Friday, August 29, 2008

Tímar og verkefni

Sælir drengir, ég er búinn að ræða við Einar Andra og planið er enn í vinnslu, þó liggur fyrir að miðvikudagar og föstudagar eru lausir, en hann ætlar að sjá hvernig næsta vika þróast.

EN til að greiða fyrir gersemarnar þá þurfum við að taka eitt eða tvö verkefni fyrir FH eins og undanfarin ár, að þessu sinni er það tyrfing á sunnudag. Við og Lukkan erum ábyrg fyrir þessu svæði. Það er talað um að þetta taki c.a 2 tíma, þannig að það væri ekki vitlaust að byrja uppúr hádegi. Endilega staðfestið mætingu hér í commentununm.

Tímatafla ætti að liggja fyrir strax í byrjun viku þá pósta ég henni hér.

Skál!

Thursday, August 7, 2008

Handbolti í vetur??

Sælir piltar

Er ekki áhugi hjá mönnum um að halda áfram handboltanum í vetur? Endilega commentið sem fyrst ef þið viljið bolta og að sjálfsögðu eru ný andlit alltaf velkomin. Ef það er áhugi þá get ég farið að væla út tíma og væntanlega byrjum við þá skv töflu í byrjun september.

kv. Hilmar