Fyrsti leikur okkar á nýju ári er í Mýrinni á fimmtudaginn klukkan 21:30 við Heimsliðið. Það er ekki enn búið að staðfesta alla leiktíma en það klárast væntanlega á næstu dögum Þið getið fylgst með því hér: http://www.hsi.is/Motamal/mot_0800001882.htm
Annars reikna ég ekki með því að vera meira með í vetur sökum meiðsla og anna við heimilisstörfin. Reyni kannski að mæta á eina og eina æfingu ef heilsan leyfir. Annars óska ég ykkur bara velgengni í leikjunum framundan og ég reyni að láta vita hér ef ég fæ einhverja pósta um frestanir á leikjum eða eitthvað þess háttar.
Tuesday, January 12, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
58 comments:
Er ekki æfing í kvöld?
Ég mæti ef hún er
kv. Eiki
Ég mæti
kv
Siggi
Ég mæti í kvöld.
Hvernig er það...erum við ekki með í bikarnum? Tók eftir því á hsi síðunni um daginn að við vorum ekki skráðir.
kv ób
ég er tæpur á æfingu í kvöld.
Ætla á landsleikinn og ég veit ekki hvort ég nái æfingunni.
kv,
Beggi
Ginger og Höddi ætla að koma á æfingu og kenna ykkur smá handsbolta og auðvita komum við í leikinn á morgun
Ég mæti í kvöld. Sorglegt að missa Hillann spurning hvort þú snúir þér ekki bara alfarið að þjálfun FH-B.
Kv. Haukur
Ég stefni á að mæta
Kv.
GRS
Sælir, komst ekki í gær og get ekki verið með í kvöld, verð á Akureyris.
Get ekki verið með í leiknum í kvöld kvöld vegna hnémeiðsla..
kv. Eiki
ég er tæpur í leikinn í kvöld. kem ef ég næ að redda pössun fyrir stelpuna.
kv,
Beggi
hey Beggi koma hérna, hvað er þessi stelpa gömul, bara taka hana með eða eitthvað - ekki þessa linkind...reddessu
ég mæti að sjálfsögðu og tek hornið fyrst að eiki er meiddur og beggi í ruglinu...
kv
Gaui
Óli b mætir að sjálfsögðu...erum við búnir að fá staðfestingu á að leikurinn verði?
kv ób
hvernig endaði leikurinn við Heimsliðið?
tap með tveimur mörkum
Víkingsleikurinn sem er settur á 23. jan verður frestað. Verður hugsanlega 30. jan en það er þó ekki búið að staðfesta það. Læt vita um leið og ég fæ það staðfest.
kv. Hilmar
æfing í kvöld?
Ég mæti.
kv,
Beggi
Stefni á að mæta
Kv.
GRS
Ég mæti
Eiki
mæti í kvöld
Mæti
Daníel
Húsið er lokað vegna kvk leiksins og er því engin æfing
kv. Eiki
hmmm...kvennaleikurinn ætti að vera búinn hálftíma áður en æfingin okkar er...viss með þetta Eiki?
kv
jóiskag
Það verður æfing í kvöld! Ekkert bull og allir að mæta.
kv
jóiskag
jább, allir að mæta
Húsverðirnir voru eitthvað að rugla í mér
kv. Eiki
Eiki, þeir hafa bara ekki nennt að fá þig í húsið í kvöld.
Ég mæti allavegana
kv Óli b
Eruð þið búnir að double tékka með æfinguna í kvöld. Ég væri til í að mæta ef það verður æfing. Leikurinn ætti nú að vera búinn áður en æfingin byrjar er ekki hægt að díla við húsverðina getum þess vegna hjálpað til að ganga frá.
Kv. HIH
Illa tímasett komment hjá mér sem fellur um sjálft sig. Ég mæti glaður.
kv. HIH
Er einhver á leið á æfingu úr suðurhluta bæjarins??? Vantar tilfinnanlega far á æfingu ef maður á að komast...
Kv.
GRS
mæti
ég er á ölduslóð...hvar ert þú?
kv.
jóiskag
ER á KVistavöllum 38 :), næsta húsi við Bláfjöll :)
Kv.
GRS
Kem
kv.
Ginger
mæti
kv,
Beggi
Hvað segiru Jói, er séns á fari????
kv.
GRS
Leikur á morgun 27 jan
ég skal dæma fyrir pening því ég er búinn að vera veikur og held að það sé ekkert gagn í mér
kv siggi
Sælir piltar. Minni ykkur á að það þarf að senda úrslit og hálfleikstölur eftir leikinn á morgun á robert@hsi.is
Reynið svo að geta eitthvað!
kv. Hilmar
ég fékk rautt seinast þegar siggi dæmdi, en er tilbúinn að fyrirgefa honum og fær hann mína blessun
Ég er til í að styrkja Sigga,
kv.
