Friday, November 6, 2009

Búið að fresta sunnudagsleiknum og úrslit

Kórdrengirnir samþykktu að fresta sunnudagsleiknum og finnum við nýjan tíma á hann síðar.

En stórsigur á móti afar slöku liði HKR 34-17 í kvöld en staðan var 17-7 í hálfleik. Samt var markmaðurinn þeirra örugglega með 20+ varin. Mörkin okkar skoruðu:
Beggi 10
Óli Heimis 7
Haukur, Andri, Valli og Óli Björns 3 hver
Jökull, Höddi, Jói, Elli og Hilmar 1 hver
Vörnin var öflug hjá okkur með Begga og Óla Björns sem bestu menn. Annars voru allir að spila ágætlega þó svo að skotnýtingin hefði mátt vera betri. Stykkið og Jökull skiptu markmannsstöðunni bróðurlega á milli sín og stóðu báðir sig vel. Ólarnar stóðu sig báðir vel en Beggi klárlega maður leiksins.

Síðan átti ég alltaf eftir að henda inn smá umfjöllun um leik okkar á móti Árborg sem við unnum fyrir austan 30-27. Því miður erum við ekki með markaskorara úr þeim leik en ég held að Óli Björns hafi verið atkvæðamestur. Fínn fyrsti leikur hjá okkur þar sem við byrjuðum vel og náðum nokkurra marka forskoti strax í byrjun en misstum það niður í lok fyrri hálfleiks. Um miðjan seinni hálfleik náðum við frumkvæðinu á nýjan leik og létum það aldrei af hendi gegn annars fínu Árborgarliði. Stykkið var pottþétt maður leiksins því hann var með hátt í 30 varin. Eins og þeir sungu í ÍH laginu forðum: "eftir 30 skoruð og 20 varin við brunum allir beint á barinn". En við brunuðum reyndar á KFC þars sem kalla þurfti út aukavakt - og það bara fyrir mann leiksins. Svo er við hæfi að yfirfæra í lokin á okkur annað erindi úr fyrrnefndu ÍH lagi:

Rósir eru rauðar,
fjöllin eru blá.
Hverjir eru bestir?
FH!

p.s. Muna ekki allir eftir markinu hans Jóa á móti Árborg?

6 comments:

Anonymous said...

jú ég man sko eftir markinu hans jóa, klárlega vendipunktur leiksins, þetta mark kláraði þá.

kv
Gaui

Unknown said...

Gleymist seint!!

Æfing í kvöld??
Ég mæti allavegana...

kv ób

Anonymous said...

Æfing í kvöld og leikur föstudag í Digranesi. Ég efast um að ég mæti í kvöld en stefni á mætingu á föstudaginn.

kv. Hilmar

Ólafur Fannar Heimisson said...

ég mæti í kvöld

Anonymous said...

Ég mun koma í kvöld

...og ég mæti líka á æfingu.

Kv.
JóiSkag

Anonymous said...

Ég lét sjá mig í kvöld og líklega í leikinn á fös líka.

kv. Haukur