Tuesday, March 3, 2009
Dagskrá vikunnar
Dagskrá vikunnar hljóðar uppá æfingu miðvikudag klukkan 21:30 og leik fimmtudag við Selfoss á Selfossi klukkan 21:50. Vegna dræmrar mætingar undanfarið er ég smeykur um hvort við náum í lið og bið ég því menn um að melda sig sem allra fyrst hér að neðan bæði í leikinn og á æfinguna.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
17 comments:
Ég siggi kemst ekki á æfinguna og er ekki viss um leikinn en það kemur allt í ljós á morgun og mun ég melda mig aftur þá kv.
siggalingur
Ég kemst ekki á æfinguna á morgun og heldur ekki í leik á fimmtudag.
heyrðu heyrðu
Gaui Stykki mætir í leikinn og á æfinguna, verður í marki eða úti, skiptir engu...upprúllun hvoru megin
koma svo drengir, klárum þetta eins og menn.
kv Gaui
Ég kem á æfinguna en kemst ekki í leikinn þar sem það er heimaleikur hjá mfl. karla á fim. kvöldið
kv.
jói
mæti á æfinguna og leikinn
Ég veit ekki hvort ég komist vegna eymsla í baki en ég myndi þá reyna frekar að komast í leikinn en á æfinguna. Verð þá með Andra með mér en ég læt vita hvað gerist á morgun.
kv.
Eiki
eigum við kannski að stefna bara á mætingu í leikinn, mér sýnist stemmarinn vera frekar slappur hérna...
kv Gaui
Ég er tæpur á æfinguna en mæti í leikinn ef við náum í lið og fæ að fljóta með einhverjum.
kv. Hilmar
Ég væri góður á æfingu í kvöld, en tæpur í leikinn annað kvöld
Erum við að tala um þrjá sem komast á æfinguna og í mesta lagi 5 í leikinn? Er ekki bara málið að slaufa bæði æfingunni og leiknum?? Reyna svo að taka massa mætingu og bjór í síðasta leikinn laugardaginn 14.mars???
kv. Hilmar
Menn verða að pósta sínum skoðunum hér fyrir hádegi svo ég geti látið Selfoss vita.
kv. Hilmar
Ég kemst ekki í leikinn því miður en er til í planið hans Hilla
kv siggi
eins og ég sagði,, off í leikinn í kvöld - því miður
Offaðu bara leiknum og förum svo eftir planinu og tökum vel á því í síðasta leiknum og eftir hann!
kv. Eiki
Ég er búinn að gefa leikinn fyrir okkar hönd og það þýðir ekkert að væla yfir því. Nú stefnum við bara á hörku mætingu á æfingu á miðvikudaginn og svo er það heimaleikur við UMFA á laugardeginum 14. mars. Er ekki bara málið að halda smá lokahóf eftir þann leik? Er ekki hægt að kíkja saman eftir leik í pizzu og bjór og svo kannski eitthvað meira ef menn eru í stuðinu? Ég legg til að Stykkið og Eiki skipi skemmtinefnd til að sjá um þetta og ég mæti í hvað sem þeir skipuleggja nema kannski Húsavíkurferð (Gaui þetta var grín)!
kv. Hilmar
p.s. Gaui, þetta var bara saklaust grín.
hehe þessi húsavíkur ferð var náttúrulega bara snilldarlega skipulögð...redda bílum og fríu bensíni og frítt í göngin....gerist ekkert mikið betra nema kannski ef ég hefði reddað flugvél í dæmið...en varðandi þetta lokahóf að þá get ég ekki skipulagt það því miður, hef ekki tíma...en kem væntanlega í það ef það verður...
kv Gaui
Sælir féllar, ég var að koma úr sólini í Appelsínu ríki...
Ég er til í þetta árshátíðar plan. Spurning hvort við þurfum ekki að reyna að negla einhverja fasta dagskrá þannig að þetta verði ekki losaralegt.
Ég er til í að skaffa einhvern öl í boði Nýlenduvöruverzlunar Hemma&Valda, spurning hvort fleiri leggi eitthvað í púkk og svo er þetta auðvitað spurning með staðsetningu undir húllumhæið?
Post a Comment