Já við stóðum okkur heilt yfir nokkuð vel gegn hepnu liði Júmboys. Hepni þeirra umfram okkar liggur í tja, 500 ára samanlagðri reynslu.
Almennt var ég ánægður með að sjá að menn nentu að berjast og keyra þó svo að útlitið væri á köflum svart. Einn af betri leikjum okkar hvað það varðar í langann tíma.
Úrslitin í leiknum 13 - 13, lengra man ég ekki.
Vert að taka fram að þrátt fyrir einn dómara hjá Júmboys, þá stóð hann sig frábærlega og kemst klárlega í fyrsta sætið fyrir bestu útivalla dómgæslu þessa vetrar.
Maður leiksins: Fúsi
En við getum heldur bætt í og klárað mótið með sóma því á mánudag er annar leikur við félagana.
Og að lokum, þá eru föstudagsæfingar oft ekki mikið fyrir augað, þannig að mig langar að bjóða mönnum að kíkja í fússara í Risanum klukkan 21.00. Ég tek það fram að þar eru fleiri en einungis FH-b menn, þannig að við ættum auðveldlega að ná 5 á 5 eða jafnvel fleiri.
Endilega kommentið á herlegheitin hér að neðan.
Friday, April 11, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Má hver sem er mæta????
þ.e. í fótboltann
kv. Arnar
Er búinn að festa leikinn á móti Júmboys á mánudaginn og gefa leikinn á móti Völsungi. Held ég treysti ekki ökklanum í fótbolta en væri annars til. Endilega setja í framtíðinni inn á síðuna ef það er verið að smala í fótbolta því ég held að það séu margir til.
Hilli þú getur verið í marki!!!
Hefði komið í boltan í kvöld ef maður hefði ekki verið að vinna. Endilega smella hér inn með fótboltan í framtíðinni.
kv.
GRS
hvenær er mæting í leikinn á mánudag?
kv. Arnar
Mæting 20:30, leikurinn byrjar 21:15. Við þurfum að sjálfsögðu að redda dómurum og væri frábært ef Raggi eða Hemmi gæti talað við Egil og Óli, Beggi og Höddi talað við sína menn svo þessi mál verði frágengin sem fyrst. Og láta vita af stöðu mála hér á síðunni. Þetta er síðasti leikurinn í vetur þannig að ég trúi ekki öðru en að það mæti allir og gefi 110% í þetta. Vonandi koma svo Raggi eða Hemmi með pepp-pistil.
Hvað varð um að hafa leikinn á fös. og hafa slútt eftir hann.
kv siggi
Júmboys verða á Húsavík á föstudaginn.
kv. Hilmar
Ég mæti í kvöld
Ég mæti að sjálfsögðu
kv. Hilmar
mæti með miklu kæti
kv. Arnar
vill hrósa gervigrasfótboltanum á föstudag.
Post a Comment