Áttum að klára þennan leik. Það er bara svo einfalt.
Þetta voru sprækir strákar, alls ekkert skítalið og það var margt jákvætt við leik okkar.
Ætla ekkert að telja upp einhver nöfn eða svoleiðis en við stóðum okkur margir bara nokkuð vel.
Við skitum á okkur í lokin. Eins og áður hefur gerst. Það er ekki kool. Sama vesen með dómara sem er bara metnaðarleysi. Við eigum að geta reddað dómara fyrir fimmþúsundkall. Ég veit að ég mundi dæma fyrir fimmþúsund. Verst að ég sökka gersamlega í hlutverkinu.
En allavega. Kommon, förum að mæta almennilega og hafa svolítið gaman að þessu.
Áfram FH-b!
Saturday, November 22, 2008
Wednesday, November 19, 2008
Vikuplanið
Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Svo er æfing hjá okkur á morgun, fimmtudag, klukkan 21 og leikur við Kíklópana í Strandgötu á laugardaginn klukkan 16:30. Við þurfum að redda dómurum í þann leik. Það verður síðasti leikur okkar á þessu ári.
Hattarmenn samþykktu að spila leikinn hérna í bænum við tækifæri eftir áramót og bjóðum við þá upp á öl eftir leik.
Annars kem ég ekki á æfingu í kvöld vegna veikinda en vonast til þess að vera hressari á morgun.
Hattarmenn samþykktu að spila leikinn hérna í bænum við tækifæri eftir áramót og bjóðum við þá upp á öl eftir leik.
Annars kem ég ekki á æfingu í kvöld vegna veikinda en vonast til þess að vera hressari á morgun.
Wednesday, November 12, 2008
Æfing í kvöld
Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Þar sem æfingin fellur niður á morgun verða menn að mæta vel í kvöld. Látið alla vita svo við náum dúndurmætingu. Og reynum líka að mæta tímanlega!
Thursday, November 6, 2008
Æfing í kvöld, leikur á morgun
Djöfull er gaman að vera FH-ingur í dag!!! Sérstaklega þar sem ég er að vinna með haukamanni. En ég minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:00 og trúi ég ekki öðru en að það verði fjölmennt. Svo er leikur á morgun við HKR í Kaplakrika klukkan 20:00. Mæting 19:15. Við þurfum að sjálfsögðu að redda dómurum í leikinn. Óli tékkar kannski á strákunum sem voru í fyrra og ef einhverjir aðrir hafa tromp í erminni þá endilega láta vita. Við höldum okkur við það að hver leikmaður borgar 500 kall í dómara per leik.
Ég verð seinn í kvöld og afsaka það fyrirfram og kemst sennilega ekki í leikinn á morgun.
Svo væri gott ef Hemmi gæti framvegis skrifað á íslensku hér á síðuna.
Ég verð seinn í kvöld og afsaka það fyrirfram og kemst sennilega ekki í leikinn á morgun.
Svo væri gott ef Hemmi gæti framvegis skrifað á íslensku hér á síðuna.
Subscribe to:
Posts (Atom)