Eru menn eitthvað búnir að pæla í æfingagjöldum og framhaldi FH-B?? Við vorum að fá fregnir af því að við gætum ekki spilað okkar heimaleiki á föstudögum þar sem 3. flokkur ætti heimaleiki þá. Hemmi sendi Geira skemmtilega harðort bréf í framhaldi af því og við bíðum svara. Við þurfum væntanlega að ganga frá þessum málum fyrir miðvikudaginn ef við ætlum að fá æfingu þá. Hverjir ætla að vera með í þessu í vetur og borga ef þess þarf eða þá tyrfa eða e-ð þess háttar í staðinn??? Það er kannski það fyrsta sem við þurfum að fá á hreint. Nú höfum við ekki efni á að hafa einhverja farþega í hópnum. Endilega látið vita af ykkar stöðu hér fyrir neðan.
Við Hemmi fundum með stjórn og Lukkunni í Kaplakrika á morgun, þriðjudag, klukkan 19:00. Ef þið hafið eitthvað sem þið viljið koma á framfæri eða mæta þá gerið það endilega.
Monday, October 13, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ég ætla að vera með. En mér finnst samt að við eigum ekki að þurfa að borga jafn mikið í æfingagjöld og Lukkan þar sem það mætti enginn frá þeim en allavega 4 frá okkur.
Við tökum bara að okkur tyrfingu ef hún er í boði, í stað þess að þurfa að borga 10.000 kall þá myndi mér finnast betra að mæta í tyrfingu í einn til tvo tíma eða svo...
kv. Eiki
þið eruð með 2 tíma í viku við erum með einn. við mættum að tyrfa í september ekki þið sem þýðir miðað við þessi rök eika að við eigum að fá frítt og þið borga.
lukkan
En það var sagt við okkur að það væri þessi tyrfing sem að ætti að borga fyrir báða flokka.
kv. Eiki
Ok, burt frá þessu dæmi þarna um daginn þá held ég að við ættum bara að sjá sóma okkar í því að taka að okkur einhverja tyrfingu. Þá er ég ekki að tala um eitthvað svæði sem þeir segja að taki kannski 30-60 mín og kemur svo í ljós að tekur allan daginn þrátt fyrir góða mætingu. Einnig að hafa smá fyrirvara og aðeins lengri tímamörk þannig að menn geti farið í þetta dæmi. Þetta síðast var ekki nægilega gott, það verður bara að segjast.
Tyrfum og svo þeir sem ekki mæta í tyrfinguna smella bara 10.000 kr. á þetta fyrir æfingagjaldi. Málið dautt.
Kv.
GRS
Post a Comment