Wednesday, March 11, 2009

Æfing miðvikudag og leikur laugardag

Er ekki stemmari fyrir æfingu í kvöld klukkan 21:30?? Ég er a.m.k. til! Endilega látið vita hér fyrir neðan og takið stöðuna á öðrum. Svo þurfum við að redda dómara í leikinn á laugardaginn og skipuleggja eitthvað eftir leik ef menn hafa áhuga á því. Hendið ykkar pælingum endilega hér inn.

32 comments:

Beggi said...

kemst ekki í kvöld

Anonymous said...

Ég stefni á mætingu í kvöld...en vil samt taka það fram að ég kem ekki ef það skyldi kvikna í húsinu mínu eða ef bílinn minn springur í loft upp.

Varðandi laugardaginn þá tel ég langlíklegast að ég komi í leikinn. Ég væri bara til í smá bjór inni í klefa og svo kannski meiri bjór á Hansen eða Aroma um kvöldið...ekkert flóknara en það. Auðvitað væri geðveikt að fara saman í dekur í Baðhúsinu, en ég er að fara í þann pakka á sunnudaginn með vinkonum mínum og þær verða bara abbó ef ég fer líka með ykkur.

Knús á ykkur strákana
Jóhann Skagfjörð

Anonymous said...

eiki og andri koma í kvöld og leikinn...

Anonymous said...

´Gaui kemur ef það er stemmari

koma svo með stemmara drengir

kv

Goggi

Anonymous said...

siggi er til í æfingu
en kemst ekki í leikinn

Anonymous said...

Þá erum við komnir 5. Hvað með Hödda, Hemma, Danna, Sigga, Hauk og alla hina? Stefnum á að til þess að það verði æfing þurfa a.m.k. 2 í viðbót að vera búnir að melda sig fyrir 19:00.

kv. Hilmar

Anonymous said...

ég veit að Danni mætir pottþétt ekki...síðan skildist mér á Hemma og Ragga að þeir ætluðu að mæta (sögðu það allavega á mánudagskvöld)

kv.
iój

Anonymous said...

höddinn mætir

Anonymous said...

Þá erum við orðnir nógu margir. Reynum samt að draga sem flesta með okkur svo æfingin verði skemmtilegri.
kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég reyni að láta sjá mig en kemst víst ekki í leikinn á Lau.

kv. Haukur

Anonymous said...

er einhver búinn að tala við trausta? eða gatla?

Hermann Fannar said...

Hæ gæs, sorry klikkaði í gær vegna veikinda hjá guttanum mínum.

Hinsvegar mæti ég í leikinn á lau og svo auðvitað öl ef menn eru á þeim bux...

Anonymous said...

Verður ekki fín mæting í leikinn hjá okkur?? Maður er ekki spenntur fyrir að spila annan leik með aðeins einn varamann. Mér sýnist að ég, Jói, Hemmi, Höddi, Gaui og Eiki séu klárir en spurning með alla hina. Svo þarf að sjálfsögðu að redda dómara og það þurfa allir að reyna að redda manni í það skemmtileg starf og væntanlega 500 kall frá hverjum og einum í boði. Spurning hvort Trausti geti heyrt í Óla Björns. Spurning svo hvort það sé stemming fyrir einhverju eftir leik eða ekki. Við stefnum a.m.k. á mætingu 16:00. Leikurinn þarf að byrja stundvíslega 16:30 því Lukkan spilar á eftir okkur.
kv. Hilmar

Beggi said...

Ég er game í leikinn á morgun og eflaust í eitthvað gikk um kvöldið

Dr-Höddi said...

ég mæti og Elvar Erlings ætlar að reyna að mæta líka

Anonymous said...

Það gengur ekkert hjá mér að redda dómara. Eiga menn ekki einhverja ása í ermum? Það stefnir greinilega ekki í neina dúndurmætingu hjá okkur þannig að við höfum væntanlega ekki efni á að fórna neinum í dómgæslu. Það hlýtur einhver að vera tilbúinn að taka þetta að sér fyrir 4-5 þús. Vantar ekki alla pening?

kv. Hilmar

Ragnar said...

Mæti

Anonymous said...

Mæti
kv.
Eiki

Anonymous said...

Og er ekki spurning um að hittast á Hansen eftir kvöldmat eða er spurning um að fara á stælinn eða eitthvað?
Eiki

Anonymous said...

Ég þarf reyndar að fara í afmæli strax eftir leik en er til í kvöld ef menn eru í gírnum. Er nokkuð að frétta af dómaramálum?

kv. Hilmar

Anonymous said...

Hvað með æfó í kvöld? Er ekki stemmari?

Kv
Hemmó

Anonymous said...

eg er til kv. Höddi

Anonymous said...

ég er líka til

joiskag

Anonymous said...

siggi er til
og kannski trausti

Anonymous said...

Var æfing í gær? Við eigum tíma í kvöld klukkan 21 og ég er til ef við náum mætingu.

kv. Hilmar

Anonymous said...

já það var æfing í gær hilli minn
en ég kemst því miður ekki í kvöld svo held ég að eiki sé meiddur og raggi á barnum gaui í risanum og jói skag í réttunum hemmi í útvarpinu höddi í taxanum og andreas í bingó í vinabæ

Anonymous said...

Leiðarbók skipstjóra.

Í dag er miðvikudagurinn 25. mars 2009. Skiptstjóranum langar mikið á handboltaæfingu í kvöld. Hann veltir fyrir sér hvort einhverjir nenni að mæta.

Kv.
Jói Skag

Anonymous said...

Ég er til.
kv. Hilmar

Anonymous said...

ég er 50/50
kv siggi

Hermann Fannar said...

ég er til!

Anonymous said...

Þá eru komnir 3,5 sem er ekki spennandi. Þið sendið mér kannski sms ef það verður æfing þar sem ég verð ekki við tölvu.

kv. Hilmar

Dr-Höddi said...

mæti