Wednesday, August 12, 2009

Meiri handbolti???

Sælir piltar.

Ég er bara að spá í hvort menn hafi áhuga á að halda áfram eitt tímabil í viðbót. Ég hef ekkert heyrt um hvort það verði utandeild í gangi en geri þó ráð fyrir því. Ég er til í að vera með en nenni þó ekki að halda utan um þetta. Þyrftum þá líka að vera aðeins fleiri svo að við séum ekki rétt svo að ná í lið í leiki. Væri þá líka spurning hvort það sé sniðugra að spila í deild og borga þá aðeins meira og losna við dómaravesen og þess háttar. En endilega látið vita ef þið hafið áhuga á að vera með og einnig ef þið vitið um einhverja fleiri.

kv. Hilmar

40 comments:

Anonymous said...

Sigginn er alltaf til í Handbol

Anonymous said...

Daníel er til

Anonymous said...

Ég er til.

Kv.
GRS

Dr-Höddi said...

Dr er klár

Anonymous said...

Ég er til.

Fúsman

Beggi said...

Beggi er klár í þetta. Er einhver byrjaður að leggja inn varðandi tíma í krikanum?

Ef við fáum almennilega tíma þá held ég að þetta gæti orðið fínt season hjá okkur. Eigum við ekki setja smá trukk í það verkefni??

Anonymous said...

kannaði málið hjá HSÍ og utandeildin verður á sínum stað í ár.

kv,
Beggi

Anonymous said...

Eiki er til í bolta og ég hef heimildir fyrir því að Hemminn sé einnig klár í slaginn...

Hermann Fannar said...

Ég er sko meira en maður...

Hermann Fannar said...

Steini Arndal er tekinn við sem fkvst. þannig að við hljótum að geta vælt í honum...

Anonymous said...

Gaui er klár, svo ef steini er tekinn við að þá náttúrulega reddar hann þessu bara með mánudagana, ég mæli með því að beggi taki þetta að sér þetta mánudagsverkefni..hringja í steina...koma svo áfram beggi!!

Anonymous said...

En hvort langar okkur í utandeild eða hina þar maður þarf ekki að redda dómara og svona?

Beggi said...

er það ekki bara utandeildin á þetta?

Legg til að einhver annar en ég væli í steina. Fer ekki stjórnarmaðurinn í þetta?

Möst að fá æfingar á mánudögum og svo á miðv./fimmtudögum.

Anonymous said...

talaði við steina og hann bendi á sigga bakara, bakarinn sagði að mán væru alveg off, gætum kannski fengið þri og fim, ætlaði að senda póst

mín pæling er sú að alltaf á föstudögum þegar við vorum með heimaleiki, vorum við þá alltaf með þá tíma og gat hsi raðað niður leikjum hjá okkur með tilliti til þess að húsið væri laust. þurfum við ekki að tækla þetta líka

svo reyndar kom fram að við höfum verið lélegir að grípa til hendinni þegar á að fá framlag frá okkur, eins og þegar ég stakk uppá því að við færum allir í mugg og með þessar þökur að þá var nú ekkert rosa undirtektir, og alltaf sömu menn sem eru alltaf með sama vesenið, sem er þreytt

annað hvort eru menn til í að gera eitthvað í vetur í staðinn eða þá að við sleppum þessu bara, það er ekkert hægt að vera þarna inni frítt og vera svo bara með væl þegar á að gera eitthvað

kv
Gaui

Hermann Fannar said...

Hvaða hina deild ?

Anonymous said...

Er það ekki þá 2. deild þar sem voru alveg heil 5 lið í fyrra? Hljómar ekki spennandi. En hvað kostar það annars? Veit það einhver?

En ég er alveg til í að mæta AFTUR í tyrfingu eða að gera eitthvað, t.d. dæma í vetur 3-4 leiki á 5 flokks móti sem teur kannski klukkutíma.

Er kannksi ekki of mikið að borga 21.000 kall á ári fyrir þetta?? bara pæling, því það kostar 1750 á mánuði að vera í Mugg.
kv. Eiki

Daniel said...

Ef þú værir að leigja sal úti í bæ 2-3 í viku þá væri þetta meira en 21þús. á mann yfir tímabilið þannig að það bara mjög vel sloppið. Fyrir utan það færðu frítt á alla heimaleiki í deild um leið og þú styrkir okkar ástkæra félag ;)

Annars er ég heitari fyrir utandeildinni því ég hef ekkert heyrt um 2. deildina í ár. En það er spurning um að semja við annað lið að við myndum dæma fyrir hvort annað, t.d. lukkumenn?

Anonymous said...

Fékk eftirfarandi sent frá HSÍ í dag:
Sæl,

Skráning í utandeildina í handbolta stendur nú yfir og er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á robert@hsi.is

Skráning stendur yfir til mánudagsins 14.september og er þátttökugjald kr. 15.000.

7 lið eru skráð til leiks en það eru Haukar, HKR, ÍR, KR, Selfoss, Stjarnan og Víkingur. Þau lið eru jafnframt skráð í Eimskips bikarinn.


Þau lið eru einnig beðin um að skila inn skráningarblaði.

