Jú kæru vinir, ísinn er brotinn. Við erum aftur komnir á svimandi siglingu eftir ágætan sigur á sprellihressum kennara nemum á Laugarvatni. Leikurinn þróaðist ágætlega og við höfðum alltaf yfirhöndina, mest 15 mörk ef ég man rétt. Við slökuðum hinsvegar óþarflega á undir lokin og loka staðan 30 - 39.
Raggi átti stórleik í markinu og Óli var heitur fyrir utan. Aðrir áttu fínann dag. Það var því miður ekki tekin skýrsla þannig að guð einn man markaskorun.
Annars var þetta skemmtileg ferð, gaman að taka svona road trip. Siggi, Valli og Óli eiga hrós skilið fyrir að fórna sér fyrir málstaðinn og keyra þetta austur fyrir.
Valli fær þó líklega "öryggis verðlaun FH-b" þar sem hann fór held ég aldrei yfir 60 kmh. Raggi óskaði eftir því í Kömbunum að hann "keyrði svo hægt, að hann færi næstum afturábak" sem Valli og gerði af stakri snilld. Skemmtum okkur konunglega yfir frábærum kynningum útvarpsmannsins knáa Hemma Feita á Xinu, stoppuðum og leituðum að Spaða disknum og fundum línur í Kömbunum. Á baka leiðinni ætluðum við svo að kaupa einn lítinn flösku bjór til að deila, en það er ekki í boði í Hveragerði. Kaffi Hveró lokað, Hótel Örk orðin að draugahúsi og restin, hárgreiðslustofur. Þetta er ferðasagan úr Valla bíl í stuttu máli.
Wednesday, January 30, 2008
Sunday, January 27, 2008
Leikur á Laugarvatni
Leikurinn á Laugarvatni hefst klukkan 21.15 á mánudag. Spurning hvort við hittumst ekki 18.30 uppí Krika og splittum í bíla.
Reynum samt að vera búnir að skipuleggja í bíla í commentunum hér að neðan.
Eftir taphrinuna er komnn tími á að spyrna fótum og vinna stórsigur. Ekkert annað kemur til greina!
Reynum samt að vera búnir að skipuleggja í bíla í commentunum hér að neðan.
Eftir taphrinuna er komnn tími á að spyrna fótum og vinna stórsigur. Ekkert annað kemur til greina!
Friday, January 25, 2008
Æfing í kvöld.
Eru menn í stemningu fyrir æfingu í kvöld?
Látið vita í commentunum.
Og svo er hér smá til að berja stuðið í menn fyrir helgina!
Látið vita í commentunum.
Og svo er hér smá til að berja stuðið í menn fyrir helgina!
Wednesday, January 23, 2008
Æfing í kvöld 21.30!
Jú það er æfing í kvöld. Fylgjum nú eftir frábærri mætingu á mánudag og allir dansa.
Hér er einn sem ég veit að allavega Kálfinn hefur gaman af!
Hér er einn sem ég veit að allavega Kálfinn hefur gaman af!
Thursday, January 10, 2008
Selfoss vs FH
Leikurinn á morgun, föstudag, er á Selfossi klukkan 20:30. Við þurfum því væntanlega að leggja af stað ekki síðar en 19:00. Þá er það spurning um hverjir komast og hverjir geta farið á bíl. Látið vita sem fyrst hér fyrir neðan.
Monday, January 7, 2008
Æfing í kvöld
Sælir piltar
Minni á æfinguna í kvöld. Æfingin fellur niður á miðvikudaginn þannig að ég treysti því að það mæti sem flestir í kvöld. Svo er útileikur á Selfossi á föstudaginn.
kv. Hilmar
Minni á æfinguna í kvöld. Æfingin fellur niður á miðvikudaginn þannig að ég treysti því að það mæti sem flestir í kvöld. Svo er útileikur á Selfossi á föstudaginn.
kv. Hilmar
Thursday, January 3, 2008
FH vs Haukar
Leikurinn við Hauka fer fram í Kaplakrika á morgun, föstudag, klukkan 21:15. Mæting 20:30. Óli Heimis ætlar að athuga með dómara og lætur vonandi vita sem fyrst hér fyrir neðan. Geri fastlega ráð fyrir því að það verði vel mætt og menn tilbúnir til að taka á því.
Subscribe to:
Posts (Atom)