Wednesday, October 28, 2009

Æfing í kvöld ofl.

Byrja á að minna á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Látið vita með mætingu hér fyrir neðan.

Það er búið að færa leikinn sem við áttum að spila næsta sunnudag yfir á þar næsta sunnudag vegna lokunar í Mýrinni. Næsti leikur hjá okkur er því heimaleikur á móti HKR föstudaginn 6. nóv klukkan 21:30. Svo sunnudaginn 8. nóv er þá útileikurinn á móti Kórdrengjunum í Mýrinni klukkan 15:30. Þannig að það verður alvöru helgi þá.

Sleipnir eru búnir að draga lið sitt úr keppni þannig að 10-0 sigurinn dettur út.

Við í 79 árgangnum erum að reyna að smala í lið fyrir árgangamótið og okkur vantar ennþá nokkra. Þannig að allir sem hafa áhuga á að vera með, úr hvaða árgangi sem er, endilega láta okkur vita. Held að þetta mót verði algjör snilld og endað í öli og stemmara á Vegamótum eftir mót.

Fyrir þá sem ekki vita þá unnum við glæsilegan útisigur á Árborg 27-30 á sunnudaginn. Ég reyni að henda inn umfjöllun um þann leik sem fyrst.

11 comments:

Ólafur Fannar Heimisson said...

ég veit ekki hvort ég kemst á æfinguna í kvöld, en ég er alveg til í að vera með 79 árganginum á mótinu ef þið viljið einn ungan

Anonymous said...

Ég kem ekki á æfinguna vegna meiðsla en vonast til að vera orðinn skárri á árgangamótinu. Og Óli, að sjálfsögðu viljum við fá einn ungan og ferskan.
kv. Hilmar

Anonymous said...

ég kem á æfingu í kvöld.

Eiki

Anonymous said...

Ég stefni á mætingu í kvöld. Og verið er að vinna í að fá ´77 og ´76 árgangana saman á mótið.

kv.
GRS

Anonymous said...

Kem í kvöld

kv dsh

Anonymous said...

kem í kvöld..

kv,
Beggi

Ólafur Fannar Heimisson said...

hvenær er þá mæting í árgangsmótið?

Ólafur Fannar Heimisson said...

ég mæti í kvöld á æfingu galvaskur

Unknown said...

Ég og haukur mætum að sjálfsögðu í kvöld.

kv óli b

Anonymous said...

Ég kem á æfingu í kvöld og er alveg til í að vera með á mótinu.

Fúsman

Anonymous said...

ég kem

kveðja
ég