Monday, March 3, 2008

Tvö stig í hús

Sigur á ÍH á föstudaginn 42-33 skilaði tveimur stigum í hús og við höldum áfram stefnunni á titilinn. Það var góður fyrri hálfleikur sem skilaði þessum sigri en við vorum með níu marka forystu í hálfleik 24-15. Gaui lögga átti mjög góðan fyrri hálfleik, eins og flestir í liðinu og Danni átti frábæran leik og endaði með 12 mörk. Klárlega maður leiksins. Við náðum okkur aldrei alveg á strik í seinni hálfleik og voru menn ekki alveg 100% í honum en gerðu það sem þurfti til að landa sigri gegn annars ágætu liði ÍH. Óli og Gaui klikkuðu báðir sínum vítum og Danni hirti punktinn af þeim og sýndi fádæma öryggi.
Mörkin skoruðu:
Danni 12
Óli 9
Gaui lögga 7
Eiki 5
Höddi og Siggi 3
Stykkið 2
Pedda 1

Hilmar stóð í markinu og varði 20-25 skot. Aðrir sem spiluðu voru Jói og Toby.
Held að Óli fái ekki að taka fleiri víti og klárlega fær Stykkið ekki að halda fleiri hálfleiksræður!

Vonast til að sjá sem flesta á æfingu í kvöld því það getur verið að það verði ekki æfing á miðvikudaginn. Það verður svo útileikur við WC í Mýrinni á föstudaginn og við verðum að mæta tilbúnir í þann leik því þeir hafa spila vel undanfarið og unnu m.a. Júmboys.

Áfram FH-B!!

13 comments:

Anonymous said...

Glæsilegt drengir, hlakka til að fara mæta, vona að það verði kannski í næstu viku. Aðeins aumur ennþá.
kv. Arnar

Anonymous said...

Ég kemst ekki í kvöld vegna meiðsla.
kv siggi

Anonymous said...

Stefni á að mæta...

Kv.
GRS

Anonymous said...

Ég mæti

kv. Hilmar

Anonymous said...

fékkst frestun gegn Völsungi?

Anonymous said...

ég mæti

Ragnar said...

Mæti

Anonymous said...

ég kem

kv. Daníel

Anonymous said...

Hamingju með sigurinn.....djöfull hefur maður verið lélegur að skora ekkert :) .........og óli! jæja ég þarf ekki að segja neitt :)

Dr-Höddi said...

mæti
kv. Höddi

Anonymous said...

mæti
Eiki

Hermann Fannar said...

Ég mætti...

Anonymous said...

er æfing í kvöld, 5 mars?