Friday, August 29, 2008

Tímar og verkefni

Sælir drengir, ég er búinn að ræða við Einar Andra og planið er enn í vinnslu, þó liggur fyrir að miðvikudagar og föstudagar eru lausir, en hann ætlar að sjá hvernig næsta vika þróast.

EN til að greiða fyrir gersemarnar þá þurfum við að taka eitt eða tvö verkefni fyrir FH eins og undanfarin ár, að þessu sinni er það tyrfing á sunnudag. Við og Lukkan erum ábyrg fyrir þessu svæði. Það er talað um að þetta taki c.a 2 tíma, þannig að það væri ekki vitlaust að byrja uppúr hádegi. Endilega staðfestið mætingu hér í commentununm.

Tímatafla ætti að liggja fyrir strax í byrjun viku þá pósta ég henni hér.

Skál!

10 comments:

Anonymous said...

Ég mæti. Líst vel á að mæta kl 12. en spurning er bara hvar? Finnst tímasetningin, fyrir fyrstu æfingu, samt óhentug. Hef ekki trú á neinni dúndur mætingu. En vona að menn sýni engan aumingjaskap og mæti.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Stefni á að mæta...

Kv.
GRS

Anonymous said...

ég kemst ekki á sunnudaginn, þetta er hrikaleg tímasetning

kv

Gaui

Anonymous said...

Ég kemst ekki á sunnudag, verð ekki í bænum. Hvenær var annars verið að spá í að hafa fyrstu æfingu?
kv. Eiki

Ragnar said...

Kemst ekki. Barnaglens og tilbehör hjá mér. Hvað er málið með að láta okkur fyrirframgreiða tyrfinguna?
Treystir klúbburinn okkur ekki???

Ragnar said...

B.t.w. Djöfull er ég svalur að vera fyrsti gaurinn með mynd á fh-blogginu.

Dr-Höddi said...

kemst ekki er að flytja
kv. Dr

Anonymous said...

Erum við þá að tala um fyrstu æfingu á miðvikudaginn??

Beggi said...

Er að sjá þetta fyrst núna, þ.e. varðandi tyrfingu og hressleika!

Er búið að negla niður fyrstu æfingu?

- Beggi

Hermann Fannar said...

Æfing á miðvikudag klukkan 21.30. Allir ON?