Tuesday, October 13, 2009

Leikur miðvikudag og FH vs Valur fimmtudag

Minni á leikinn á morgun, miðvikudag við Sleipni í Kaplakrika klukkan 21:45. Mæting 21:00. Eins og undanfarin ár mæta allir sem komast. Við eigum enn eftir að redda dómara og bið ég alla um að gera sitt besta í því. Það þurfa allir að koma með 500kr sem fara í að borga dómara þannig að dómarinn er að fá c.a. 5000 fyrir auðvelda vinnu. Það hlýtur einhvern að vanta pening. Endilega setjið sem fyrst í comment hér fyrir neðan hvort þið mætið í leikinn og einnig ef þið getið reddað dómara.

Síðan var ég að fá eftirfarandi póst frá Togga:

Sælir.Við höfum lent í ótrúlega miklum forföllum í kringum leikinn á fimmtudaginn (stjórnarmenn erlendis, lykilstarfsmenn veikjast o.s.frv.) og því vil ég biðla til ykkar - unglingaráðs, Muggs, aðalstjórnar og FH B - um aðstoð í kringum leikinn. Ég er búinn að biðja Lukkuna um það sama.Sigursteinn ber hitann og þungann af þessum leik en það þarf fólk í ábyrgðarstöður til að ekki leggist allt á einn mann og því bið ég ykkur að aðstoða við undirbúning eins og hægt er og manna nokkrar starfsstöðvar í kringum leikinn.Ef þið hafið fólk til að létta undir og láta þetta allt ganga vel skuluð þið svara þessum pósti með fjölda og Sigursteinn úthlutar verkefnum.Ég vona að þið takið vel í þessa beiðni okkar því aðstæðurnar eru mjög óvenjulegar en við viljum engu að síður gera fimmtudaginn að degi sem gleymist seint og þurfum aðstoð sem allra flestra til þess að svo megi verða.Kær FH-kveðja,Þorgeir.

Við mætum væntanlega flestir á leikinn þannig að nú er bara að mæta klukkutíma fyrr og hjálpa til við hvað sem til fellur. Veit að það yrði mikils metið innan félagsins. Látið líka vita hér í commentunum hvort þið mætið ekki pottþétt í þetta líka og ég læt svo Steina og Togga vita hverjir mæta.

18 comments:

Anonymous said...

Beggi mætir í leikinn á morgun.

Get kannað með óla bróður stadus á dómarastörfum - er þó hóflega bjartsýnn á að hann hafi tíma í það.

Varðandi fimmtudaginn þá á ég erfitt með að lofa mér 100% í það, en ef ég kemst fyrr þá er ekkert mál að hjálpa til.

kveðja,
Beggi

Anonymous said...

Mæti á morgun og set stefnuna á fimmtudaginn. Veit ekki hvort maður kemst kl. 17 eða 18 eða hvað. Læt vita um það síðar.

Kv.
GRS

Anonymous said...

Hver vill fá skuldbindingalausa fræðslu um Nuskin og Pharmanex (fæðubótarefni sem eru þau bestu á markaðnum) viðskiptin? Þú getur verið kominn með tekjur sem þig órar ekki fyrir eftir nokkra mánuði...

Þetta er fyrir alla,
látið mig bara vita ef þið hafið minnsta áhuga eða bara forvitni

kv.
GRS

Unknown said...

Óli B mætir í leikinn á miðvikudag. Á eftir að heyra í markmanninum, er samt bjartsýnn.

Ég mun ekki mæta á FH leikinn á fimmtudag og þar með get ég ekki lagt hönd á plóg.

Ef þið viljið fá kynningu á Herbalife vörunum skal ég glaður taka ykkur í einkatíma, að vísu verðið þið að kaupa eitthvað af mér ef að þið þiggið kynningu;)

kv ób

Unknown said...

Sælir

hann Atli markmaður kemst ekki í leikinn annað kvöld.

Svo annað, hvernig er með búning, er hægt að fá svoleiðis einhversstaðar? á kannski einhver auka til að lána mér á morgun?

kv ób

Anonymous said...

Slæmt að markmaðurinn komist ekki en ég verð þá væntanlega í markinu þannig að þú getur fengið minn búning Óli.
kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég mæti í leikinn en veit ekki hvort ég komist á leikinn kv siggi

Hermann Fannar said...

Ég mæti í kveld.... Óvíst með morgundaginn :S

Anonymous said...

Gaui mætir

er svosem alveg til í að dæma ef enginn fæst í verkefnið, en ég geri það ekki frítt, vil fá mikið mikið.

kv
G

Er löggan síðan ekki að grínast með þessa skuldbindingarlausu fræðslu á fæðubótarefni???

Anonymous said...

Ég kem í leikinn á morgun og get alveg hjálpað til á fimmtudag.

Ég get einnig haldið fyrir ykkur skuldbindingalausa kynningu á allskyns förðunar- og snyrtivörum ef þið viljið?? látið mig vita ef það er einhver áhugi. :) haha

kv. Eiríkur Stílisti :D

Anonymous said...

Nei ekkert grín Gaui minn, þetta er bara spurning um hvort fólk vill góðan möguleika á talsverðum aukatekjum, þess vegna datt mér í hug að bjóða mönnum þetta.

Kv.
GRS

Anonymous said...

já allt í góðu með það, fannst bara þessi lína "skuldbindingarlausa fræðslu" hljóma soldið tryggingasölumanns-leg...samt góður frasi

Dr-Höddi said...

mæti í kvöld

Anonymous said...

Það veitir nú ekkert af því að hafa Gaua til að bakka mig upp í markinu þannig að ef það er einhver séns að redda dómara þá væri það betra. Beggi, ertu búinn að heyra í bróður þínum? Og eruð þið hinir búnir að tékka á málum?
kv. Hilmar

Unknown said...

Jón Karl Björnsson er til í að dæma fyrir okkur í kvöld. Bauð honum 5000 kall fyrir giggið og hann þáði.

Menn mæta þá bara með 500 kall með sér og málið er dautt.

kv ób

Anonymous said...

Og svo ef það verður meira ein 5000 kr. að þá fer afgangurinn í árshátíðarsjóð (fyrir bjórinn)

Anonymous said...

Ég mæti í kvöld með pening fyrir dómara og þúsarann fyrir keppnisgjöldum

Annars get ég boðið upp á skuldbindingarlaust kynlíf á flestum tímum sólarhringsins. Er gríðarlega tungufimur og ekkert sérstaklega vandlátur. Látið maka ykkar endilega vita.

Kv.
JóiSkag

ps. er með meðmæli frá yfir þremur konum.

Anonymous said...

það verða engar skuldbindingarlausar sendingar í kvöld, allavega ekki mínar sendingar, skuldbind þann sem fær sendinguna að gefa á mig aftur, að öðrum kosti verður sendingin ekki send, og alls ekki skuldbindingarlaus.

kv
Gaui