Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:00. Heyrðist á flestum á æfingu í gær að þeir ætluðu að mæta og svo mæta vonandi allir hinir sem ekki komu í gær. Svo er leikur á föstudaginn í Mýrinni við Leiftra (lögguna) klukkan 20:30. Mæting 19:45 því við þurfum að hita betur upp en síðast. Að venju mæta allir sem geta.
Ég kemst sennilega hvorki í kvöld né á morgun en treysti á að menn verði tilbúnir til að berja betur frá sér en í síðasta leik.
Thursday, October 30, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
27 comments:
Já. Einmitt. Já.
Við mætum í kvöld og hugsum aðeins og reynum að vera svolítið duglegir.
Það er það eina sem við getum farið fram á svona meðan sumarbragur er enn á spilinu hjá okkur.
Tók eftir því í gær að þótt menn hafi verið ágætlega stemmdir vantaði herslumuninn hjá okkur öllum. Verðum að gera þetta 100%!!!
Og hananú.
Kemst ekki í kvöld en ég verð kolfokkingbrjálaður á morgun. Það er loforð og ég vona að þið gefið líka svoleiðis loforð...
Og svíki einhver það loforð verður hann látinn tyrfa heima hjá Einari Andra.
ÉG VIL EKKI TYRFA STRÁKAR, STÖNDUM OKKUR. kv. Arnar
Gaui stykk kemur í kvöld og ætlar að standa í markinu, búinn að vera með flensu og svona en er klár í markið,
koma svo drengir, mæta!!!
áfram FH
sýnið hvað þið getið
setjið boltan í netið
mæti ef það er mæting...
ég mæti pottétt...og er sammála Ragga Pé. Æfingin í gær var samt sú besta í vetur (að mínu mati) en við getum enn gert betur...harkan sex í kvöld og vonandi mæta menn.
kv.
jóiskag
Mæti í kvöld.
Ég mæti.
kv. Eiki
sælir drengir
ég er tæpur í leikinn í kvöld, en ef ég kem þá mæti ég bara um 20.30 kv. Arnar
Ég mæti í kveld alveg klellaður og tek trellann í hálfleik ef þið verðið ekki klellu röllaðir líka...
Bara það sama og Hemmi sagði...
Sé ykkur í kvöld
sælir,
er tæpur í leikinn í kvöld.
Reyni samt að komast.
kv,
Beggi
Tökum smá police brutality á þessa löggubjána. Sérstaklega liðhlaupann ef hann fer eitthvað að gera sig breiðan.
já, þú veist hver þú ert...
Ég er ekki viss um að ég komist í leikinn í kvöld vegna anna
kv. Siggalingur
Segir maður ekki Önnu
Ég er sammála Raggus, tökum aðeins til í hausnum á okkur og gerum hlutina af alvöru og með fullri einbeitingu. Get alveg viðurkennt að ég var ekki með neina einbeitingu í síðasta leik og ég skeit alvarlega á mig...
Ég mæti.
kv. Eiki
Ég mæti, hlakka til að flengja gauja og félaga!
Og koma svo GAS!
Er með leikskýrsluna, vantar að vísu einhver 4 mörk á FH en þau verða bara skráð á mig í staðinn :).
Kv.
GRS
ég setti þrjú, höfum það á hreinu, það er ekki oft sem ég set hann.
kv. Arnar
p.s. Gaui þú manst fittinu sem ég fékk lánaða frá Hödda?
er ekki rétt að það sé ekki æfing á miðvikudag en æfing á fimmtudag?
kv. Arnar
Það er rétt hjá þér herra Arnar. FH vs Haukar á miðvikudaginn og því fellur okkar æfing niður. Svo er æfing á fimmtudaginn klukkan 21:00 og væntanlega leikur í Kaplakrika við HKR á föstudaginn klukkan 20:00. Strandgatan er lokuð á laugardaginn og því getum við ekki spilað þá.
Ég bíð spenntur eftir skýrslu um leikinn á föstudaginn!
kv. Hilmar
Ég skal henda inn tölunum í nótt.
Kv.
GRS
Valli, Gaui Stykki, Óli og Danni með 5 mörk hver,
Addi segist hafa verið með 3 en er bara skráður með 1, Hemmi, Jói og Eiki með 1 hver. Þá vantar enn einhver 3 kvikindi sem hurfu í látunum.
kv.
GRS
P.s. undirritaður smellti 12 kvikindum :) (varð að leyfa því að fylgja með :D)
Ég veit að ég "smellti" 4 kvikindum!:)
kv. Eiki
Mark 1 úr horninu bakhrinding af Gauja, snéri honum út við stöng.
Mark 2 fittaði Gauja með fittu í láni frá Hödda.
Mark 3 hraðaupphlaup í seinni hálfleik.
kv. Arnar
Löggan skuldar, ég setti 2 eða 3 :) Klúðraði reyndar líka tveim eða þrem, en ég efast að skýrslan nái yfir það...
Uss, með þessu áframhaldi verðið þið komnir í 50 mörk...
Hemmi þú tekur þá bara nokkur mörk af einhverjum sem er skráður með 5 (þú mátt velja)
Kv.
GRS
Er það staðfest að leikurinn verður á föstudagskvöldið en ekki á laugardaginn????
Skiptir náttúrlega engu máli hvað ég varði. neinei....
...allt í lagi.
......ég er líka bara ömurlegur
..........jájá
...............sama er mér
................... :(
Post a Comment