Wednesday, December 23, 2009

Drög að leikjaplani ofl

Sælir

Hérna eru drög að leikjaplani eftir áramót:


Fimmtudagur 14. janúar 2010
Utandeild 1.d Mýrin 20.30 Heimsliðið - FH
Laugardagur 23. janúar 2010
Utandeild 1.d Víkin 17.00 Víkingur - FH
Föstudagur 29. janúar 2010
Utandeild 1.d Kaplakriki 19.45 FH - KR
Miðvikudagur 3. febrúar 2010
Utandeild 1.d Varmá 21.00 Júmboys - FH
Föstudagur 12. febrúar 2010
Utandeild 1.d Kaplakriki 19.45 FH - Stórveldið
Sunnudagur 21. febrúar 2010
Utandeild 1.d Selfoss 20.00 Árborg - FH
Föstudagur 5. mars 2010
Utandeild 1.d Kaplakriki 19.45 FH - ÍR
Laugardagur 13. mars 2010
Utandeild 1.d KA heimilið 18.00 Hamrarnir - FH
Föstudagur 19. mars 2010
Utandeild 1.d Kaplakriki 19.45 FH - HK

Síðan er búið að framlengja frestinn til skráningar í bikarkeppnina til 29. des. Þið sendið póst á Róbert ef þið ætlið að vera með. Annars óska ég ykkur bara gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Geri ráð fyrir að Jói setji hér inn upplýsingar um útihlaup og þrekæfingar sem menn eiga að sinna milli hátíða.

Tuesday, December 15, 2009

Dagskráin

Sigur á Víkingum tryggði okkur sæti í efri deildinni eftir áramót. Veit einhver lokastöðuna úr leiknum svo ég geti sent HSÍ? Einnig væri gaman að fá að vita hverjir mættu og hverjir voru að standa sig best.

Eftirfarandi fékk ég sent frá HSÍ:
Í janúar og febrúar er fyrirhöguð bikarkeppni utandeildarliða líkt og var haldin fyrir ári síðan.
Skráningarfrestur er til 23.desember og er þátttökugjald kr. 7.000.
Senda þarf skráningu á robert@hsi.is og þarf að koma fram nafn, heiti liðs og upplýsingar um tengilið ásamt kvittun fyrir greiðslu.

Annars minni ég á æfingu miðvikudag klukkan 21:30 og leik við Júmboys í Kaplakrika á föstudaginn klukkan 20:00. Er reyndar ekki viss um að þeir mæti því það er jólahlaðborð hjá þeim klukkan 20:30 og þeir báðu um að flýta leiknum sem er ekki hægt. Læt vita um leið og ég veit meira. En ég er handónýtur þannig að ég er ekkert að fara að mæta á næstunni.

Wednesday, December 2, 2009

Dagskrá vikunnar

Stórsigur á Þrótti í síðasta leik og það væri frábært ef einhver gæti sett inn smá leikskýrslu fyrir okkur sem mættu ekki. Heyrði að Jói hefði snúið leiknum við.
Minni fyrst á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Síðan á föstudaginn er leikur við Lukkuna klukkan 19:45 í Kaplakrika. Mæting 19:15 og þar sem þetta er okkar heimaleikur verðum við að redda dómara. Spurning hvort Óli Björns geti heyrt í spinnernum?
Síðan er leikur við Kórdrengina í Mýrinni á sunnudaginn klukkan 12:00. Ég fékk þá semsagt til að flýta leiknum svo hann væri ekki á sama tíma og FH vs Haukar í bikarnum.
En látið vita hér fyrir neðan með mætingu á æfingu og í leikina.

Tuesday, November 24, 2009

Dagskráin næstu daga

Það er búið að setja Kórdrengjaleikinn á sunnudaginn 6. des klukkan 15. Júmboys leikurinn verður sennilega föstudaginn 18. des, fæ það staðfest síðar í vikunni.

