Thursday, January 8, 2009

Fimmtudagsæfing og bikar

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:00. Frábær mæting í gær og heyrðist á mönnum að það ætluðu flestir að mæta í kvöld líka. Eftirfarandi fékk ég svo sent frá HSÍ í gær:

Sælir,

Dregið verður á morgun í bikarkeppni utandeildar og eru 12 lið skrá til þátttöku.
Dregið verður í 16 liða úrslit og sitja 4 seinustu lið úr potti hjá.
ATH. Afturelding, FH, Fram, Kíklóparnir, Kórdrengirnir, KR og Víkingur eiga enn eftir að greiða og verða þau lið ekki í pottinum ef þau verða ekki búin að greiða fyrir kl.13 á morgun.
Það lið sem kemur fyrr upp fær heimaleik og verður boðið uppá dómara frá okkur ef liðin kjósa það en gegn gjaldi.
16 liða úrslitin eiga svo að klárast fyrir 20. Janúar og verður þá dregið í 8 liða úrslit.
Verið er að skoða það hvort úrslitaleikurinn fari fram í Laugardalshöll sömu helgi og bikarúrslitin en það skýrist þó ekki fyrr en aðeins síðar.
Drátturinn verður sendur út um 15 á morgun.


Það verður semsagt dregið í dag og ég er búinn að borga. Þið þurfið að leggja inn á mig eða koma með 500kr á æfingu í kvöld. Reikningsnúmer: 0545-26-4417 og kennitala 150179-3519.

Ég mæti í kvöld.

15 comments:

Anonymous said...

Gaui mætir pottþétt, með einn rauðan í farteskinu...

kv McGau

Anonymous said...

Siggi mætir

Anonymous said...

reyni að koma, mikið að gera hjá konunni í vinnunni þessa daga, og því mjög útreiknanleg með heimkomu.
kv. Arnar

Anonymous said...

Sorry gaui kemst ekki..

Anonymous said...

Við eigum heimaleik við Kórdrengina í bikarnum. Við verðum að spila leikinn fyrir 20. jan. Mín hugmynd er að fá að spila leikinn sunnudaginn 18. klukkan 17:45. Eftir bikarleik í 2. flokki. Hvað finnst mönnum um það? Svo er spurning hvað við eigum að gera með dómara? Við getum fengið dómara frá HSÍ en gegn gjaldi.

kv. Hilmar

Anonymous said...

hvað erum við að tala um í $$$ fyrir það?
Siggi

Anonymous said...

Ég skal senda HSÍ fyrirspurn um það.

kv. Hilmar

Anonymous said...

4-5 þús per dómara skv HSÍ.

kv. Hilmar

Anonymous said...

8000 kr./ með 10-12 manns
= 650-800 kr.
ég er til í það.
kv. Arnar

Anonymous said...

Það er staðfest að leikurinn mun fara fram sunnudaginn 18. jan í Kaplakrika klukkan 17:45.

Ég væri líka til í að taka dómara á þetta og sleppa við vesenið.

kv. Hilmar

Anonymous said...

sökum þess hvað ég hef verið slappur uppá síðkastið að þá vil ég bjóða uppá eftirfarandi hugmynd

Ég skal dæma þennan leik, en allir mæta samt með pening og verður hann notaður til að kaupa bjór handa FH B

hvernig hljómar það? hægt að fá fullt af bjór fyrir 8þús

eru menn að taka vel í þetta?

kv
Gaui

Anonymous said...

hljómar vel
kv siggi

Anonymous said...

Annað

Ég er búinn að djöflast í geira hall að fá nýja tíma.

hann er nú að bjóða okkur tíma á þriðjudögum kl 21.30

þarna erum við komnir með option að vera kannski þri og fim, sem kæmi miklu betur út finnst mér

en strákar nú fara þeir sem ekki eru í mugg í það mál, það er ekkert að borga 1400 kall á mánuði fyrir að fá frítt á leiki, æfa frítt og það sem fylgir þessum pakka, mér finnst það sjálfsagt mál

jæja endilega commenta drengir mínir

kv

Gaui

Anonymous said...

Annað

Ég er búinn að djöflast í geira hall að fá nýja tíma.

hann er nú að bjóða okkur tíma á þriðjudögum kl 21.30

þarna erum við komnir með option að vera kannski þri og fim, sem kæmi miklu betur út finnst mér

en strákar nú fara þeir sem ekki eru í mugg í það mál, það er ekkert að borga 1400 kall á mánuði fyrir að fá frítt á leiki, æfa frítt og það sem fylgir þessum pakka, mér finnst það sjálfsagt mál

jæja endilega commenta drengir mínir

kv

Gaui

Anonymous said...

top [url=http://www.c-online-casino.co.uk/]uk casino bonus[/url] coincide the latest [url=http://www.realcazinoz.com/]casino bonus[/url] manumitted no store hand-out at the best [url=http://www.baywatchcasino.com/]baywatchcasino
[/url].