Friday, February 29, 2008
Leikur í kvöld FH vs ÍH
Minni á leikinn í kvöld við ÍH í Kaplakrika klukkan 21:15. Mæting 20:30. Við þurfum að sjálfsögðu að redda dómurum og það væri frábært ef Beggi, Óli og Höddi gætu tékkað á sínum mönnum og látið vita sem fyrst. Svo þurfum við að sjálfsögðu að fá að vita hverjir mæta. Látið vita stöðu mála hér fyrir neðan. Vonast til að sjá sem flesta í kvöld og alla tilbúna í leikinn því við megum ekki við því að vanmeta nein lið.
Tuesday, February 26, 2008
Grófleg misnotkun á aðstöðu!
Þetta er ekkert nema gróf misnotkun á aðstöðu minni, en málstaðurinn er góður!
Þar sem þú ert stórkostlegur FH-ingur, fallegur og fimur, þá langar mig til að kanna hvort þú hefður áhuga á að kaupa ársmiða á heimaleiki Fimleikafélagsins. Verðið á þessu eru litlar 10.000, kr. sem þykir ekki mikið. Eins og áður segir gilda miðarnir inn á alla heimaleiki FH og eru jafnframt öflugur styrkur við félagana.
Ég tek þar fram að ég er að selja þetta til að reyna að aðstoða bróður minn, en hluti af hagnaðinum er notað í að greiða æfingaferð sem farin verður í apríl til Portúgal.
Endilega lofið mér að heyra.

Monday, February 25, 2008
Æfing í kvöld!
Jæja, helgin var forvitnileg. Hætt var við ferðina á Húsavík af ókunnum ástæðum. Líklegt er þó að mannekla hafi haft áhirf á menn. Nú er að vona að þeir hafi samþykkt frestun og við komið saman nægilegum mannskap á næstu vikum til að koma okkur á norður og rúúúústa þessu.
Æfing í kvöld klukkan 21.00!
Æfing í kvöld klukkan 21.00!
Friday, February 22, 2008
Vík Húsanna
Nýjustu fréttir eru þannig:
Höddi getur ekki reddað bíl, þannig að það vantar tvo bíla til að ferja flotann norður.
Over and out!

Thursday, February 21, 2008
Húsavík
Það er ljóst að við förum á Húsavík enda erum við engir aumingjar! Þeir sem fara eru:
Hilmar, Höddi, Gaui, Siggi, Eiki, Óli, Raggi og Bergþór sem verður til taks ef eitthvað kemur uppá. Unni og Daddi bætast svo væntalega í hópinn þegar komið verður norður. Óli og frú ætla á bíl og Höddi var síðast þegar ég vissi að vinna í að redda átta manna bíl. Gaui er fararstjóri ferðarinnar og setur væntanlega inn frekari upplýsingar hér fyrir neðan og eins Höddi með bílamálin.
kv. Hilmar

Wednesday, February 20, 2008
Liðsstyrkur að norðan!
Já okkur félögunum hefur borist öflugur liðsstykur að norðan en bræðurnir Daddi og Unni Helgasynir ætla að vera með. Daddi býr í Ólafsfirði og Unni á Akureyri. Þetta lýtur því afar vel út.
Svo er það að sjálfsögðu æfing í kvöld klukkan 21.30.

Tuesday, February 19, 2008
Húsavík?
Nú verðum við að fá á hreint hvort af Húsavíkur ferð verður eða ekki. Addi er rifbeinsbrotinn og spilar því ekki. Hann er hins vegar til í að koma með ef það er pláss. Þeir sem eru tilbúnir að fórna sér í verkefnið eru:
Hilmar
Höddi
Gaui
Raggi
Óli
Eiki
Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að við verðum 9, verðum bara að gefa leikinn ef við náum því ekki. Raggi ætlaði að tékka á Dadda og svo er spurning hvort það sé hægt að plata Valla í þetta. Vitið þið um einhverja fleiri? Ég er alveg handviss um að ef af ferðinni verður þá verður þetta algjör snilldarferð. Við verðum að taka endanlega ákvörðun eftir miðvikudagsæfinguna. Vonast til að sjá sem flesta þá!

Monday, February 18, 2008
Sigur á föstudag, æfing í kvöld!
Það var frekar þunnskipað þið sem mætti til leiks á föstudag. Mótherjinn að þessu sinni Boltafélagið. Fimleikafélagið sigraði leikinn með 32 mörkum gegn 27. Ég held það sé óhætt að fullyrða að þetta hafi verið einn slaksti leikur okkar á tímabilinu. Við getum þakkað Boltafélaginu fyrir stuttann rugl og tuð kafla sem þeir tóku. Þá misstu þeir tvo leikmenn af velli sem gaf okkur færi á að klára þá. Fram að því var leikurinn í járnum og Boltafélagið átti eitt mark á okkur ef ég man rétt.
Maður leiksins: Toby
Svo er það æfing í kvöld, við verðum að ná góðri mætingu til að eiga einhvern möguleika um helgina gegn Völsungi.
Minni menn sem spiluðu á föstudag á að mæta með cash monný fyrir dómarana.