En við byrjum að sjálfsögðu á æfingu miðvikudag klukkan 21:30. Látið vita með mætingu hér fyrir neðan. Svo eru næstu leikir hjá okkur eftirfarandi:

Lau. 28.nóv.2009 12.00 Laugardalshöll Þróttur - FH
Fös. 4.des.2009 19.45 Kaplakriki FH - Lukkan
Sun. 6.des.2009 15.00 Mýrin Kórdrengirnir - FH

Friday, November 13, 2009

Leikur í kvöld, föstudag

Minni á leikinn í kvöld við HK í Digranesi klukkan 20:30. Mæting 20:00. Endilega staðfestið hér fyrir neðan hvort þið mætið eða ekki. Ég mæti ekki sjálfur, ennþá ónýtur í baki og öxl. Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að ég væri orðinn of gamall og í of lélegu formi. En þið takið á þeim og munið að spila fast frá fyrstu mínútu því þeir gera það pottþétt. Ef við vinnum þennan leik erum við komnir vel á veg með að tryggja okkur í efri deild eftir áramót.

Friday, November 6, 2009

Búið að fresta sunnudagsleiknum og úrslit

Kórdrengirnir samþykktu að fresta sunnudagsleiknum og finnum við nýjan tíma á hann síðar.

En stórsigur á móti afar slöku liði HKR 34-17 í kvöld en staðan var 17-7 í hálfleik. Samt var markmaðurinn þeirra örugglega með 20+ varin. Mörkin okkar skoruðu:
Beggi 10
Óli Heimis 7
Haukur, Andri, Valli og Óli Björns 3 hver
Jökull, Höddi, Jói, Elli og Hilmar 1 hver
Vörnin var öflug hjá okkur með Begga og Óla Björns sem bestu menn. Annars voru allir að spila ágætlega þó svo að skotnýtingin hefði mátt vera betri. Stykkið og Jökull skiptu markmannsstöðunni bróðurlega á milli sín og stóðu báðir sig vel. Ólarnar stóðu sig báðir vel en Beggi klárlega maður leiksins.

Síðan átti ég alltaf eftir að henda inn smá umfjöllun um leik okkar á móti Árborg sem við unnum fyrir austan 30-27. Því miður erum við ekki með markaskorara úr þeim leik en ég held að Óli Björns hafi verið atkvæðamestur. Fínn fyrsti leikur hjá okkur þar sem við byrjuðum vel og náðum nokkurra marka forskoti strax í byrjun en misstum það niður í lok fyrri hálfleiks. Um miðjan seinni hálfleik náðum við frumkvæðinu á nýjan leik og létum það aldrei af hendi gegn annars fínu Árborgarliði. Stykkið var pottþétt maður leiksins því hann var með hátt í 30 varin. Eins og þeir sungu í ÍH laginu forðum: "eftir 30 skoruð og 20 varin við brunum allir beint á barinn". En við brunuðum reyndar á KFC þars sem kalla þurfti út aukavakt - og það bara fyrir mann leiksins. Svo er við hæfi að yfirfæra í lokin á okkur annað erindi úr fyrrnefndu ÍH lagi:

Rósir eru rauðar,
fjöllin eru blá.
Hverjir eru bestir?
FH!

p.s. Muna ekki allir eftir markinu hans Jóa á móti Árborg?

Wednesday, November 4, 2009

Æfing í kvöld og tveir leikir um helgina

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Geri ráð fyrir fanta mætingu þar sem það eru tveir leikir fram undan um helgina. Einnig voru margir sem mættu á árgangamótið heitir fyrir að mæta á æfingar hjá okkur.
En við eigum heimaleik á móti HKR á föstudaginn í Krikanum klukkan 21:30. Kannski nauðsynlegt að hefja dómaraleitina strax. Spurning hvort Óli Björns geti tékkað á Jóni Karli en við erum að tala um að hver leikmaður borgar 500kr eins og venjulega. Látið endilega vita hér í commentunum hvort þið getið reddað dómara.
Síðan er leikur í Mýrinni í Garðabæ við Kórdrengina á sunnudaginn klukkan 15:30. Sem ég er að sjá núna að er alveg fáránlegur tími þar sem Haukar vs FH er klukkan 16:00. Á ég að reyna að láta fresta leiknum? Látið skoðun ykkar í ljós hér fyrir neðan og einnig hvort þið mætið á æfinguna og í leikina.

Wednesday, October 28, 2009

Æfing í kvöld ofl.

Byrja á að minna á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Látið vita með mætingu hér fyrir neðan.