Kveðja,

Róbert Geir Gíslason

Annars er ég klár í Utandeildina enda hefur maður ekkert séð um hina deildina. Varðandi væl um leti í okkur þá mættum við nokkrir í tyrfingu þó svo að það hafi klárlega mátt vera fleiri en mig minnir að fyrirvarinn hafi verið stuttur. Eftir það var rætt um að við færum í Mugg og myndum sleppa við verkefni og voru allir sáttir við það. Annars er ég sammála Eika um að það sé lítið mál að dæma en ég verð samt í Mugg. Spurning um að auglýsa æfingar FH-B á FH síðunni þegar þetta er klárt svo við fáum fleiri á æfingar. Einnig þyrfti helst að festa menn í dómgæslu. Hef heyrt að Mfl hópurinn sé ansi fjölmennur og kannski fáum við einhverja þaðan til okkar þegar líður á haustið.

Varðandi Föstudagana þá voru það líka leiktímar hjá yngri flokkunum og er örugglega lítið mál að hafa þetta eins og í fyrra en þarf væntalega samþykki Sigga Bakara. Við myndum þá ekki geta notað það sem æfingatíma, eingöngu fyrir leiki.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Er eitthvað að frétta af æfingartímum? Sé að það er komin tafla fyrir yngriflokkana og þá sjá þeir væntanlega hvenær við getum verið.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Jæja og hvað

Anonymous said...

Ég verð með í vetur, og borga í mugg með glöðu geði til að styrkja félagið, fá frítt á leiki og fá þessa æfingatíma. Ég er í fótbolta einu sinni í viku í sporthúsinu og er að borga þar rúmar 20. þús bara fyrir áramót þannig að muggs gjaldið er gjöf en ekki gjald.

Kv. Haukur

Unknown said...

Sælir drengir

Ég var að velta því fyrir mér hvort að ég fengi að sprikla með ykkur í vetur, lít svo helvíti vel út í svarthvítu.

kv Óli Björns

Anonymous said...

Ég er ekki að segja að muggsgjaldið sé eitthvað ógeðslega mikill peningur en það voru samt margir sem voru að væla yfir að þurfa að borga fyrir þetta á síðasta ári! Ég væri alveg til í að borga í Mugg! En Óli, þú mátt mín vegna sprikla með okkur í vetur kallinn minn!
kv. Eiki

Anonymous said...

Hvernig væri að redda þessum æfingatímum en hætta þessu helv... röfli um hvort við séum í Mugg, tyrfum eða höldum tombólu. Höfum hingað til klárað okkar verkefni þrátt fyrir smá vesen við það.

Drullum þessu í gang. HVER er að redda tímum????

Anonymous said...

skrifa undir nafni??
kv. Eiki

Anonymous said...

Ég held að Stykkið sé að redda tímum. Annars verður fínt að fá Óla Björns í hægra hornið. Svo dæmir hann líka eins og engill.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Og hvað er að frétta ?
kv Siggi

Anonymous said...

ég er að tala við sigga bakara og hann getur engu lofað, er frekar svartsýnn á þetta, eru að fá miklu færri tíma en í fyrra og er að tala við IBH og allt frekar erfitt.

en hann ætlaði að láta okkur vita með þetta

kv
Gaui

Anonymous said...

er möguleiki að vera í strandgötu?
kv. Eiki

Anonymous said...

sælir, var að fá póst frá Sigga bakara:

Sæll það er ekki um auðugan garð að gresja en það sem er laust er miðvikudagur kl 22-23 líka föstudagar kl 19.30 þegar 3.fl er ekki að spila erum með 2 lið þar, síðan væri hægt að finna kannski eitthvað á sunnudögum, læt æfingatöfluna fylgja með í viðhengi svo þú sjáir hvað þetta er þétt láttu mig vita hvort þetta geti nýst ykkur eitthvað.

Kveðja Siggi

Anonymous said...

Sælir

Mér líst vel á miðvikudaga og sunnudaga og svo gætum við haft leikina á föstudögum. Er ekki bara málið að negla þetta og byrja á morgun???

kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég er til í að byrja á morgun. En er vitað hvenær á sunnudögum við myndum eiga tíma? Er kannski stemmari fyrir strandgötunni á sunnudögum?? Alltaf gaman að æfa í strandgötunni :)
kv. Eiki

Anonymous said...

Er þá æfing í kvöld?
kv siggi

Anonymous said...

Þarf ekki að staðfesta við Sigga Bakara að við þiggjum tímana og fá það á hreint að við megum mæta í kvöld?

kv. Hilmar

Anonymous said...

sælir,

Verðum að koma okkur upp betri samskiptabúnaði... var ekki búið að rigga upp Fésbók t.d.

Held að það væri auðveldara og skilvirkara. Klukkan hvað vilja menn vera á sunnudögum - held að t.d. klukkan 16 sé laust!

kv,
Beggi

Anonymous said...

Mér líst vel á 16 á sunnudögum.

kv. Hilmar

Anonymous said...

mér lýst líka vel á 16 á sunnudögum. Við getum jafnvel stofnað grúbbu á fésinu ef að það sé eitthvað sem menn myndu vilja.
Hver var annars í sambandi við Sigga bakara vegna tímanna. Endilega að hafa samband við hann svo við vitum hvort það yrði æfing í kvöld. Væri gott að vita það fljótlega. Kannski fyrir kl. 5 í dag væri fínt.
kv. Eiki

Anonymous said...

Er æfing í kvöld eða ekki ?????

Anonymous said...

Ef einhver hefur upplýsingar um hvort það verði æfing í kvöld þá endilega senda sms á línuna.
kv. Hilmar

Anonymous said...

Það verður æfing í kvöld það er verið að safna liði í þessum töluðu orðum.