Wednesday, February 10, 2010

Góður sigur í gær

Fimleikadrengirnir náðu að landa góðum útisigri í Víkinni í gær. Mikilvægur sigur og menn voru á því að liðsheildin hafi skilað þessum stigum og auðvitað sú staðreynd að Eiki fékk sér loksins Magic fyrir leik.

Aldrei þessu vant þá fór boltinn aðeins að rúlla og menn að velja sér góð færi. Reglan hans Gauja hjálpaði klárlega hérna - „ef þú stendur kjurr og færð boltann – ekki skjóta!“. Menn voru duglegir að rúlla bekknum og vörnin var bara nokkuð góð lengstum. Jökull átti fínann leik, eitt mark og slatta af vörðum boltum.

Ég held að það sé svo bara æfing í kvöld – eru menn ekki klárir í það?

10 comments:

Anonymous said...

ég er til
kv siggi

Anonymous said...

Gaui er klár

svo er línan svona:
ef þú er kjurr - þá er bannað að skjóta.

og þó þú skorir mark þá er þetta samt bara bannað.

klassa regla sem við gætum farið langt á, endar bara með því að gæði skota okkar verða miklu betri - sem skilar sér í fleiri mörkum - eru engin geimvísindi.

svo mæli ég með því að við tökum æfinguna sem siggi var að tala um við mig í gær..nánar í kvöld

Anonymous said...

Ég mæti í kvöld.
kv.
Eiki Magic

Anonymous said...

Gaman að sjá að menn eru að skila stigum í hús. Ennþá skemmtilegra að lesa um nýju regluna. Þetta á eftir að gjörbylta handboltanum. Þessu verður líkt við alley-oop í körfunni og kínverska gripið í borðtennis. Sem allir þekkja að sjálfsögðu!
Annars ætla ég að reyna að mæta í næstu viku og sjá hvort ég drífi á markið.

kv. Hilmar

Dr-Höddi said...

mæti og Jökull líka

Daniel said...

Ef þetta á að vera svona þá þurfum við að útfæra vítin uppá nýtt...

Annars góð og gild regla.

Mæti í kvöld.

Hermann Fannar said...

Mæti í kvöld. Legg til að við skippum fússara og tökum hraðaupphlaup og smá gír í upphitun.

Anonymous said...

Er ekki leikur í kvöld (12/2/10) móti Stórveldinu?

Ég er ON

kv.
Ginger

Anonymous said...

Ju mikid rétt og eg mæti
Kv siggi

Hermann Fannar said...

Ég mæti!