Það er búið að færa leikinn sem við áttum að spila næsta sunnudag yfir á þar næsta sunnudag vegna lokunar í Mýrinni. Næsti leikur hjá okkur er því heimaleikur á móti HKR föstudaginn 6. nóv klukkan 21:30. Svo sunnudaginn 8. nóv er þá útileikurinn á móti Kórdrengjunum í Mýrinni klukkan 15:30. Þannig að það verður alvöru helgi þá.

Sleipnir eru búnir að draga lið sitt úr keppni þannig að 10-0 sigurinn dettur út.

Við í 79 árgangnum erum að reyna að smala í lið fyrir árgangamótið og okkur vantar ennþá nokkra. Þannig að allir sem hafa áhuga á að vera með, úr hvaða árgangi sem er, endilega láta okkur vita. Held að þetta mót verði algjör snilld og endað í öli og stemmara á Vegamótum eftir mót.

Fyrir þá sem ekki vita þá unnum við glæsilegan útisigur á Árborg 27-30 á sunnudaginn. Ég reyni að henda inn umfjöllun um þann leik sem fyrst.

Friday, October 23, 2009

Leikur á Selfossi sunnudag

Minni á leikinn við Árborg á Selfossi á sunnudaginn klukkan 20:00. Mæting 19:15. Meldið ykkur inn hér fyrir neðan hvort þið mætið eða ekki. Ég er sjálfur 50/50 vegna meiðsla en stefni á að mæta.

Eru menn svo ekki að safna í lið fyrir árgangamótið?? Hvernig er með ´79 árganginn, hverjir eru með??

Wednesday, October 14, 2009

ATH!!! Ekki leikur í kvöld - Sleipnir nær ekki í lið

Sendi Sleipnismönnum póst í morgun til að fá það staðfest að þeir myndu mæta. Var að fá póst frá þeim núna og þeir ná ekki í lið! En að sjálfsögðu verður æfing klukkan 21:30 eins og venjulega og þar sem allir eru búnir að taka kvöldið frá þá geri ég ráð fyrir dúndurmætingu eins og venjulega. Reynum svo að mæta tímanlega svo við náum að spila sem mest. Fyrir hönd okkar eldri leikmanna þá skora ég á yngri í bjórleik í kvöld!

Tuesday, October 13, 2009

Leikur miðvikudag og FH vs Valur fimmtudag

Minni á leikinn á morgun, miðvikudag við Sleipni í Kaplakrika klukkan 21:45. Mæting 21:00. Eins og undanfarin ár mæta allir sem komast. Við eigum enn eftir að redda dómara og bið ég alla um að gera sitt besta í því. Það þurfa allir að koma með 500kr sem fara í að borga dómara þannig að dómarinn er að fá c.a. 5000 fyrir auðvelda vinnu. Það hlýtur einhvern að vanta pening. Endilega setjið sem fyrst í comment hér fyrir neðan hvort þið mætið í leikinn og einnig ef þið getið reddað dómara.

Síðan var ég að fá eftirfarandi póst frá Togga:

Sælir.Við höfum lent í ótrúlega miklum forföllum í kringum leikinn á fimmtudaginn (stjórnarmenn erlendis, lykilstarfsmenn veikjast o.s.frv.) og því vil ég biðla til ykkar - unglingaráðs, Muggs, aðalstjórnar og FH B - um aðstoð í kringum leikinn. Ég er búinn að biðja Lukkuna um það sama.Sigursteinn ber hitann og þungann af þessum leik en það þarf fólk í ábyrgðarstöður til að ekki leggist allt á einn mann og því bið ég ykkur að aðstoða við undirbúning eins og hægt er og manna nokkrar starfsstöðvar í kringum leikinn.Ef þið hafið fólk til að létta undir og láta þetta allt ganga vel skuluð þið svara þessum pósti með fjölda og Sigursteinn úthlutar verkefnum.Ég vona að þið takið vel í þessa beiðni okkar því aðstæðurnar eru mjög óvenjulegar en við viljum engu að síður gera fimmtudaginn að degi sem gleymist seint og þurfum aðstoð sem allra flestra til þess að svo megi verða.Kær FH-kveðja,Þorgeir.

Við mætum væntanlega flestir á leikinn þannig að nú er bara að mæta klukkutíma fyrr og hjálpa til við hvað sem til fellur. Veit að það yrði mikils metið innan félagsins. Látið líka vita hér í commentunum hvort þið mætið ekki pottþétt í þetta líka og ég læt svo Steina og Togga vita hverjir mæta.

