Tuesday, February 3, 2009

Fullt af leikjum og allt að gerast

Minni á leikinn við Júmboys miðvikudag klukkan 21:00 í Mosfellsbæ. Mæting 20:15.

Síðan verður leikurinn við Lukkuna á fimmtudaginn klukkan 21:30 í Kaplakrika. Mæting strax eftir leik hauka og FH. Við þurfum að redda dómara fyrir þennan leik.

Að lokum hafa Hattar menn haft samband og vilja spila leikinn um næstu helgi og á ég von á svari í dag frá Sigga bakara og Geira Hall um hvenær við gætum fengið tíma um helgina. Ég læt svo Hattar menn vita af því og þeir láta svo vita hvort það hentar eða ekki. Þeir ætla að reyna að koma í bæinn um helgina og spila tvo leiki en áttu eftir að fá svör frá einhverju öðru liði líka.

Endilega látið vita sem fyrst hér fyrir neðan hvort þið komist í leikina og einnig með dómara.

Ég kem pottþétt í mosfellsbæinn en ef ég kemst í leikinn á móti Lukkunni þá kem ég seint.

25 comments:

Anonymous said...

nau nau nau Gaui kemst í þetta allt bara, líf og fjör

Anonymous said...

ég kem á morgun í mosó, en kemst ekki á fimmtudag, þarf að vinna.
kv. Arnar

Hermann Fannar said...

Glæsilegt, svona á þetta að vera, reynum nú að mæta eins og menn og vinna þetta drasl!

Anonymous said...

ég kem í mosó og á fimmtudag.
kv. Eiki

Anonymous said...

siggalingur er alltaf maður í game

Anonymous said...

Ég mæti í báða leiki

kv. daniel

Anonymous said...

Kem í kvöld en verð seint á ferðinni, 80% á morgun.

Fúsman

Anonymous said...

Gatli mætir með byssurnar klárar...

Anonymous said...

Ef Hattar menn koma í bæinn verður leikurinn á laugardag klukkan 15:30 í Kaplakrika. Fæ væntanlega svar frá þeim á morgun.

kv. Hilmar

Beggi said...

sælir,

Er sennilega off í leikinn í kvöld.

Kemst vonandi á morgun.

kv,
Beggi

Anonymous said...

ég mæti í báða leiki púffdúllur.

kv. josko

Anonymous said...

ég kem

Anonymous said...

Það er nánast pottþétt að ég kem ekki í kvöld. Vona að allir aðrir komist og gefi allt til að landa sigri. Spilum bara tvo fyrri hálfleiki núna og ekki gleyma gleðinni! Minni menn á að við þurfum að redda dómara. Allir að ganga í það og láta vita hér á síðunni. Annars verða menn bara að grípa einhvern á leiknum.


kv. Hilmar

Anonymous said...

kem í kvöld

simmi

Anonymous said...

Ég neyðist til boða til að boða forföll á síðustu stundu, ég treysti því að þið slátrið þessum lukkutröllum.

Kv. Haukur

Beggi said...

Eg kem a eftir - kv beggi

Anonymous said...

Hvernig fór leikurinn við Lukkuna??? Minni á leikinn við Hött á morgun, laugardag klukkan 15:30 í Kaplakrika. Mæting 14:50. Minni menn á að við vorum búnir að lofa að bjóða þeim upp á öl (í staðinn fyrir að fara austur) svo að allir mæta með eina kippu. Við tökum svo sjálfir væntanlega toll af því. Einnig þurfum við að redda dómara. Er einhver sem getur reddað því?

Anonymous said...

við töpuðum 38-40. Vorum ekki að gera góða hluti.
Ég kemst ekki í leikinn á morgun.
kv. Eiki

Anonymous said...

Ég held að það sé nauðsynlegt að allir mæti sem mögulega geta á morgun. Endilega látið vita hér fyrir neðan. Ég mæti a.m.k.

kv. Hilmar

Beggi said...

ÉG mæti

Anonymous said...

Herr Johan von Skagfjord mætir.

Danni er hins vegar forfallaður þar sem hann hefur verið dæmdur í tveggja vikna gæsluvarðhald.

Anonymous said...

Verður mætingin ekki betri en þetta? Töluðu menn ekki um að mæta eftir Lukkuleikinn? Og er einhver fær um að redda dómara? Ég er hræddur um að við rétt svo náum í lið og þá er ekki hægt að fórna einum í dómgæslu.
Svo er bara að muna eftir öl!
kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég mæti

kv,
Trausti

Anonymous said...

ég get ekki verið með :(

simmi

Anonymous said...

Good brief and this fill someone in on helped me alot in my college assignement. Thank you for your information.