld því það getur verið að það verði ekki æfing á miðvikudaginn. Það verður svo útileikur við WC í Mýrinni á föstudaginn og við verðum að mæta tilbúnir í þann leik því þeir hafa spila vel undanfarið og unnu m.a. Júmboys.

Áfram FH-B!!