Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Geri ráð fyrir fanta mætingu þar sem það eru tveir leikir fram undan um helgina. Einnig voru margir sem mættu á árgangamótið heitir fyrir að mæta á æfingar hjá okkur.
En við eigum heimaleik á móti HKR á föstudaginn í Krikanum klukkan 21:30. Kannski nauðsynlegt að hefja dómaraleitina strax. Spurning hvort Óli Björns geti tékkað á Jóni Karli en við erum að tala um að hver leikmaður borgar 500kr eins og venjulega. Látið endilega vita hér í commentunum hvort þið getið reddað dómara.
Síðan er leikur í Mýrinni í Garðabæ við Kórdrengina á sunnudaginn klukkan 15:30. Sem ég er að sjá núna að er alveg fáránlegur tími þar sem Haukar vs FH er klukkan 16:00. Á ég að reyna að láta fresta leiknum? Látið skoðun ykkar í ljós hér fyrir neðan og einnig hvort þið mætið á æfinguna og í leikina.
Wednesday, November 4, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
20 comments:
Ég kem ekki í kvöld og heldur ekki á fös
kv siggi
Ég kem ekki á æfingu í kvöld og ekki í leikina heldur, er í USA.
Þið þurfið að sækja pixið heim til mín, hver ætlar að gera það?
já, kv. Eiki
Reyni að mæta í kvöld...en missi af næstu 3 leikjum. Verð erlendis í rúma viku frá fös-lau
Ég mæti í kvöld og í báða leikina ef við viljum spila á sunnudaginn.
ég get náð í pixið, en ég mæti í kvöld, en kem ekki á sunnudaginn ef leikurinn á að vera kl.15:30, það er bara rugl tími
ég kem í kvöld og í leikinn á föstudag, en á sunnudag verð ég á Ásvöllum...það er bara þannig...
kv.
skagenfjord
Óli B mætir í kvöld. Og get mætt um helgina, hvenær sem er.
kv ób
Heyrði í Tíkallinum og hann er volgur á að taka að sér að dæma leikinn annaðkvöld.
Heyri betur í honum á morgun og þá kemur þetta í ljós.
kv ób
Búinn að fá staðfest frá HKR að þeir mæta í kvöld en ekki ennþá búinn að fá svar frá Kórdrengjunum með að fresta leiknum á sunnudaginn.
kv. Hilmar
Hvernig er dómarastatus og hverjir mæta í kvöld??
Sé að Óli Björns, Skagafjörðurinn, ég, Höddi og Jökull mæta en hvað með alla hina??
kv. Hilmar
Beggi mætir í leikinn í kvöld.
Er hins vegar ekki að mæta á sunnudaginn ef leikurinn verður á óbreyttum tíma.
kv,
Beggi
Gaui er að fara að mæta alveg óvænt, pókerinn sem átti að vera í kvöld dettur niður.
en þar sem ég er að drepast í kviðnum að þá get ég bara verið í marki. er það ekki í lagi?
kv
Gaui
Við grátum ekki að fá markmann sem ver pottþétt 25+!
kv. Hilmar
ég kem í kvöld
hehe það er rétt hilli, allt undir 25 boltum er skandall...
kv
Gaui
jón karl er til á flautuna fyrir 5 kúlur.
Þannig að menn mæta bara með 500 kallinn og málið er dautt.
kv ób
Kemst ekki í kvöld en það er spurning með sunnudaginn. Kemst ekki ef leiknum er flýtt eða hann verður á þessum tíma.
Kv.
GRS
Mæti í kvöld. Svo þarf Stykkið að fara að skoða forgangsröðina handbolti fyrst svo póker.
Kv. Haukur
Hef ekki fengið svör frá Kórdrengjunum ennþá en þeir eru að spila við Lukkuna á sama tíma og við í Krikanum í kvöld og við græjum þetta þá.
kv. Hilmar
Post a Comment