Það var enginn glæsileikur sem Fimleikadrengirnir buðu uppá í Mýrinni á föstudaginn þegar við töpuðum fyrir Kórdrengjunum 30-21. Eins og sjá má á tölunum þá var sóknarleikur okkar ansi dapur og fóru ansi mörg dauðafæri í súginn. Ég gæti trúað að markvörður andstæðinganna hafi varið c.a. 30 skot og samt áttum við ansi mörg skot framhjá og yfir. Kórdrengirnir gengu vel út á móti og tóku hart á okkur og það er eitthvað sem við megum taka okkur til fyrirmyndar. Þeir eru ekki með neitt stórlið en þeir lögðu sig alla fram, börðust fyrir hvern annan og voru bæði fljótir fram og tilbaka. Það þarf ekki mikið meira til að vinna leiki í þessari deild. Varnarleikur okkar var einnig ansi dapur. Menn standa ekki rétt í vörninni og í þau fáu skipti sem menn fara út á móti andstæðingunum þá er það ekki með fullum krafti og ekki til þess að stoppa menn. Við þurfum að taka á þessu á næstu æfingum og fara að spila vörn eins og menn án þess þó að menn fari að missa sig í vitleysu eða væli. Ég geri ráð fyrir að menn mæti vel á æfinguna í miðvikudaginn þar sem menn leggja sig alla fram! Byrjunarliðið á föstudaginn var: Eiki, Valli, Siggi, Höddi, Addi, Danni og Fúsi stóð í markinu. Á bekknum voru Hilmar, Jói Skag og Stykkið sem stóð fyrir ættarmóti. Kórdrengirnir skráðu ekki markaskor en ég held að Valli og Siggi hafi skorað mest fyrir okkur. Mér fannst við allir vera lélegir nema kannski helst Jói sem barðist þó a.m.k. eins og maður. Hann hlýtur því nafnbótina Maður leiksins og fær fálkaorðuna að launum.
Það er því ekkert annað í stöðunni en að fjölmenna á æfingarnar á miðvikudaginn og fimmtudaginn og taka vel á því og taka svo enn betur á löggunum í Mýrinni á föstudaginn. Ég skora á Danna að koma svo með skýrslu eftir þann leik.
Monday, October 27, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
15 comments:
ósammála þessu, ég var maður leiksins, skoraði ekkert, varðist illa, það hlýtur að vera ég.
kv. Arnar :-)
verður ekki dúndurmæting á æfingu á morgun miðvikudag.
Eða er kannski engin æfing?
kv. Arnar
auðvitað verður dúndurmæting, annað er bara rugl!
kv. Hilmar
Mæti
Kv.
GRS
er ekki leikur í kaflakrika í kvöld???
mæta menn örugglega, umferð í enska boltanum, ég nenni ekki að koma ef við verðum örfáir
kv. Arnar
ég kem ekki er að ná mér eftir ælupest vonast til að koma á morgun kv siggi
ég mæti ef það er mæting !
mæti ef mæting!
kv. Arnar
Ég get hvergi séð að það sé leikur í Krikanum þannig að ég mæti pottþétt.
kv. Hilmar
enginn leikur í Krikanum (samt leikur næsta miðvikudag sko, það er kannski að rugla menn)...ég mæti pottþétt
kv. jóiskag
Danni mætir
Eyvi ætlar líka að mæta þannig að það stefnir í fjölmenni.
kv. Hilmar
Eiki mætir
Post a Comment