Ég veit ekki hvar maður á að byrja eftir aðra eins útreið. Jú byrja á jákvæðu þáttunum en ég vil setja plús á Hilla og Begga sem virtust einu mennirnir sem langaði. Við hinir ættum að skammast okkar fyrir þessa framistöðu. Ég nenni ekki að fara að greina e-ð það sem illa fór en líkurnar á því að við náum að sigra þessa deild eru engar ef við ætlum að spila svona.
Hysjum upp brækur og klárum það sem eftir er með sæmd.
Hendi líka tveim plúsum á Sigga og Adda fyrir að fórna sé fyrir málstaðinn!
Eru menn í stuði fyrir æfingu á miðvikudag. Væntanlega þá æfingu og ÖL.
Tuesday, March 18, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
14 comments:
kem, ef næg mæting næst.
kv. Arnar
Ég er til.
kv. Hilmar
Ég verð því miður að boða horföll á morgun vegna óviðráðanlegra aðstæðna - langar þó mikið að sprikkla!
Tek undir með Hemmanum - verðum að girða duglega í brók í næstu leikjum.
Kemst því miður ekki vegna vinnu.
Held að þetta sé í fyrsta skipti á ævinni sem maður á erfitt með að sofna eftir tap... Held að þetta kenni okkur að koma tilbúnir til leiks héreftir, höfum bara ekki efni á öðru.
kv.
GRS
Búinn að vera með girt upp á maga í dag...yfir peysuna.
Annars er ég heitur fyrir æfingu og öli annað kvöld en er samt ekki 100%
Ég get alveg viðurkennt það að ég var alveg úti á túni í gær og var algjörlega með skítinn upp yfir hnakka. En ég ætla að girða mig vel í brók fyrir næsta leik.
Og ég er vel game í góða æfingu og öl á morgun.
kv. Eiki
HA? töpuðum við fyrir lukkunni??? ætla ekkert að vera leiðinlegur en eruð þið að grínast strákar mínir, þetta hlýtur bara að vera afleiðing þess að menn eru farnir að stunda það að vera í softball í tíma og ótíma...hehe
samt leiðinlegt að heyra þetta með tapið, shit
kv
Stykk
Held að það taki því ekki að mæta fjórir á æfingu. Við fjölmennum bara eftir páska.
Kv. Hilmar
er engin stemmari fyrir léttri æfingu, þess vegna bara smá fótbolta og svo ÖL???
kv. Eiki
Langaði bara að bjóða ykkur uppá stöðuna í dag. Nú vitum við hvað við þurfum að gera og það gerum við aðeins með því að spila nákvæmlega eins og við gerum best og vera með skap og haus í lagi.
1.Júmboys 12 11 0 1 442:333 109 22 2. HK 14 10 1 3 476:426 50 21
3. FH 13 10 0 3 457:366 91 20
4.Selfoss 13 9 1 3 370:315 55 19
Leikir sem eftir eru:
FH
HK (Ú)
Selfoss (H)
Júmboys (Ú)
og frestaðir leikir eru
Völsungur (Ú)
Júmboys (H)
Möguleg 10 stig þar af 4 leikir (8 stig) gegn þeim liðum sem við erum í baráttu við. Bendi á að þetta er eins erfitt prógram og hægt var að hugsa sér og það er orðið erfiðara núna eftir síðasta leik.
Júmboys
HR (H)
HK (Ú)
FH (H)
Völsungur (Ú)
Frestaðir leikir eru
Selfoss (Ú)
FH (Ú)
12 stig í pottinum þar af 4 leikir (8 stig) gegn liðunum sem eru í baráttunni.
HK
FH (H)
Júmboys (H)
Boltafélagið (H)
Völsungur (Ú)
8 stig í pottinum þar af 2 leikir (4 stig) gegn liðunum sem eru í baráttunni.
Selfoss
FH (Ú)
Boltafélagið (Ú)
HR (H) (vantar úrslit líklega frestaður leikur)
Frestaðir leikir eru:
ÍH (Ú)
Júmboys (H)
10 stig í pottinum þar af 2 leikir (4 stig) gegn liðum í baráttunni.
hvernig var með rauða spjaldið, skráðist það á skýrsluna?
Hvaða rauða spjald?
kv. Hilmar
Er æfing í kvöld?
Er æfing í kvöld ?
Post a Comment