Ginger
sælir,
Er leikurinn ekki klukkan 21:30 í kvöld?
Ég mæti.
kv,
Beggi
elsku siggi minn, þú bara dæmir fyrir félagana, taka einn fyrir félagana...það eru allir búnir að taka þetta á sig áður, og enginn af okkur er að taka fyrir þetta, þú ætlar þó ekki að fara að rukka okkur fyrir að gera eitthvað sem við allir erum að gera bara fyrir hvorn annan??
ekki taka ofdekraða unglinginn á þetta sem gerir ekkert nema fá pening í vasann...þú ert ekki þannig.
kv
Gaui
Vantar ekki markmann?
Ég mæti.
kv,
Óli B markmaður.
Haukur og Ólafur Björnsson mæta í leikinn. Fínt að fá Óla markmann líka, ekki nota Óli B það er of ruglandi. Allt í lagi að henda smá klinki í ofdekraða unglingin það er nú ekki svo gaman að dæma þessa leiki og auk þess dæmir hann frekar með okkur ef við borgum honum vel.
Kv. HIH
hey haukur, það er ekki hægt að taka mark á þér þar sem þú ert ofdekraðasti unglingur í evrópu, myndir aldrei fatta hvað ég er að benda á hérna...
hehe
kv
Gaui
Ég mæti í kvöld og til í að smella pensa á Sigga fyrir að dæma.
Ég er hættur við að mæta eftir skítkast frá risasveppnum lét óla hringja í Jón Karl
kv siggi
Ég mæti í kvöld og get þá staðið milli stanganna.
Fúsman
mæti
jæja, það er þá staðfest, siggi ætlar að taka ofdekraða unglinginn á þetta, fara bara í fýlu ef hann fær ekki það sem hann vill.
þér dettur ekki í hug að borga þegar aðrir í hópnum eru að dæma en vilt síðan ekki gera það sama nema fá greiðslu fyrir?
hver er munurinn á þér og okkur hinum?
svo er þetta ekkert skítkast, bara biðja um að taka einn fyrir félagana, þetta er bara alveg rétt hjá mér og það vita það allir, ekkert ílla meint....stundum þarf bara aðeins að hreyfa við mönnum og það að ætla að rukka fyrir þetta sem einn af hópnum er bara lélegt og það sjá það allir
ég er kannski bara sá eini sem segir það, en ég er líka elstur og feitastur!
með stuðkveðju og ég mæti að sjálfsögðu í kvöld
kv Gaui
p.s. ef jón kemst ekki þá skal ég glaður dæma, og það þarf ekki að borga mér, geri það frítt eins og í öll hin skiptin(fyrir félagana)
Ég mæti. Ætla ekki að vera með nein leiðindi en ég skil nafna alveg í þessu. Ég og fleiri hafa dæmt leiki hjá okkur án þess að vera taka greiðslu fyrir :) og finnst það bara eðlilegt að hafa það svoleiðis. Gaui gaf manni meira að segja óþarfa 2 mín og tók ekkert aukalega fyrir það.
En nú tökum við helv... leikinn í kvöld og jörðum þessa ands...
Kv.
GRS
ég mæti í kvöld
Vantar ekki eina fitubollu í viðbót?
kv,
Trausti
Djöfull væla gaujarnir ekki eins og ég hafi ekki dæmt
fuckið ykkur bara á hansen eftir leikinn
kv siggi
Næsti leikur hjá okkur er "Lau. 30.jan.2010 13.30 Víkin Víkingur - FH" en landsleikurinn er kl.13:00... Hvað gera bændur þá
er ekki hægt að hafa leikinn kl.11 eða kl 15:30 ??
kv.
Ginger
Það hlýtur að vera hægt fresta leiknum yfir á annan dag svo maður getur fengið sér einn kaldan yfir leiknum. Það er nátturulega engin sem hefur áhuga á handbolta að fara að mæta í leikinn.
Kv. HIH
Sammála síðasta ræðumanni. Við förum nú ekki að eyða þessari helgi í hreyfingu. Þeir frestuðu síðast þegar við vorum ready, við frestum núna. Sé ekki að fyllibytturnar í víkingi séu á móti því.
kv óli b (markmaður eða ekki)
Ég skal heyra í þeim með frestun.
Hvernig endaði annars þessi fjandans leikur á móti KR - þurfum að senda á HSÍ.
kv,
Beggi
Búið að fresta leiknum á morgun við Víking.
kv,
Beggi
Engin æfing á miðvikudagskvöldið. Leikur í Varmá móti Júmboys sem við VERÐUM að vinna. Nú er bara að fara stilla hausinninn á þennan leik. Leikurinn byrjar kl. 21.
Kv.
GRS
Post a Comment