Thursday, November 29, 2007

5 eftir

Strákar, við verðum að klára þetta það eru 5 eftir. Set listann með til að ýtreka.

Uppfært, 3 eftir. Ekkert heyrt frá Begga, Fúsa og Gatala. Við verðum að klára þetta strákar!


Toby
Addi Bjéé
Hilli
Haukur
Gaui Kálfi
Beggi
Óli
Danni
Gaui
Eiki
Siggi
Raggi
Hemmi
Jói
Gummi Atli
Höddi
Óli Eiríx
Fúsi


Leggið 6.500 kr. inn á reikning:
0101 - 26 - 220280
Kt:220280 - 5869

...með nafnið ykkar í skýringu. Afgangurinn verður notaður í dómara eða bjórsjóð. Ýtarlegur uppgjörsfundur verður síðan haldin í aðalstöðvum FH-b þegar þessu er lokið.

Tuesday, November 27, 2007

Búningarnir komnir

Nú þarf að hafa hraðar hendur og greiða fyrir góssið.

Þetta stendur í rúmum 6000 kalli á mann. Heildarkostnaður er rétt rúmur 107 þúsund kall.

Leggið 6.500 kr. inn á reikning:
0101 - 26 - 220280
Kt:220280 - 5869

...með nafnið ykkar í skýringu. Afgangurinn verður notaður í dómara eða bjórsjóð. Ýtarlegur uppgjörsfundur verður síðan haldin í aðalstöðvum FH-b þegar þessu er lokið.

Athugið, ég fæ ekki búningana fyrr en ég hef gengið frá greiðslu. Þetta þarf því að ganga hratt og vel fyrir sig.

Hér er nafnalisti og merki við þegar menn hafa greitt:

Toby
Addi Bjéé
Hilli
Haukur
Gaui Kálfi
Beggi
Óli
Danni
Gaui
Eiki
Siggi
Raggi

Hemmi
Jói
Gummi Atli
Höddi
Óli Eiríx
Fúsi

Monday, November 26, 2007

FH - World Class

Á föstudaginn voru það World Class sem komu í heimsókn til okkar í Krikann. Sjálfur reiknaði ég með World Class sterkari en raun bar vitni. Þeir hafa misst nokkra sterka leikmenn síðan í fyrra og hafa veikst talsvert fyrir vikið. Leikurinn endaði 35 -30 eftir að World Class náði að klóra aðeins í bakkann undir lokin.

Við byrjuðum nokkuð vel og menn virtust tilbúnir í kvekindið. Frábær upphitun sem Siggi "Out sourcaði" í hendur Danna sem stóð sig vel. Svo má ekki gleyma ótrúlega velheppnuðum teygjuhring.

Það má ekki gleyma þætti Ragga í leiknum sem stóð sig frábærlega. Hann varði 18 bolta og átti 6 stoðsedningar.

Ég útnefndi Begga sem mann leiksins og fékk ágætar undirtektir svo ér reikna með að það standi. Siggi átti einnig mjög góðan leik sem og Óli.

Mörkin dreifðust svona á menn:
Hemmi - 2
Eiki - 3
Danni - 1
Höddi - 2 og 100 armbeygjur
Hilli - 1
Óli - 7
Beggi - 6
Siggi - 8
Gatli - 2
Jói - 3 (skuldar Hilla 1600 kall fyrir fittuna)

Aðrir á skýrslu:
Raggi
Fúsi
Toby

Það verður að taka það fram að dómararnir sem Óli geirnegldi, stóðu sig afar vel.

Thursday, November 22, 2007

Vinir

Ég er bæði búinn að tala við Nóra og Egil (Svenbró) uppá að dæma leikinn á morgun. Egill er upptekinn í dómgæslu og Nóri er að fara að spila. Ég hef ekki fleiri ráð undir rifjunum á mér. En vandamálið er þekkt, okkur vantar nauðsynlega dómara. Einhverjar hugmyndir?

Tuesday, November 20, 2007

Búningamál

Þá er komið heildarverð í búninga gírinn. Ég pantaði sumsé skv. stærðum sem þið löggðuð inn og skellti buxum á alla línuna í sömu stærðum og búningarnir. Við fáum líka ný vesti.

Og að sjálfsögðu má vel athuga hvort einhver sé með spons sem gæti þá lækkað verðið eða farið í árshátíðar sjóð.

Verðið er 6.146 kr. pr. haus.

Búningarnir verða svo mekrtir hér heima. Postið númerunum ykkar í comment kvekindið..

Eru menn ekki almennt sáttir við þetta ?

Svo lýsi ég eftir leikskýrslu síðan á föstudag, er hún til ?

Thursday, November 15, 2007

Dramatík gegn Húsavík

Jú, afsakið hvað þetta kemur seint, en einhver fróður maður sagði víst "Betra seint en aldrei".

Á föstudag, mættu Völsungar í heimsókn. Við vissum lítið sem ekkert um þetta lið og var undirbúningur eftir því. Losaralegur og menn almennt ekki með hugann við leikinn. Það er það fyrsta sem við verðum að laga fyrir næstu leiki. Ég útnefni Sigga hér með sem yfirmann upphitunarsviðs FH-b.

Heilt yfir var leikurinn slakur, vörnin ekki nógu góð og alltof mörg mistök í sókninni. Völsungur er með ágætis lið og vel skipulagt, en á góðum degi hefðum við átt að klára þetta stærra.