Friday, February 15, 2008
Leikur í kvöld: Dómarar!
Jú þá eru það félagarnir í Boltafélaginu. Leikurinn hefst klukkan 21.15. Mæting 20.15. Það eru nokkrir forfallaðir, Raggi er veikur, Siggi er að halda uppá afmælið sitt, Fúsi var tæpur skildist mér. Endilega látið vita hér að neðan hvort þið komist.
Er einhver með eldhressa dómara á takteinunum ?
Sjáumst í kvöld!

Tuesday, February 12, 2008
Húsavík
Það styttist í Húsavíkurferðina góðu en leikurinn gegn þeim er settur laugardaginn 23. febrúar. Eitthvað virðist ætla að verða um forfoll en við þurfum að finna útúr því hverjir það eru sem komast og hvernig hægt væri að raða niðrá bíla. Þá þurfa menn að ákveða hvort þeir vilji gista á Húsavík eða bruna í bæinn beint eftir leik.
Líklega þarf að leggja af stað ekki seinna en um 7 á laugardagsmorgninum þar sem leikurinn er settur klukkan 14.00.
Endilega látið vita hvort þið komist og þá hvort þið hafið bíl eða hvernig þið sjáið þetta fyrir ykkur.
.-Hörm

Friday, February 8, 2008
Haukar rotaðir
Leikurinn á miðvikudag var stórfínn á löngum köflum. Þó áttum við svoldið erfitt með að komast í gang og það var líkt og menn væru taugaveiklaðir. En eins og við vitum manna best, þá á enginn sjéns þegar við erum að spila vel.
Ég ætla ekki að draga nokkrun mann upp né niður þar sem við áttum allir fínann leik.
Það sem hinsvegar vekur athygli er pósturinn sem ég fékk frá HSÍ í dag.
----
Sælir,
Haukar hafa ákveðið að draga lið sitt úr keppni í utandeildinni í ljósi manneklu og falla allir leikir þeirra niður.
Kveðja,
Róbert Gíslason
Starfsmaður HSÍ
----
Við sumsé rotuðum þá ekki bara, heldur dauðrotuðum.
Reyndar er ég strax farinn að sakna þeirra!
Maður leiksins: Diddi

Wednesday, February 6, 2008
VIÐ ERUM STÓRI BRÓÐIR!
Mæting í Strandgötuna uppúr níu á slaginu!
Leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur og kjörið tækifæri fyrir okkur að sýna okkar bestu hliðar. Eiki ætlar að skora 10 úr hraðaupphlaupum. Óli verður óstöðvandi og kemur til með að taka flugbrautina á þetta og setja 12. Siggi ætlar að klína hverju dauðafærinu á fætur öðru í netmöskvana, líklega 7 kvikindi frá einum efnilegasta miðjumanni sem leikið hefur í svöru búningunum. Höddi ætlar að skjóta í andlitið á ellilífeyrisþeganum í marki hauka og salla 5 inn eftir það, skemmtilegt á það að minnast að öll verða mörkin eftir gríðalega góða stimplun. Hann mun að auki setja 2 úr hraðaupphlaupi því ég hef nýtekið upp á því að horfa til hægri.
Svo má reikna með þessum klassísku 5-6 mörkum frá Línukónginum Hemma og eflaust 10 fimmtán í viðbót frá hinum snillingunum í liðinu. Ég mun verja um tuttugu bolta enda verður 5 -1 vörnin ROSALEG!
Spá mín og krafa er að við vinnum þennan leik 52 - 20.
Mætum nú með hausinn í lagi, gerum skyldu okkar og gerum þetta eins og menn!
Áfram FHb!

Tuesday, February 5, 2008
Senda, sækja, skora!
Já þá eru það S'in þrjú, senda, sækja, skora og brosa. Þetta hljóta að verða einkunnar orð okkar í leiknum gegn Haukum á morgun. Það er nokkuð ljóst að við þurfum að mæta hel einbeittir til að klára þennan leik. Ég óska eftir góðum leik frá öllum.
Leikurinn hefst klukkan 22.00 í Strandgötu og munið, senda, sækja, skora og brosa. Þetta er lykillinn að sigri!

Sunday, February 3, 2008
Gleði og gredda í Garðabænum!
Unnum HR. 56 - 23 eða svo. Flottir. Flestir stóðu sig prýðilega. Óli, einn besti leikmaður utandeildarinnar, og þótt víða væri leitað, náði sér ekki alveg á sitt besta strik enda var engin þörf á því. Hann verður með sín tíu mörk plús í leiknum á móti Haukum á miðvikudaginn og verður í kjölfarið valinn í landsliðið.
Þurfum að bæta vörnina og tjila á feilsendingum. Hugsum um það.
Áfram FHb!
Þurfum að bæta vörnina og tjila á feilsendingum. Hugsum um það.
Áfram FHb!
Subscribe to:
Posts (Atom)