Friday, October 9, 2009

Sennilega endanlegt leikjaplan

Hér er sennilega endanlegt leikjaplan fyrir áramót.


Mið. 14.okt.2009 21.45
Kaplakriki FH - Sleipnir

Sun. 25.okt.2009 20.00
Selfoss Árborg - FH

Sun. 1.nóv.2009 17.00
Mýrin Kórdrengirnir - FH

Fös. 6.nóv.2009 21.30
Kaplakriki FH - HKR

Fös. 13.nóv.2009 20.30
Digranes HK - FH

Fös. 20.nóv.2009 19.45
Kaplakriki FH - Júmboys

Lau. 28.nóv.2009 12.00
Laugardalshöll Þróttur - FH

Fös. 4.des.2009 19.45
Kaplakriki FH - Lukkan

Lau. 12.des.2009 18.00
Víkin Víkingur - FH

Þeir sem ætla að spila með í vetur verða að leggja þúsund kall inn á mig fyrir keppnisgjöldunum sem ég er búinn að greiða. Reikningsnr: 0545-26-4417 kt: 150179-3519. Þeir sem eru búnir að borga eru: Óli Björns, Óli Heimis, Beggi, Danni, Höddi, Hilmar, Eiki og Gaui lögga. Aðrir verða að drífa sig í að borga og í síðasta lagi fyrir fyrst leik sem verður á miðvikudaginn. Einnig þarf að redda dómara í leikinn og bið ég menn um að reyna að redda einhverjum í það verkefni sem fyrst.

Friday, October 2, 2009

Óstaðfest leikjaplan

Riðill 2

Föstudagur 16. október 2009
Kaplakriki 19.45 FH - Sleipnir

Sunnudagur 25. október 2009
Selfoss 20.00 Árborg - FH

Föstudagur 6. nóvember 2009
Kaplakriki 19.45 FH - HKR

Föstudagur 13. nóvember 2009
Digranes 20.30 HK - FH

Föstudagur 20. nóvember 2009
Kaplakriki 19.45 FH - Júmboys

Laugardagur 28. nóvember 2009
Laugardalshöll 14.00 Þróttur - FH

Föstudagur 4. desember 2009
Kaplakriki 19.45 FH - Lukkan

Laugardagur 12. desember 2009
Víkin 17.00 Víkingur - FH

Minni menn svo á að leggja inn á mig.

Monday, September 28, 2009

Keppnisgjöld

Við þurfum að borga keppnisgjöldin í síðasta lagi á morgun, þriðjudag, og eru þetta 15 þúsund. Því bið ég alla um að leggja þúsund kall inn á mig sem fyrst. Kt: 150179-3519 og reikningsnúmer: 0545-26-4417. Það eru átján lið skráð til leiks og verður spilað í tveimur riðlum fram að áramótum og verður þá skipt í efri og neðri deild. Markmið okkar hlýtur því að vera í topp fjórum. Deildaskipting og leikjaplan verður væntanlega gefið út á morgun.

Friday, September 11, 2009

Æfingatímar í vetur

Það var fín mæting á æfinguna á miðvikudaginn þrátt fyrir skamman fyrirvara. Náðum a.m.k. að spila á tvö mörk þó svo að það hafi fáir verið í formi til þess.
En það væri fínt að fara að fá endanlega æfingartíma á hreint. Við eigum tíma á miðvikudögum klukkan 22:00 en einhverjir voru að tala um að við gætum verið 21:30, er það pottþétt? Svo var spurning um sunnudaga klukkan 16:00 og eitthvað jafnvel á föstudögum. Þeir sem hafa verið að vesenast í þessum æfingartímum reyna kannski að fá þetta endanlega á hreint og senda út sms ef það verður æfing í kvöld eða á sunnudaginn.

Wednesday, August 12, 2009

Meiri handbolti???

Sælir piltar.

