Þá er komið að fyrsta úrslitaleiknum hjá okkur og held ég að það hljóti að vera auðvelt fyrir menn að gíra sig upp eftir hörmulega frammistöðu í síðasta leik. Leikurinn er við HK í Digranesi klukkan 18:00 og legg ég til að menn mæti tímanlega, svona einu sinni til tilbreytingar, klukkan 17:15 og allir verði klárir í hörku upphitun 17:30. Vonandi mæta sem flestir því okkur veitir ekki af liðstyrknum. Menn verða að muna að taka leikgleðina og baráttuna með svo verðum við að spila okkar leik og leggja allt í sölurnar. Ég þykist vita að Raggi ætli að fara á kostum í markinu, Eiki hendi inn slatta úr hraðaupphlaupum og Óli setji nokkrar sleggjur. Hinir fylgja svo að sjálfsögðu með. Ef allt gengur vel gæti Addi jafnvel nælt í eitt rautt...
Áfram FH-B!!!
Sunday, March 30, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
13 comments:
Leikurinn er að sjálfsögðu í dag, sunnudag, og ég mæti.
kv. Hilmar
að fá rautt væri auðvelt ef ég væri ekki rúmliggjandi með 39 stiga hita og vesen.
Gangi ykkur vel.
kv. Arnar
p.s. enga miskunn á Björgvin
mæti að sjálfsögðu
Kem ekki í dag né næstu viku vegna einhvers vesens í hjartanu á mér :(
skítur skeður en stefni á mánudaginn eftir viku...
Kv.
GRS
Ég mæti galvaskur!
ég mæti - vinnum nú þessa HK-druslur!
siggalingurinn mætir og ekkert væl buffum þetta fucking HK lið
Ég mæti ferskur
check
Hörm
Er ekki spurning um að ná góðri mætingu í kvöld og hrista af sér skítafýluna síðan í gær??
Menn mæta þá kannski tímanlega, en eru ekki að gúbbúst inn í klefa fram eftir öllu!
Gaui mætir ferskur og nú verðum við að ná almennilegri mætingu hérna...líf og fjör drengir mínir
Hilmar mætir
soldið slappur, en kem líklega
Arnar
Post a Comment