Wednesday, October 31, 2007

Æfing í kvöld, leikur á morgun og búningar.

Langaði að henda inn einni léttri þar sem Gaui er alltaf að skammast í mér. Allavega minni á æfingu í kvöld, klárlega skyldumæting fyrir þá sem vilja spila á morgun. Síðan vil ég minna menn á að senda mér mail með infoi um búningastærðir svo við getum pantað draslið sem fyrst.

Sendið upplýsingar á hermann.valgardsson@gmail.com. Ekki síðar en á föstudag. Þá get ég pantað búningana strax eftir helgi.

Svo vinnum veð þennan leik á morgun, það er klárt mál!

Tuesday, October 23, 2007

VallaTorf

Nú þurfum við að spíta í og klára þessa blessuðu tyrfingu. Menn mega ekki gleyma því að í staðin fyrir þetta smá job fáum við húsið frítt. Við ætlum sumsé að klára það sem nokkrir okkar hófu á laugardag.

Mæting klukkan 6 við hringtorgið á Akurvöllum. Ef við náum 10 - 15 manns þá erum við fljótir að þessu.

Takk fyrir commentið Gaui, þetta er sumsé á fimmtudag :)

Staðfestið mætingu að neðan. Þetta er spurning um hverjir verða næstir inná eftir þeim sem þegar hafa tryggt sér rétt til að hefja leikinn á móti Haukum.

Monday, October 22, 2007

Búningar

Ég setti mig í samband við Adidas varðandi búninga fyrir okkur og kannaði með sömu búninga og fótboltinn spilaði í í sumar, nema á svörtum grunni. Þeir eru líka flottir í sniðinu, ekki svona tjald snið eins og oft vill verða.

Verðið á þeim er 3.493,- staðgreitt m. vsk.
Buxur eru frá 1400 kalli.

Við getum fengið þá afgreidda á c.a viku. Settið kostar því um 5000 kall fyrir þá sem vilja bæði.

Eru menn ekki sammála um að fara þessa leið ? endilega commentið á það og mailið mér stærðum sem þið viljið taka. (hermann.valgardsson@gmail.com)

Swingin!

Friday, October 19, 2007

Tyrfing

Tyrfing klukkan 11 núna á laugardag við hringtorg á Akurvöllum.

Skyldumæting, ætti að taka klukkutíma ef mætingin er góð

Mjög mikilvægt að þetta gangi vel

Þetta setti Danni hér inn í comment og að sjálfsögðu mæta allir! Hver mætir í 90mín og vinna á fullu og þá erum við góðir. Allir að láta vita með sína mætingu hér fyrir neðan.

Tuesday, October 16, 2007

Búninganefnd

Þar sem Hilmar Bjarki handboltastjóri FH-b setti mig, Jóa og Gumma í búninganefnd fannst mér við hæfi að við settum vefinn okkar í nýjan búning. En þar hefur verið afar erfitt fyrir utanaðkomandi að posta einhverri stemningu inn.

Fer það illa í fólk ef við færum göltinn hingað ?

Þeir sem vilja skrifa get sent mér póst og ég úthluta réttindum.

Hvað segi þið við þessu ?