Við vinnum í kvöld. Við mætum tilbúinir í þennan leik í kvöld. Byrjum frá fyrstu mínútu að spila harða og hreyfanlega vörn með látum. Sóknin verður þannig útfærð að boltinn verður látinn fljóta vel. Ef menn eru að skjóta of snemma eða eitthvað þaðan af verra fara þeir bara út af.
Við ætlum að fagna hverju marki eins og það sé enginn morgundagur. Það verða engar feilsendingar. Við munum skora urmul af mörkum úr hraðaupphlaupum og ekki geiga einu einasta skoti í þeim bransanum enda er það bara rugl.
Snaróði Svíinn mætir aftur til leiks og er það vel. Bjóðum hann hjartanlega velkominn aftur.
En allavega. Mæting tímanlega klukkan 20:15 og muna góða skapið.
Áfram FHb!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
13 comments:
Sælir drengir,
Ég og Hemmi ræddum saman eftir miðvdags æfinguna þar sem smá þeytingur kom upp og erum sammála um eftirfarandi atriði,
Við verðum að hafa gaman af þessu og hætta öllu tuði í okkur sjálfum og dómara.
Verðum að spila vörn þar sem allir eru fyrir alla að berjast eins og ljón.
Ef við gerum bara þetta að þá getum við bara unnið það sem við viljum, og það er staðreynd, ég hef séð þetta gerast oft, og þarna skiptir geta ekkert meginmáli.
Og munum að þetta er hópíþrótt og við erum að stefna að því sama allir saman, að menn detti í einhvern fíling þar sem þeir ætla að skora mest og jari jari gengur ekki.
Ef maðurinn við hliðiná þér er í betra færi þá er bara gefið á hann, það er bara þannig, megum ekki detta í eiginhagsmunarugl, vinnur enginn leik þannig.
Þannig að ég segi: treystum hvor á annan og vinnum hvor fyrir annan og höfum gaman að þessu þá erum við bara bingo maradona....
Við vinnum þennan leik í kvöld!
sjáumst ferskir,
kv
Gaui
Ánægður með þessa dúndur pistla! Það má hins vegar ekki gleyma því að okkur vantar dómara og spurning hvort Óli og Beggi geti tékkað á sínum mönnum og látið vita hér með stöðu mála sem fyrst. Er búinn að fá staðfest frá Selfyssingunum að þeir mæta. Reikna sjálfur með að sitja á klukkunni þar sem ökklinn er í ruglinu. Vona að allir aðrir séu heilir og fórni sér í verkefnið í kvöld og efast ekki um að brostæknin á eftir að skila sigri.
Ég mæti en ætla ekki að dæma kv siggalingur
ps.
og svo er bjór á hansen eftir er það ekki
Egill (Svennabróðir) er til í að dæma en það vantar annan með honum. Geta menn tékkað á þessu sem fyrst svo þessi mál séu frágengin. Minni menn á að mæta með 500 kall fyrir dómara. Hemmi verður víst ekki með vegna meiðsla. Væri samt til í að fá hann á bekkinn til að stjórna en veit ekki hvort það er möguleiki.
kv. Hilmar
gangi ykkur vel drengir í kvöld, ég hugsa til ykkar á pöbbinum í kvöld í London.
Kick ass boys.
kv. Arnar
Ég mæti, koma svo upp með móralinn og rústum þessum leik. Við töpum ekki 2 fyrir selfess
Það er enginn að fara að tapa neitt hérna í kvöld. Það bara er ekki að fara að gerast!
Ég er 50/50 (lesist fiftí-fiftí) með mætingu í leikinn í kvöld (crapp fokker) - þar sem frúin er í útlöndum og flestir aðstandendur vant við látnir.
Er þó að reyna að græja þetta og redda pössun. Hendi inn commenti þegar ég er búinn að tékka á þessu betur.
Litli bróðir getur ekki dæmt í kvöld þar sem hann er sjálfur að keppa í kvöld.
Ég er að berjast við flensudrasl..en fórna mér í þetta fyrst að Hermann er slasaður. Fer bara beint heim núna og legg mig...
Kem ekki frekar en síðustu viku :(
En hvernig væri að þið drullist til að vinna leik þar sem maður er ekki með :D...
Kemst að öllum líkindum ekki heldur til að dæma þó ég hafi verið að pæla í því ef það vantar.
Kv.
GRS
mæti í kvöld með 1 stk dómara.
kv. Höddi
Glæsilegt að það sé búið að græja dómara. Hvernig er með Simma, er ekki nauðsynlegt að fá hann ef Hemmi er meiddur og Danni slappur??
Ég mæti mjög líklega seint, en samt vonandi fyrir leik. Er að fara út að borða og fínerí og ég vonandi verð kominn áður enn leikur hefst. Ef ekki, þá rétt á eftir. Rústum þessum kvekendum.
kv. Eiki
Post a Comment