Tuesday, December 15, 2009

Dagskráin

Sigur á Víkingum tryggði okkur sæti í efri deildinni eftir áramót. Veit einhver lokastöðuna úr leiknum svo ég geti sent HSÍ? Einnig væri gaman að fá að vita hverjir mættu og hverjir voru að standa sig best.

Eftirfarandi fékk ég sent frá HSÍ:
Í janúar og febrúar er fyrirhöguð bikarkeppni utandeildarliða líkt og var haldin fyrir ári síðan.
Skráningarfrestur er til 23.desember og er þátttökugjald kr. 7.000.
Senda þarf skráningu á robert@hsi.is og þarf að koma fram nafn, heiti liðs og upplýsingar um tengilið ásamt kvittun fyrir greiðslu.

Annars minni ég á æfingu miðvikudag klukkan 21:30 og leik við Júmboys í Kaplakrika á föstudaginn klukkan 20:00. Er reyndar ekki viss um að þeir mæti því það er jólahlaðborð hjá þeim klukkan 20:30 og þeir báðu um að flýta leiknum sem er ekki hægt. Læt vita um leið og ég veit meira. En ég er handónýtur þannig að ég er ekkert að fara að mæta á næstunni.

15 comments:

Anonymous said...

Við unnum 25-23.
Leikurinn á föstudag er úrslitaleikur í riðlinum - liðið sem vinnur tekur efsta sætið. Legg því til að allir mæti í stuði með öl í töskunni og við flengjum þessa gamlingja. Nú ef þeir mæta ekki þá getum við samt sem áður fagnað er það ekki?

Annars finnst mér að við ættum að taka þátt í þessari utandeildarbikarkeppni.....alveg pottþétt.

Kv.
Jóiskag

Anonymous said...

Júmboys gefa leikinn þannig að við unnum riðilinn. Látið vita í Krikanum í kvöld að það verði ekki leikur. En við eigum þá æfingartíma á föstudaginn klukkan 19:30 ef menn vilja. Þið athugið bara stöðuna á æfingu í kvöld og látið staffið vita hvað þið ætlið að gera.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Sko okkur, duglegir strákar...

Anonymous said...

verður ekki mæting í kvöld??

kv,
Beggi

Anonymous said...

Sælir

Haukur mætir í kvöld. Óli er ennþá að reyna fá leyfi frá tilvonandi eiginkonu sinni um að fá að mæta, en mér skilst að þær samningaviðræður gangi ágætlega.

Kv. HIH

Anonymous said...

þessi sigur á víking var tekinn á liðsheildinni, einnig hjálpaði það okkur að það voru engir sóló gítarleikarar eins og óli heimis, haukur og gaui lögga, sem halda stundum að þeir séu í eins manns liði og skjóta bara endalaust úr vonlausum færum og eyðileggja leikinn....þegar við náum að spila aðeins þá erum við með ágætis lið nefnilega.

kv
Gaui kálfi

Unknown said...

Ég kem í kvöld og væri alveg til auka æfingu á FÖZ ef Júmboys koma ekki. Jói fékk flottasta gulaspjaldið sem hægt var að fá :) . auðvita skráum við okkur í bíkarkeppnina.

kv.
Ginger

Unknown said...

Fékk leyfið...ég mæti í kvöld á æfingu.

Kemur það einhverjum á óvart að við höfum unnið riðilinn??
Ekki mér!!

Næst á dagsrká er þá bara að vinna bikarinn;)

kv ób

Anonymous said...

Sælir, ég kemst ekki á æfinguna í kvöld þar sem konan leyfir mér það ekki og ef ég ætla að eiga einhvern séns á kynlífi á árinu 2010 þá verð ég að hlýða henni.

Er hins vegar mega til í æfingu á föstudagskvöldið og jafnvel einn tvo á Hansen/Aroma eftirá.

Kv.
Jóiskag

Anonymous said...

Ég kemst ekki í kvöld á æfingu og ég er alveg til í æfingu á föstud.

Fúsman

Anonymous said...

kem í kvöld.
kv. Eiki

Anonymous said...

Gaui minn, held að þú ættir nú aðeins að opna augun og loka munninum, bæði á netinu og á æfingum :). Þetta er einmitt eitthvað sem lyftir upp móralnum hjá liðinu... skynsamur drengur...

Kv.
GRS

Ólafur Fannar Heimisson said...

Kálfi þetta er alveg högg undir beltið hjá kallinum :) en ég er ánægður með þetta flottur sigur hjá strákunum. En eru ekki allir sammála að við eigum að taka þátt í bikarnum? ég er allavega til

Anonymous said...

var að fá póst frá Sigga Bakara um að við getum ekki verið með æfingu í kvöld:
það er búið að setja á bikaleik í 3.fl karla FH-KA kl 20 sem átti að vera
kl 16 á laugardaginn en var flýtt vegna slæmrar veðurhorfa á laugardaginn í
staðinn ? svo húsið er upptekið en þið getið tekið æfingu kl 15 á
laugardaginn, þú lætur strákana vita svo þeir komi ekki fýluferð.

Kv Siggi

Þannig að látið vita í Krikanum ef þið ætlið að hafa æfingu.

kv. Hilmar

Anonymous said...

hehe

þetta var bara skot sem mig langaði að skjóta, menn taka því bara eins og þeir vilja, það er allt í lagi, soldið gróft viðurkenni það alveg, smá kaldhæðni kannski með...en það er allt í lagi.

varðandi móralinn í liðinu þá held ég að löggan ætti ekkert að vera að hafa áhyggur af því.

kv

the real mr gau