Sælir piltar
Við höfum fengið nýjan tíma í krikanum á þriðjudögum kl 21.30, með þessu höfum við möguleika á að hafa æfingar með meira millibili því það hefur sýnt sig að við erum ekki að ná góðri mætingu 2 daga í röð.
Leikur á morgun við heimsliðið kl 22.00, mæting kl 21.15 í mýrina í garðabæ.
Mætum ferskir og höfum gaman af, endilega að melda sig hér í comments hverjir ætla að mæta, ég veit að ég mæti og Siggi.
kv
Gaui
Tuesday, January 13, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
12 comments:
,,á þriðjudögum kl 21.30, með þessu höfum við möguleika á að hafa æfingar með meira millibili því það hefur sýnt sig að við erum ekki að ná góðri mætingu 2 daga í röð"
nei, miklu betra að hafa það 3 daga í röð, örugglega betri mætingi ;)
Við vorum þá að pæla í að hafa æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum ef menn vilja. Ræðum þetta eftir leikinn á morgun sem ég mæti pottþétt í.
kv. Hilmar
Beggi mætir
Ég tel það líklegt að ég mæti í leikinn en ég mæti seint.
Í sambandi við æfingarnar, þá tel ég líklegt að ég komist ekki á þriðjudögum þar sem ég er í skólanum til rúmlega hálf 10 í rvk.
kv. Eiki
Sælir, líst vel á þri og fim.
Mæti í kvöld en kemst ekki á sunnudag.
Ég er on í kveld...
Mæti í kvöld. En þriðjudagstíminn er alveg off. Kemst aldrei þá. Ég held að dagurinn hafi nú ekki verið vandamálið heldur tíminn (21:30)
kv. Haukur
hvernig er það hver mætir í kvöld
kv siggi
Eiki mætir ásamt höddanum
ég er til í að mæta ef þið mynduð staðfesta að hún sé kl. 21 í Kapla?
sælir
hvernig fór leikurinn?
ég kemst aldrei á þriðjudögum, er í öðru þá, fimmtudagar hafa alltaf verið verri en miðvikudagar. þannig þetta lítur ekki vel út fyrir mig.
kv. Arnar
jæja
ég talaði við geira áðan og þetta veðrur þá bara á miðvikudögum og fimmtudögum hjá okkur í vetur....ekkert þriðjudagsvesen
kv
Gaui
Post a Comment