Ég er bara að spá í hvort menn hafi áhuga á að halda áfram eitt tímabil í viðbót. Ég hef ekkert heyrt um hvort það verði utandeild í gangi en geri þó ráð fyrir því. Ég er til í að vera með en nenni þó ekki að halda utan um þetta. Þyrftum þá líka að vera aðeins fleiri svo að við séum ekki rétt svo að ná í lið í leiki. Væri þá líka spurning hvort það sé sniðugra að spila í deild og borga þá aðeins meira og losna við dómaravesen og þess háttar. En endilega látið vita ef þið hafið áhuga á að vera með og einnig ef þið vitið um einhverja fleiri.

kv. Hilmar

Wednesday, March 11, 2009

Æfing miðvikudag og leikur laugardag

Er ekki stemmari fyrir æfingu í kvöld klukkan 21:30?? Ég er a.m.k. til! Endilega látið vita hér fyrir neðan og takið stöðuna á öðrum. Svo þurfum við að redda dómara í leikinn á laugardaginn og skipuleggja eitthvað eftir leik ef menn hafa áhuga á því. Hendið ykkar pælingum endilega hér inn.

Tuesday, March 3, 2009

Dagskrá vikunnar

Dagskrá vikunnar hljóðar uppá æfingu miðvikudag klukkan 21:30 og leik fimmtudag við Selfoss á Selfossi klukkan 21:50. Vegna dræmrar mætingar undanfarið er ég smeykur um hvort við náum í lið og bið ég því menn um að melda sig sem allra fyrst hér að neðan bæði í leikinn og á æfinguna.

Wednesday, February 18, 2009

Æfingar vikunnar

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Langt síðan við höfum haft æfingu þannig að menn hljóta að fjölmenna í kvöld og allir gestir velkomnir. Síðan tökum við stöðuna fyrir morgundaginn hvort við höfum æfingu þá. En látið vita með mætingu á þessar æfingar hér fyrir neðan.
Ég reyni að mæta bæði í kvöld og á morgun en er reyndar handónýtur eftir leikinn á laugardaginn þannig að ég er ekki alveg 100%.

Monday, February 9, 2009

Dagskrá vikunnar

Þá er leikjatörninni lokið og uppskeran heldur rýr. Fyrri hálfleikurinn á móti Júmboys var mjög fínn hjá okkur og sennilega besta vörn sem við höfum spilað í vetur með Gatla og Stykkið í hörkuformi. Eins og svo oft áður hvarf sjálfstraustið í sókninni í seinni hálfleik og vorum við kaffærðir í hraðaupphlaupum. Endaðið leikurinn með tíu marka tapi sem var alltof stórt því það voru vissulega jákvæðir punktar hjá okkur. Ég komst svo ekki í Lukkuleikinn sem endaði með þriggja marka tapi og heyrðist mér að við hefðum spilað mjög illa heilt yfir í þeim leik. Menn sögðu samt að Simmi hefði spilað vel. En við höfðum svo að lokum sigur á Hetti á laugardaginn 35-29 og það þrátt fyrir að höfum sennilega sett Íslandsmet í misheppnuðum sendingum fram. Við spiluðum einfaldlega hörkuvörn mest allan leikinn og Guðjón Óskar var eins og klettur í markinu.

En dagskrá vikunnar hljóðar uppá æfingu á miðvikudag klukkan 21:30 og svo heimaleik hjá okkur í STRANDGÖTU á laugardaginn klukkan 16:30 við Víking. Mfl er að spila á fimmtudaginn í Krikanum og því fellur æfingin niður þá.

Endilega reynum að mæta sem flestir og láta vita með mætingu hér fyrir neðan.

Tuesday, February 3, 2009

Fullt af leikjum og allt að gerast

Minni á leikinn við Júmboys miðvikudag klukkan 21:00 í Mosfellsbæ. Mæting 20:15.

Síðan verður leikurinn við Lukkuna á fimmtudaginn klukkan 21:30 í Kaplakrika. Mæting strax eftir leik hauka og FH. Við þurfum að redda dómara fyrir þennan leik.

Að lokum hafa Hattar menn haft samband og vilja spila leikinn um næstu helgi og á ég von á svari í dag frá Sigga bakara og Geira Hall um hvenær við gætum fengið tíma um helgina. Ég læt svo Hattar menn vita af því og þeir láta svo vita hvort það hentar eða ekki. Þeir ætla að reyna að koma í bæinn um helgina og spila tvo leiki en áttu eftir að fá svör frá einhverju öðru liði líka.

Endilega látið vita sem fyrst hér fyrir neðan hvort þið komist í leikina og einnig með dómara.

