Tuesday, September 30, 2008

Nú förum við norður og ekkert rugl!

Dregið var í bikarnum í gær og fengum við KA sem samanstendur af reynsluboltum af norðurlandi. Þeir fá heimaleik þar sem þeir eru ekki í neinni deild en við að sjálfsögðu í Utandeild. Leikina á að spila nú um helgina og stakk ég uppá að við myndum spila á laugardeginum og kannski öl á eftir. Hvað finnst ykkur? Eru menn ekki klárir í þetta??? Er ekki málið að keyra norður á nokkrum bílum, vinna leikinn, hella í sig og gista??? Hverjir eru menn og hverjir eru mýs??? Ef það hentar betur gætum við væntanlega frestað leiknum um viku.

Svo er Utandeildin farin að byrja og eru 12 lið skráð til leiks: Afturelding, FH, Júmboys, Leiftri, Heimsliðið, HKR, Höttur, Kíklóparnir, Kórdrengirnir, Lukkan, Selfoss og Víkingur. Lagt er til að það verði spiluð einföld umferð og svo átta liða úrslitakeppni. Einnig verði bætt inn bikarkeppni utandeildarliða sem verði væntanlega spiluð í janúar.

23 comments:

Anonymous said...

Það myndi henta mér betur ef leikurinn yrði næstu helgi.
kv. Eiki

Anonymous said...

Jamm, ég kem allavega ekki um þessa helgi vegna vinnu. Því miður.

Kv.
GRS

Anonymous said...

Smá breyting, það yrði betra að hafa þetta núna um helgina. Ekki frestun fyrir mig.

Kv.
GRS

Anonymous said...

ég kemst sko ekki...

kv. jóiskag

Anonymous said...

Minni svo á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Vona að við náum almennilegri mætingu.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Mæti í kvöld

kv. Daníel

Anonymous said...

Mæti í kvöld

kv.
GRS

Anonymous said...

Er ekki hægt að plata norðanmenn til að koma með aðalliðinu hingað suður?????????????????????? Aðalliðið þeirra á að spila við HKR (Reykjanes) um helgina

Anonymous said...

ég kem á æfingu.
kv. Eiki

Anonymous said...

Höttur, Kíklóparnir, Kórdrengirnir og Heimsliðið... Er eitthvað vitað um þessi lið og hvaðan þau koma t.d.????

Kv.
GRS

Anonymous said...

Æfing í kvöld?????

Anonymous said...

ég og höddinn erum game allavega
kv. Eiki

Anonymous said...

Sælir
Kemst ekki á æfingu á eftir.
Gaui Sverris sló tyrfinguna af á morgun vegna veðurs.
Ef það er hlýnar á sunnudag þá er hægt að fara í þetta þá en skv. núverandi spá er það ólíklegt. Hvað vilja menn?
kv. Daníel

Anonymous said...

Við tökum bara þessa tyrfingu þegar veður gefur;)

Anonymous said...

Eru menn til í að mæta í tyrfingu á morgun (mánudag) klukkan 18:00? Það á að kalla lukkuna í þetta verkefni líka, þannig að ef FH-B fjölmennir þá ætti þetta að taka stuttan tíma.

kv. Daníel

Anonymous said...

Ef menn hafa áhuga...

HKR (Reykjanesbær)

http://arnar.dk/index.php?option=com_frontpage&Itemid=1

Lukkan (úffff)

http://lukkan.blogcentral.is/

Júmboys er bara gamla Aftureldingarliðið Bjarki Sig og Þorkell og fleiri

Kórdrengirnir (ekkert vitað um þetta lið)

Víkingur (heldri víkingar)
http://www.vikingur.is

Heimsliðið (virðist vera eitthvað lið frá Bifröst án þess að geta staðfest það)

Selfoss (er bara sama gamla liðið frá Selfossi)
http://www.umfs.is/handbolti/utandeild-handbolti/

Kíklóparnir (ekkert vitað um þetta lið)

Höttur (kemur frá Egilsstöðum)
http://hottur.egilsstadir.is/Handknattleikur/handknattleikur.htm

Leiftri (ekkert vitað um þetta lið)

Afturelding http://www.afturelding.is/

Anonymous said...

Spurning bara með veður í dag fyrir tyrfingu. Er ekki best að skella sér á þetta þegar vel viðrar svo menn hafi engar afsakanir. Svo finnst mér að annaðhvort mæti menn eða borgi fimmara í æfingargjöld.

kv. Hilmar

Daniel said...

Skv. Framkvæmdarstjóranum þá liggur mikið á þessu og þyrfti að kára þetta í kvöld sama hvernig viðrar...
Lukkan ætlar að mæta ásamt nokkrum í stjórninni.

Anonymous said...

ég kemst ekki fyrr en rétt fyrir 7 því ég er að vinna. Hvað á þetta að taka langann tíma?
kv. Eiki

Anonymous said...

Er að vinna til 18 en reyni að komast eins fljótt og ég get.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég kemst ekki. Þarf að vinna til 20
kv. Eiki

Anonymous said...

Var kallaður í vinnu rétt fyrir kl sex (allt að fara til fjandans...) Kemst/komst því ekki í kvöld, því miður.

kv.
GRS

Anonymous said...

Sælir. 3 fulltrúar mættu frá FH-B og svo 1 í viðbót á síðustu metrana.
Verkið er vel rúmlega hálfnað og þyrfti að klárast í kvöld. Við vorum 6 manns í gær í rúman klukkutíma með þetta. Þannig að ef það mæta 5 frá okkur í kvöld (sem ekki mættu í gær) + nokkrir frá lukkunni þá klárast þetta á hálftíma-klukkutíma.
Þeir sem ekki mæta verða rukkaðir um æfingagjöld. Þetta er auðveldasta tyrfing sem við getum mögulega fengið og því í raun fáránlegt að mæta ekki!!!

kv. Daníel