Tuesday, October 14, 2008

Niðurstöður fundarins

Við Hemmi áttum jákvæðan fund með Einari Andra og Lukkunni fyrr í kvöld og fengust nokkrar niðurstöður úr honum.
Í fyrsta lagi var ákveðið að menn hafi þrjá kosti til að greiða fyrir æfingarnar okkar og verða allir sem ætla að æfa að velja einhvern af þeim kostum og standa við það. Tyrfa, dæma eða borga. Erum við væntanlega að tala um tvö verkefni yfir veturinn eða tvær greiðslur samtals tíu þúsund. Tekið verður við skráningu á því hver ætlar að gera hvað og stjórnin fær upplýsingar um nöfn, email og símanúmer hjá þeim sem ætla að tyrfa eða dæma.
Í öðu lagi hefður sú staða komið upp að þriðju flokkur sem er með tvö lið í Íslandsmótinu spilar sína heimaleiki á föstudögum eins og var skráð bæði hjá okkur og Lukkunni. Það gengur einfaldlega ekki upp. Í staðinn fáum við tíma á laugardögum í Strandgötu klukkan 16 til að spila okkar heimaleiki. Við og Lukkan höfum tíma frá 16-19 á laugardögum og farið var fram á að við myndum helst spila bæði lið sömu laugardaga og þá daga sem liðin eru ekki að spila munu aðrir nýta tímana. Við eigum eftir að ræða hvernig við rððum leikjunum þessa leikdaga. Klárlega mikill fögnuður og spenna að fá að spila í Strandgötunni.
Í þriðja lagi höfum við fengið æfingartíma á fimmtudögum klukkan 21:00. Þetta eru einu lausu tímarnir í húsinu en 2. flokkur á reyndar þessa tíma en notar þá nánast aldrei. Einar Andri sagði að það gæti komið uppá einstaka sinnum að þeir þyrftu að nota þennan tíma og hann ætlar að reyna að láta okkur vita þegar það gerist. Við höldum föstudagstímunum en þeir gætu dottið ansi oft út.
Í fjórða lagi þá buðum við Lukkunni að æfa með okkur og þáðu þeir það. Þeir eru að mæta örfáir á æfingar og ætti þetta að vera betra fyrir alla þar sem við ættum þá oftar að geta spilað á tvö mörk.
Í fimmta lagi þá er fyrsti leikur okkar á föstudaginn við Leiftra (lögguna) í Mýrinni. Ég vonast þvi til að sjá sem flesta á miðvikudagsæfingunni klukkan 21:30.

12 comments:

Anonymous said...

eru þá æfingar miðvikudaga, fimmtudaga, föstudaga og spilað á laugardögum?

Ef svo er gæti ég verið að detta inn í spilamennsku.
kv. Arnar

Anonymous said...

Það yrði frábært. Því fleiri því betra.

kv. Hilmar

Hermann Fannar said...

Þetta plan kemur mönnum í ruddaform... Svo er það bootcamp mánudagaga og þriðjudaga...

Anonymous said...

Það er ekki annað hægt en að fagna þessari niðurstöðu. Hilla og Hemma í ríkisstjórnina og ná góðri niðurstöðu þar líka :D

Kv.
GRS

Svo er það bara leikur á föstudag :).

Anonymous said...

Gaui mætir í kvöld

Anonymous said...

Ég mæti í kvöld
kv siggi

Anonymous said...

Hilmar mætir í kvöld

Daniel said...

Mæti í kvöld

Beggi said...

Beggi er off í kvöld og á föstudaginn.

Anonymous said...

er æfing í kvöld miðvikudag? kl. hvað?
kv. Arnar

Anonymous said...

Gaui mætir ekki í kvöld vegna vinnu. Verð að komast á föstud. :)

kv.
GRS

Anonymous said...

Ég mæti ferskur í kvöld kl 21:30:)
kv. Eiki