Wednesday, October 8, 2008

Æfing í kvöld

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Vona að sem flestir mæti og nú verðum við að fá á hreint hverjir komast norður á laugardaginn. Leikurinn er settur á klukkan 16 og gætum við annaðhvort keyrt heim strax eftir leik eða tekið ölinn og reddað okkur gistingu. Ég veit ekki hvaða eftirmála það hefur ef við náum ekki í lið og verðum að gefa leikinn. Tökum stöðuna á þessu eftir æfingu.

15 comments:

Anonymous said...

Ég kem á æfingu og kemst norður.
kv. Eiki

Beggi said...

Ég kem á æfingu en kemst ekki norður.

kv,
Beggi

Anonymous said...

ég kem á æfingu en kemst ekki norður
held að trausti ætli að koma á æfingu ætla líka að bjalla í hauk
kv.siggi

Dr-Höddi said...

mæti í kvöld.
Kv. Höddi

Anonymous said...

Sælir komst ekki á æfingu og kemst ekki norður...er úti á landi að vinna.

kv. Daníel

Anonymous said...

hver er staðan á mannskap í leik fyrir norðan?
Það má reyna að bjalla í mig ef þið lendið í vandræðum með mannskap, gæti verið möguleiki á að gæti komið ef þetta stendur eitthvað tæpt.
kv. Arnar
vil taka fram að ég er svona 50-50

Anonymous said...

Vilja menn spjalla eitthvað hérna varðandi tyrfingarmálið og gjöldin. Menn þurfa að koma sínum skoðunum á framfæri og alveg eðlilegt að menn geri það og ræði svo málið við Einar í framhaldinu. Fannst lítil sem engin niðurstaða koma í málið á æfingu.

kv.
GRS

Anonymous said...

Varðandi norðurferðina þá erum við fjórir klárir (fimm með Adda). Ef við náum ekki mannskap þá verðum við hreinlega að gefa leikinn og taka þeim refsingum sem við verðum beittir ef einhverjar verða. Helst þarf að koma niðurstaða í þessu fyrir hádegi í dag. Mér finnst ansi dapurt hversu margir leikmenn "hverfa" þegar svona vandamál koma upp.
Varðandi tyrfingu og gjöldin þá var talað um að vegna þess hversu illa við mættum í tyrfingu þyrftum við að greiða 5000kr fyrir hverja æfingu hér eftir og þarf að ganga frá því fyrir helgi. Við erum að tala um c.a. tíu þúsund á mann fyrir veturinn miðað við að 15 borgi. Var þetta kannski síðasta æfing FH-B í gær og FME tekur félagið yfir???

kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég er sammála Hilmari um að þegar kemur upp svona vesen þá eru það alltaf sömu sem eru til í að gefa sig í þessi verkefni.
En hvernig er með Óla? enginn heyrt í honum??
En hvernig mun þessi greiðsla fara fram? leggjum við bara inná reikning eða?
kv. Eiki

Anonymous said...

Ja, nú fengu menn að velja um helgar og virtist þessi helgi henta flestum betur en svo bakka greinilega einhverjir út aftur.

Varðandi tyrfinguna þá verð ég að taka undir þau orð Valla að ef að tveir hópar eiga að sjá um þetta verkefni og annar hópurinn klárar (þá það sem honum er í raun lagt að gera ef við hugsum um að við eigum helminginn en L hinn helminginn) þó svo að aðeins örfáir hafi mætt. Þarna erum við ekki einungis að tapa á því að við mættum illa heldur líka því að L lagði ekkert til málanna. Það er það sem er óeðlilegt í þessu máli.

kv.
GRS

Anonymous said...

Ef engir verða búnir að bjóða sig fram til Akureyrarfarar fyrir 21 í kvöld þá gef ég leikinn fyrir okkar hönd.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Í sambandi við tyrfinguna þá er alveg point í því sem Valli sagði, Ef við gerðum um helming þá ættum við allavega ekki að þurfa að borga fullt gjald.
Eiki

Anonymous said...

Eftirfarandi tilkynningu var ég að senda HSÍ og Akureyri:

Því miður þá er okkur ekki annað fært en að gefa bikarleikinn okkar
við Akureyri sem fyrirhugaður var á morgun, laugardag. Við hreinlega
náum ekki í lið og hörmum við þetta gríðarlega.

Við óskum Akureyri-2 velgengni í bikarkeppninni.

Fyrir hönd FH-2;
Hilmar Bjarki Snorrason

Anonymous said...

Eru menn eitthvað búnir að pæla í æfingagjöldum og framhaldi FH-B?? Við vorum að fá fregnir af því að við gætum ekki spilað okkar heimaleiki á föstudögum þar sem 3. flokkur ætti heimaleiki þá. Hemmi sendi Geira skemmtilega harðort bréf í framhaldi af því og við bíðum svara. Við þurfum væntanlega að ganga frá þessum málum fyrir miðvikudaginn ef við ætlum að fá æfingu þá. Hverjir ætla að vera með í þessu í vetur og borga ef þess þarf eða þá tyrfa eða e-ð þess háttar í staðinn??? Það er kannski það fyrsta sem við þurfum að fá á hreint. Nú höfum við ekki efni á að hafa einhverja farþega í hópnum. Endilega látið vita af ykkar stöðu hér fyrir neðan.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Settu þetta á forsíðuna maður svo menn taki eftir þessu. Ekki líklegt að menn séu alltaf að skoða sömu kommentin.

Kv.
GRS