Monday, February 9, 2009

Dagskrá vikunnar

Þá er leikjatörninni lokið og uppskeran heldur rýr. Fyrri hálfleikurinn á móti Júmboys var mjög fínn hjá okkur og sennilega besta vörn sem við höfum spilað í vetur með Gatla og Stykkið í hörkuformi. Eins og svo oft áður hvarf sjálfstraustið í sókninni í seinni hálfleik og vorum við kaffærðir í hraðaupphlaupum. Endaðið leikurinn með tíu marka tapi sem var alltof stórt því það voru vissulega jákvæðir punktar hjá okkur. Ég komst svo ekki í Lukkuleikinn sem endaði með þriggja marka tapi og heyrðist mér að við hefðum spilað mjög illa heilt yfir í þeim leik. Menn sögðu samt að Simmi hefði spilað vel. En við höfðum svo að lokum sigur á Hetti á laugardaginn 35-29 og það þrátt fyrir að höfum sennilega sett Íslandsmet í misheppnuðum sendingum fram. Við spiluðum einfaldlega hörkuvörn mest allan leikinn og Guðjón Óskar var eins og klettur í markinu.

En dagskrá vikunnar hljóðar uppá æfingu á miðvikudag klukkan 21:30 og svo heimaleik hjá okkur í STRANDGÖTU á laugardaginn klukkan 16:30 við Víking. Mfl er að spila á fimmtudaginn í Krikanum og því fellur æfingin niður þá.

Endilega reynum að mæta sem flestir og láta vita með mætingu hér fyrir neðan.

29 comments:

Anonymous said...

kemst því miður ekki á miðvikudaginn. kv. Arnar

Anonymous said...

Kem ekki á miðvikudaginn og veit ekki hvenær ég kem aftur á æfingu á þessum vetri vegna meiðsla. Lenti í dágóðu umferðarslysi á laugardagskvöldið og það tekur víst einhvern tíma að ná sér aftur.

kv.
GRS

Anonymous said...

Ég (siggi) mæti auðvitað í þetta alltsaman eins og sönnum FH-b kalli sæmir

Anonymous said...

já og Gaui líka, er að spá í að redda mér punghlíf...

Anonymous said...

Ég kemst ekki á æfingu í kvöld vegna veikina.
kv. Eiki

Anonymous said...

Ég meinti á morgun:S

Anonymous said...

Þú verður ekkert veikur á morgun kallinn minn

Anonymous said...

veikur

Anonymous said...

Kemst sennilega ekki í kvöld en mæti pottþétt á laugardaginn. Stefni á halda áfram með þrumuskotin úr Hattar leiknum.

kv. Hilmar

Anonymous said...

jói skag er veikur og kemur eigi

Anonymous said...

þá eru 2 komnir siggi og gaui það er ekki nóg

Anonymous said...

já maður nennir ekkert að mæta ef þetta er bara að skjóta á milli marka hjá mér og Sigga.....

spurning að slaufa þessu og stefna á sigur á lau bara í staðinn

kv

Gaui

Anonymous said...

Ég er til í að mæta í kvöld, get verið í vörn á milli Gaua og Sigga þegar þeir eru að kasta á milli marka. Tökum annars púlsinn á þessu í kvöld, en mér sýinist flestir vera veikir.

Kv. Haukur

Beggi said...

Er tæpur í kvöld.

Tek samt stöðuna á því á eftir.

Anonymous said...

Ég mæti ef það verður næg mæting

daniel

Anonymous said...

þetta lítur ekki vel út
kv siggi

Beggi said...

hverjir ætla að mæta??

Anonymous said...

Það eru Siggi, Gaui, Höddi, Haukur, Danni enn sem komið er...

Anonymous said...

Hverjir mæta á morgun?? Ég mæti pottþétt en ætla ekki að taka að mér dómgæslu. Við verðum að reyna að redda einhverjum í það skemmtilega verkefni. Allir koma með 500 kall og allir að reyna að plata mann í verkefnið. Láta svo vita með stöðu mála hér fyrir neðan.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég er 50-50
kv. Eiki

Anonymous said...

Siggi mætir

Anonymous said...

Það er að sjálfsögðu mæting 15:50.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Verðum við Siggi bara tveir? Hverjir mæta??? Kv. Hilmar

Anonymous said...

Jóhann og Daníel mæta...

Anonymous said...

Gaui og Gatli mæta...Gaui tekur markið og lokar

Anonymous said...

ég reyni, er tæpur, 50-50
kv. Arnar

Anonymous said...

Ég mæti.

kv,
Trausti

Anonymous said...

Ég er búin að redda dómara. Óli Björns ætlar að dæma og ég er búin að lofa honum að við borgum honum 500 kall á mann.

Kv,
Trausti

Anonymous said...

Snilld að vera lausir við dómaravesen. Við erum þá a.m.k. komnir með í lið þannig að þá er ekkert eftir nema að vinna leikinn.
kv. Hilmar