Ég kem pottþétt í mosfellsbæinn en ef ég kemst í leikinn á móti Lukkunni þá kem ég seint.

Wednesday, January 28, 2009

Æfing í kvöld

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Menn verða að fjölmenna þar sem æfingin á morgun fellur niður og svo er leikur við Lukkuna á föstudaginn. Menn mega heldur ekki missa af taktíkinni sem Raggi ætlar að vera með í kvöld!

Friday, January 23, 2009

EKKI leikur í kvöld

Það verður EKKI leikur í kvöld við Lukkuna þar sem leikurinn hefði verið of seint að mati Geira Hall. Starfsfólkið var lengur síðasta sunnudag okkar vegna og því erfitt fyrir okkur að vera með einhverjar kröfur. Leikurinn verður því næsta föstudag. En æfing að sjálfsögðu næsta miðvikudag en ekki á fimmtudeginum þar sem þá er leikur hjá mfl.
Látið menn vita að leiknum sé frestað.

Wednesday, January 21, 2009

Æfing í kvöld

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Æfingin á morgun fellur niður vegna leiks hjá mfl. Svo er leikur hjá okkur við Lukkuna á föstudaginn en ég þarf aðeins að kanna það betur þar sem það er leikur hjá 3. flokki á sama tíma. Líklega spilum við eftir hann, þ.e. 21:30. Látum sem flesta vita af æfingunni svo hún verði sem fjölmennust.

Sunday, January 18, 2009

Bikarleikurinn í dag

Minni á leikinn í dag við Kórdrengina í Kaplakrika klukkan 17:45. Mæting 17:00. Látið alla vita, það eru örugglega einhverjir búnir að gleyma leiknum.

Tuesday, January 13, 2009

Nýr æfingatími og leikur

Sælir piltar

Við höfum fengið nýjan tíma í krikanum á þriðjudögum kl 21.30, með þessu höfum við möguleika á að hafa æfingar með meira millibili því það hefur sýnt sig að við erum ekki að ná góðri mætingu 2 daga í röð.

Leikur á morgun við heimsliðið kl 22.00, mæting kl 21.15 í mýrina í garðabæ.

Mætum ferskir og höfum gaman af, endilega að melda sig hér í comments hverjir ætla að mæta, ég veit að ég mæti og Siggi.

kv

Gaui

Thursday, January 8, 2009

Fimmtudagsæfing og bikar

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:00. Frábær mæting í gær og heyrðist á mönnum að það ætluðu flestir að mæta í kvöld líka. Eftirfarandi fékk ég svo sent frá HSÍ í gær:

Sælir,

Dregið verður á morgun í bikarkeppni utandeildar og eru 12 lið skrá til þátttöku.
Dregið verður í 16 liða úrslit og sitja 4 seinustu lið úr potti hjá.
ATH. Afturelding, FH, Fram, Kíklóparnir, Kórdrengirnir, KR og Víkingur eiga enn eftir að greiða og verða þau lið ekki í pottinum ef þau verða ekki búin að greiða fyrir kl.13 á morgun.
Það lið sem kemur fyrr upp fær heimaleik og verður boðið uppá dómara frá okkur ef liðin kjósa það en gegn gjaldi.
16 liða úrslitin eiga svo að klárast fyrir 20. Janúar og verður þá dregið í 8 liða úrslit.
Verið er að skoða það hvort úrslitaleikurinn fari fram í Laugardalshöll sömu helgi og bikarúrslitin en það skýrist þó ekki fyrr en aðeins síðar.
Drátturinn verður sendur út um 15 á morgun.


Það verður semsagt dregið í dag og ég er búinn að borga. Þið þurfið að leggja inn á mig eða koma með 500kr á æfingu í kvöld. Reikningsnúmer: 0545-26-4417 og kennitala 150179-3519.

Ég mæti í kvöld.

Wednesday, January 7, 2009

Æfing í kvöld

Sælir piltar og gleðilegt ár. Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Reynum að láta sem flesta vita svo það verði almennileg mæting. Ég mæti og Elli líka. Annars hef ég ekkert heyrt meira með bikarkeppnina en við eigum leik næsta miðvikudag við Heimsliðið í Mýrinni. Þannig að við verðum að mæta vel í dag og á morgun. Ég legg svo til að menn breyti um siði á nýju ári og fari að mæta tímanlega.