Djöfull er gaman að vera FH-ingur í dag!!! Sérstaklega þar sem ég er að vinna með haukamanni. En ég minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:00 og trúi ég ekki öðru en að það verði fjölmennt. Svo er leikur á morgun við HKR í Kaplakrika klukkan 20:00. Mæting 19:15. Við þurfum að sjálfsögðu að redda dómurum í leikinn. Óli tékkar kannski á strákunum sem voru í fyrra og ef einhverjir aðrir hafa tromp í erminni þá endilega láta vita. Við höldum okkur við það að hver leikmaður borgar 500 kall í dómara per leik.
Ég verð seinn í kvöld og afsaka það fyrirfram og kemst sennilega ekki í leikinn á morgun.
Svo væri gott ef Hemmi gæti framvegis skrifað á íslensku hér á síðuna.
Thursday, November 6, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
26 comments:
ég er tæpur í kvöld, konan í prófi til kl. 21. En við sjáum til.
kv. Arnar
Mæti í kvöld
Eg koma alla leiðina frá Korea, mina heimland til ad skodi FH straka skora mikið mark a fostudaga. Vona ykkur taka hitt lid i rassagat. Eg ekki spila, kannski bara klukka. Tid spila í gimpariðill, vinna mikið og fá margir stig. Hrísgrjón
Súgg Hung Lee
Ég mæti eldspækur eftir massa stemmara í gærkveldi og verð klellaður!!
kv. Eiki
Mæti í kvöld
Ég komst því miður ekki í gær og kemst ekki í kvöld heldur. Gangi ykkur vel og munið að brosa.
kv. Hilmar
kúkaði á mig með mætingu í gær....
mæti sprækur í kvöld.
Það voru allt of margir sem að voru að "kúka á sig" með mætinu í gær. Það er frekar dræmt þegar við mætum 8 á æfingu fyrir leik. Verðum að mæta á æfingu til þess að kúka ekki á okkur í leikjum.
En hafið þið eitthvað pælt í því að við eigum leik á Egilsstöðum næstu helgi?????? Ætlum við að fara þangað og gera einhverja hluti eða gefa leikinn af því við náum ekki í lið? Við erum búnir að vita af þessum leik of lengi til þess að segja að það sé of stuttur fyrirvari...
Við verðum svo að mæta gríðarlega vel stemmdir í leikinn í kvöld því HKR er með sterkt lið.
Og ein pæling í viðbót. Er leikurinn pottþétt í Krikanum??? Það stendur á hsi.is að hann verði í Strandgötu..
kv. Eiki
Sammála síðasta ræðumanni, HKR eru með gríðarlega gott lið
kv,
Gaui kemst ekki með á eigilsstaði, þó ég væri alveg til í það, kemst bara ekki þennan dag
kv stykk
fara á Egilsstaði, flaugið eða keyrt?
flogið á það að vera
Hvernig fór annars leikurinn á föstudaginn?? Gaman væri að sjá skýrslu um leikinn. Þar sem við gátum ekki náð í lið í bikarleik þá ætla ég ekki einu sinni að reyna að ná í lið í þennan leik. En við stefnum á dúndurmætingu á miðvikudaginn!
kv. Hilmar
jú af hverju ættum við ekki að getað farið á egilsstaði???
ég kemst með ef þetta er á sæmilegum tíma, flýg hvort eð er frítt, þá er kominn einn, get líka verið í marki ef það vantar, get séð um vatnsbrúsana.....get allt
kenndi mamma þín þér ekki að það er bannað að vera neikvæður fyrirfram, tékkum bara á mætingu og sjáum svo til, þó að akureyri hafi klikkað þá þýðir ekkert að hætta að reyna þetta, akureyri er skítapleis og það nennir enginn þangað maður, en egilsstaðir eru málið, hreindýraborgarar og málið er dautt újeeee
Tökum smá óformlega könnun á þetta
ég er viss um að menn eins og Siggi, Eiki, Hilmar, pedda, Höddi, Arnar og Danni eru klárir í þetta verkefni, gætum jafnvel platað gatla í rugl á stöðum egils
En svo eru aðrir sem er meira spurningamerki
Oli, nennti ekki með á akureyri nema við fengjum lánaða landcruiser, er bara ofdekraður krakki sem veit ekkert og hef ég enga trú á honum...hehe
Raggi, henn keyrir ekki í vondu veðri..ohaha
Hemmi, er með 5 fyrirtæki og 8 vinnur og má ekkert vera að þessu...