Dómara leiðindin hanga enþá yfir okkur og við verðum að finna farsæla lausn á því máli. Menn ná ekki að einbeita sér almennilega að leiknum þegar við sjálfir erum með flautuna uppí okkur, það er líka vanvirðing við andstæðinginn að bjóða ekki uppá almennilega lausn. Ég er ekki að segja að þeir sem fórnuðu sér í þetta hafi verið slakir, heldur er ég að kalla á alvöru úrræði. Hugmyndir?

En þar sem ég er með leikskýrsluna fyrir frman nefið á mér þá ákvað ég að hamra inn skoruð kvekindi.

Eiki - 3
Hemmi - 4
Hilli - 1
Höddi - 2
Gaui- 4
Siggi - 4
Jói - 1
Haukur - 1
Óli - 7
Beggi - 2
Gaui Kálfi - 5

Held þetta sé svona :)

Svo er það ÍH í Mýrinni á morgun föstudag. Leikurinn hefst klukkan 21.00, mæting 20.15. Tökum þá aðeins til í hausnum á okkur og mætum svoldið stemmdir í leikinn, Raggi ætlar að koma með 30.000 króna eðal freyðivín sem hann keypti á GoldFinger, og ég legg til að menn mæti með nokkur kvekindi.

Siggi, þú stjórnar upphitun!

Og eitt að lokum, þetta er loka útkall vegna búningapantana, ég held þett séu allir. Farið yfir listann og látið mig vita. Ég sendi þessa pöntun niðrí Adidas á morgun!

Toby - Medium
Hilli - XL
Haukur - Medium
Gaui Kálfi - XL
Beggi - Medium
Óli - Large
Danni - Large
Gaui - Medium
Eiki - Small
Siggi - Medium
Raggi - Medium
Hemmi - Medium
Jói - Medium
Gummi Atli - Large
Höddi - Large

Thursday, November 8, 2007

Leikur föstudag

Minni á leikinn á morgun, föstudag, klukkan 21:15 í Kaplakrika við Völsung. Menn verða að vera tilbúnir 20:45. Að sjálfsögðu mæta allir sem geta.
Eins og vanalega þá vantar okkur dómara í verkið. Er ekki málið að borga 3000 á haus per leik? Held að það sé eini sénsinn til að fá einhverja til að taka þetta að sér. Mér finnst að við eigum að halda áfram að fá tvo dómara þó svo að önnur lið geri það ekki. Allir að reyna að redda og láta vita af stöðu mála hér fyrir neðan.

Wednesday, November 7, 2007

Búningapantarnir

Þeir sem hafa pantað búning eru:

Toby - Medium
Hilli - XL
Haukur - Medium
Gaui Kálfi - XL
Beggi - Medium
Óli - Large
Danni - Large
Gaui - Medium
Eiki - Small
Siggi - Medium
Raggi - Medium
Hemmi - Medium
Jói - Medium
Gummi Atli - Large

Það vantar enþá einhverja, eru þið til í að klára þetta sem fyrst svo við getum rifið í okkur þessa pöntun. Og þeir sem þegar hafi pantað tjekkið hvort þetta sé ekki rétt hjá mér.

Sjáumst í kvöld!

Friday, November 2, 2007

Sigur í fyrsta leik!

Jú það fór eins og við óskuðum. Sigur í fyrsta leik og að þessu sinni var það Boltafélagið sem lág í valnum. Lokatölur voru 27 - 37 okkur í hag. Almennt var þetta ágætis leikur af okkar hálfu en við helyptum þeim á köflum óþarflega nærri okkur. Ef ég man rétt þá náðu þeir þó aldrei að komast yfir. Lið boltafélagsins var frekar þunnskipað en nokkrir góðir leikmenn á milli. Einn þeirra fékk rautt þegar hann "réðst" á Gumma Atla.

Byrjunarliðið var eftirfarandi.
Raggi datt í gír í seinni hálfleik og afsannaði regluna um að nær markið sé hans. Óli átti góðann leik og sérstaklega í vörninni þar sem hann djöflaðist í duglega í miðjuni. Jói var öruggur að vanda og skoraði nokkur góð mörk. Ég Hemmi var sveittur á línunni. Siggi sýndi góða takta og hélt boltanum á góðu floti. Haukur var í góðu formi og fór oft illa með lögfræðingana af Bifröst enda kann hann takið á lögfræðingum. Eiki átti einni flottan leik, mörg mörk skoruð úr hraðaupphlaupum eftir frábæra bolta frá Ragga.

Þess ber að geta að Eiki útnefndi sjálfan sig sem mann leiksins!

Höddi, Gaui, Peter, Beggi og Hilli spiluðu allir vel. Þó átti Peter atriði leiksins, annarsvegar tveggjahanda línusendingu aftur fyrir sig og trikk sem engin hafði séð áður, svokallað þrístökk án skrefa með adrenu. Skemmtilegt "töfrabragð sem endaði með því að hann fékk dæmd á sig skref. Sem var því miður bull, en ég skil dómarann vel, þetta leit mjög undarlega út.

Það sem við þurfum að laga fyrir næstu leiki er vörn nr. 1 - 2 og 3. Við áttum svosem fína kafla en á móti liðum með marga góða leikmenn væri þessi vörn ekki nægilega sterk. Þá fengum við líka á okkur alltof mörg mörk.

En heilt yfir góður sigur og nú er bara að halda áfram á sömu braut. Næsti leikur er á föstudag gegn Völsungi.