Wednesday, December 2, 2009

Dagskrá vikunnar

Stórsigur á Þrótti í síðasta leik og það væri frábært ef einhver gæti sett inn smá leikskýrslu fyrir okkur sem mættu ekki. Heyrði að Jói hefði snúið leiknum við.
Minni fyrst á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Síðan á föstudaginn er leikur við Lukkuna klukkan 19:45 í Kaplakrika. Mæting 19:15 og þar sem þetta er okkar heimaleikur verðum við að redda dómara. Spurning hvort Óli Björns geti heyrt í spinnernum?
Síðan er leikur við Kórdrengina í Mýrinni á sunnudaginn klukkan 12:00. Ég fékk þá semsagt til að flýta leiknum svo hann væri ekki á sama tíma og FH vs Haukar í bikarnum.
En látið vita hér fyrir neðan með mætingu á æfingu og í leikina.

36 comments:

Anonymous said...

Mæti í kvöld.

Varðandi leikina þá vonandi reddast það, ég þarf að redda pössun.

kv,
Beggi

Anonymous said...

Gleymdi að nefna það að Júmboys leikurinn verður í Kaplakrika föstudaginn 18. des klukkan 20:00. Annars stefni ég á mætingu í kvöld og sé til hvernig skrokkurinn verður um helgina.

kv. Hilmar

Anonymous said...

mæti í leikinn á sun, var að heyra að ég ætti vinstri horna stöðuna eftir frammistöðu síiðasta leiks... kemst ekki á fös
kv
Gaui kálfi

Anonymous said...

Er ekki viss með æfingu í kvöld er búinn að vera veikur en ætti að vera orðinn góður á föstudaginn
kv siggi

Anonymous said...

Er ekki viss með æfingu í kvöld er búinn að vera veikur en ætti að vera orðinn góður á föstudaginn
kv siggi

Unknown said...

Ég mæti í kvöld og býst við að leikirnir séu pís of keik

kv óli b

Anonymous said...

Ég ætti að komast í kvöld og býst við því að mæta í báða leikina.

kv.
GRS

Daniel said...

Sælir, ég er ekki viss um að koma í kvöld. Mæti hinsvegar í leikina á fös og sun

Anonymous said...

Kem á æfingu í kvöld og í báða leikina um helgina

kv. Eiki

Anonymous said...

Kem á æfingu í kvöld og líklega í báða leikina.

Kv. Haukur

ólafur Fannar Heimisson said...

ég mæti á lukku leikinn, maður missir ekkert af derby slag

Anonymous said...

Ég er 50/50 í leikinn á morgun og kemst ekki í leikinn á sunnudaginn.

Fúsman

Anonymous said...

Ég kemst ekki í kvöld en reyni að mæta á sunnudaginn. En munið að redda dómara fyrir leikinn í kvöld. Var Óli búinn að heyra í Jóni Karli? Þið setjið svo úrslitin í leiknum hér inn svo ég geti sent HSÍ.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Hvernig er með markmenn þar sem Fúsmann mætir ekki ætluðu Jökull og Óli að mæta. Ég hitti nokkra Lukkumenn á Hansen í gær og þeir voru svakalega kokhraustir og sögðust ætla að stilla upp sínu allra sterkasta liði. Einnig sögðust þeir vera búnir að spara sig fyrir þennan leik allt tímabilið og þess vegna tapað svona mörgum leikjum.

Kv. Haukur

Anonymous said...

Óli ætlaði að mæta og ég held að Jökull ætli líka að mæta.
kv. Eiki

Unknown said...

Ég mæti í kvöld. Jón Karl ætlar að dæma þannig að menn verða bara að muna eftir einum rauðum seðli.

kv Óli b

Anonymous said...

43-30 fyrir FH b. Stórsigur þar sem allir komust á blað þ.e. útileikmennirnir.

Kv.

Ólafur Fannar Heimisson said...

hvernig fór leikurinn á móti kórdrengjunum?

Ólafur Fannar Heimisson said...

kemst ekki í leikina á móti víking og jumboys

Anonymous said...

FH b vann með 8 mörkum...

Daniel said...

36-28

Anonymous said...

Rósir eru rauðar,
fjöllin eru blá.
Hverjir eru bestir?
FH!

Anonymous said...

Æfing í kvöld??

Beggi mætir

Dr-Höddi said...

höddi og andri mæta

Anonymous said...

Eiki mætir

Anonymous said...

Hverjir mæta í leikinn á laugardaginn klukkan 15 á móti Víking? Er að spá í hvort menn séu nokkuð í prófum eða álíka rugli og mæti ekki. Ég verð reyndar að vinna og kemst því ekki en er ónýtur hvort sem er þannig að það skiptir ekki máli. Endilega látið vita með mætingu sem fyrst hér fyrir neðan.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég mæti í leikinn á móti víking, en er ekki hægt að flýta honum til 14 því að Meistó er að spila við Val að Hlíðarenda kl 16??
kv. Eiki

Anonymous said...

Gaui mætir
tökum bara seinni hálfleik á hlíðarenda strax á eftir...
kv Gaui (ekki lögga og ekki skuldbindingarlaus kynning)

Anonymous said...

Um að gera að reyna að flýta leiknum á laugardaginn ef það er hægt, jafnvel til 12 :).

Kv.
GRS

Anonymous said...

Ég var að tékka á víkingunum og þeir geta ekki fært leikinn. Hvorki fyrr um daginn né annan dag. Þetta var eini tíminn sem þeir gátu fengið fyrir jól. Þannig að menn mæta bara í leikinn og taka svo seinni hálfleik að Hlíðarenda.

kv. Hilmar

Anonymous said...

ég stefni á að mæta.
kv. daniel

Anonymous said...

Held að Valli mæti líka þannig að það eru komnir 5. Svo hljóta einhverjir fleiri að mæta. Þið hringið allavega út menn ef það verða ekki fleiri búnir að melda sig á morgun. Mæting í Víkina klukkan 14:30.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Kemst þá líklega ekki.

kv.
GRS

Anonymous said...

Ég kemst því miður ekki í dag...

kv óli b

Anonymous said...

hey strákar, koma svo og mæta, þetta er liðið í 2. sæti í deildinni og lykilleikur hjá okkur.

koma svo

kv
Gaui (ekki lögga)

Hermann Fannar said...

Ég kem...