Beggi...pissar alltaf í sig og ef ekki piss þá kúk...
hey strákar þetta er allt sagt í gríni og ég veit að þið takið því þannig en ekki Gauja löggu style..
ég er bara on fire hérna
en þið sjáið að þetta er vel hægt, þurfum að fá 6 kvikindi í þetta, má alveg reyna
en ef þetta er ekki hægt þá bara verður að hafa það, en við gefum þetta ekki frá okkur nema að tékkit out
þá er ég hættur
kv
gaui tutti frutti
Le Stykk alveg í þvílíkum hamagang hérna!
En það er pæling um að borga þeim einhvern pening, sem myndi fara upp í ferðakostnað, og spila við þá næst þegar þeir koma í bæinn. Hægt að tékka á þeim, hvernig þeim lýst á það?
kv. Eiki
Hvað kostar að fara veit það einhver ?
kv siggi
ég tók dæmi bara á flugfelag.is
ef við förum á lau 10 jan og heim sun 11 jan þá er þetta 9.980 fram og til baka, sem sagt 5000 kall per legg
spurning hvað menn þola í kreppunni,
kv
Gaui
Ánægður með hvað stykkið er öflugt í skrifunum. Nú er bara að færa það yfir á völlinn! Mér líst samt mjög vel á hugmyndina hans Eika. Annars gæti maður kannski fórnað sér austur ef það næst í lið.
Ég var að kíkja á flugfélag.is og þar er ekkert laust á þessu verði um helgina. Það ódýrasta sem ég sá var að fara á lau kl. 12:45 og færum heim aftur sama dag kl. 18:10 og það kostaði 22000 á mann báðar leiðir.
Ég myndi frekar kjósa að reyna hina leiðina eða að finna aðra helgi fljótlega eftir áramót og panta þá núna því þá eru meiri líkur á að það verði til sæti á ódýrara verði.
kv. Eiki
færa yfir á völlinn???
ég vann nú bara þennan lögguleik fyrir ykkur, voruð að skíttapa allan leikinn og ég þurfti að koma og skeina ykkur í restina...
hehe ég er bestur
kv
kálfi
verður þetta ekki rætt á miðvikudag og tekið ákvörðun, ég er sammála að mér finnst 9980 kr. mikið hvað þá 22000 kr.
kv. Arnar
HKR voru að hafa samband við mig og biðja um leikskýrsluna. Er einhver með hana?
kv. Hilmar
jæja drengir nú er allt að gerast
ég hafði samband við Andra og stakk upp á eftirfarandi:
að í staðinn fyrir að þurfa að tyrfa eitthvað og jafnvel borga fyrir tímana uppí einhverja klístursvél sem við munum aldrei nota að þá kom ég með hugmynd
við förum bara allir í mugg, stuðningsmannafélag og allir græða.
það felur í sér
Súpa og brauð fyrir leiki.
Frítt fyrir fjölskylduna á leiki.
Kaffi og með því hálfleik, Muggarahófið með leikmönnum,
þá er Muggur frábær félagsskapur!
þetta er 1400 kall á mánuði og þú þarft bara að fara á einn leik og þá er þetta farið að borga sig, fyrir utan það að það er þarna fullt af góðum hlutum eins og súpa og svona
Þetta er svona win win situation
Andra leist vel á og ætlar kannski að kíkja á okkur á morgun, sagðist vera sáttur ef við færum kannski 5-10 í mugg og svo kannski að hjálpa til við dómgæslu í turneringum í vetur
og málið er þá bara dautt
kv
Gaui
Var að heyra að það gæti losnað staða fjármálaráðherra og Stykkið þangað!! Væri nú ekki amalegt að fá rúmlega fullvaxinn mann þangað sem þyrfti ekki annað en að sýna tjöllunum kálfana og þeir myndu hætta öllu rugli. Annars er í versta falli laus staða í Flokknum.
Ég skrái mig í Mugg, ekki spurning. Þeir eru meira að segja með súpu!!
kv. Hilmar
gott hjá stykkinu að minnast á mig í þessari upptalningu sinni á leikmönnum.
mér finnst ég vera svo mikils virði í þessu liði...svona á milli þess sem ég græt mig í svefn á kvöldin.
kv.
jói skag
Muggari nr.83
jói, ég elska þig og þú veist það...
kv
Gaui
Post a Comment