Friday, April 4, 2008

Góður sigur

Við náðum okkur í tvö stig í viðbót í kvöld í góðum leik á móti sterku liði Selfoss. Það voru ekki nema níu leikfærir menn sem mættu og svo undirritaður á klukkunni. Við byrjuðum leikinn mjög vel sóknarlega og klikkuðum varla skoti fyrstu tuttugu mínúturnar. Var það Danni sem fór þar fremstur í flokki og var hann grunsamlega oft frír á línunni. Vörnin var hins vegar mjög slök þar sem menn voru ekki að færa nógu vel. Þegar leið á hálfleikinn fórum við að taka verri skot og Selfyssingarnir náðu yfirhöndinni og leiddu í hálfleik 18-20. Við fórum vel yfir stöðu mála í hálfleiknum og allir vissu hvað þyrfti að laga enda var vörnin stórgóð mestan seinni hálfleikinn. Þegar 15 mínútur voru eftir vorum við komnir fjórum mörkum yfir og héldum því nánast fram á síðustu mínútur þegar Selfyssingarnir náðu að saxa á forskotið. Það var óþarflega mikil spenna í lokin en við höfðum þetta 38-37.
Danni: 12 mörk sem er einmitt jafnt því magni af íbúfeni sem hann tók fyrir leikinn. 2 úr vítum að mig minnir og alltaf jafn öruggur þar. Einnig sterkur varnarlega.
Óli: 10 mörk og var með fína nýtingu. Skoraði nokkur glæsileg mörk, átti nokkrar línusendingar og stjórnaði vel vörninni eftir að við fórum í 5-1.
Höddi:4 mörk og var traustur í vörn og sókn. Var kannski ekki alveg á 100% þar sem það var enginn til að skipta við hann en skilaði sínu samt vel og setti mikilvægt mark í lokin.
Siggi: 4 mörk og stjórnaði spilinu virkilega vel. Hélt liðinu vel á hreyfingu og átti fínan varnarleik líka.
Pedda: 4 mörk í glæsilegri kantinum úr horninu. Fínn leikur hjá honum.
Eiki: 3 mörk. Spilaði margar stöður og leysti þær vel. Átti góðar stoðsendingar og stolna bolta.
Haukur: 1 mark og var ekki að spila sóknarleik eins og hann gerir best en bætti fyrir það með mikilli baráttu í vörninni og lokaði þar vel.
Stykkið: Ekkert mark en átti góðar línusendingar og spilaði vel. Var duglegur eftir að hann kom útaf að öskra menn áfram og virkaði eins og góður öllari á liðið (vítamínsprauta á ekki við um þetta lið). Stjórnaði vel í lokin og tók leikhlé á réttum tíma og stappaði stálinu í menn.
Raggi: 24 skot varin og þar af nokkur ansi erfið og mikilvæg í lokin. Varði fanta vel þrátt fyrir að vörnin hafi verið mjög slök í fyrri hálfleiknum og næst besti maður liðsins í kvöld.

Allt annað að sjá til liðsins í kvöld og þetta sýnir okkur hvað við getum ef við sleppum tuðinu og leikgleðin og baráttan ráða ríkjum. Reyndar var ekki yfir neinu að tuða því Egill dæmdi leikinn fanta vel og á hann allar okkar þakkir fyrir.

Svo er það bara æfing á mánudag og leikur miðvikudag við Júmboys að Varmá. Verðum að mæta betur þá og ef við spilum þann leik eins og seinni hálfleikinn í kvöld þá þarf ekki að spyrja að leikslokum.

Skál í boðinu...

15 comments:

Hermann Fannar said...

Stórkostlegt!

Sjáumst í kvöld!

Daniel said...

Ég mæti ekki, er víst með streptókokkasýkingu en stefni á að ná mér góðum fyrir miðvikudag.

Anonymous said...

Ég stefni á að mæta í kvöld...

Kv.
GRS

Hermann Fannar said...

Shit Danni vissiru þetta:

Streptókokkar eru ættkvísl kúlulaga Gram-jákvæðra gerla. Þeir vaxa í keðjum vegna þess hvernig þeir skipta sér.

Streptókokkasýkingar valda hálsbólgu, heilahimnubólgu, júgurbólgu, lungnabólgu, hjartaþelsbólgu og fleirum sýkingum.

Vona svo sannarlega að þú náir þér ekki í júgurbólgu.

Láttu þér batna!

Anonymous said...

ég er tæpur vegna vinnu
kv siggalingur

Anonymous said...

Stefni á að mæta í kvöld.
kv. Hilmar

Beggi said...

mæti í kvöld!

Daniel said...

ég hélt ég væri að fá svona svaðalega kassa...nei júgurbólgur!!!

Anonymous said...

sælir drengir
þarf að vinna á miðvikudag, þannig ég á ekki von á að komast í leikinn, ég reyni. kv. Arnar

Anonymous said...

bíddu ertu ekki kennari??

eru þeir ekki alltaf í fríi

Anonymous said...

vinn líka á kvöldin, samræmd próf framundan og slíkt.
kv. Arnar
p.s. skrifa undir nafni

Anonymous said...

hva eru sæmræmdu prófin ekki á morgnana??

nei djók

ég er bara að ríða þér

sorry gleymdi að skrifa undir nafni

ég heiti les stykk og ætlaði að hafa smá kennaragrín...

Anonymous said...

ef þú ert að ríða mér afhverju finn ég þá ekkert fyrir því??????
kv. Arnar

Anonymous said...

Hann er bara ekki nógu stór til að finna fyrir honum...

Kv.
GRS

ps. þá meina ég stykkið...

Anonymous said...

ætla ekki allir að koma í leikinn í kvöld
kv siggi