Að sjálfsögðu verður æfing í kvöld klukkan 21:00 eins og vanalega. Reynið að draga menn með ykkur svo við náum að spila á tvö mörk. Mætingin var ekki nógu góð í síðustu viku. Held að Óli sé búinn að grenja í gegn softball í upphitun þannig að hann mætir væntanlega tímanlega til að stilla upp. Vona að aðrir mæti líka tímanlega svona til tilbreytingar.
Samkvæmt leikjaplani á að vera leikur við Lukkuna á föstudaginn en hugmynd er um að fresta honum til mánudags til að leynivopnið okkar frá Noregi geti verið með. Mér líst samt betur á að hafa leikinn á miðvikudag (frí daginn eftir) og fjölmenna svo í öl á eftir.
Laugvetningar eru búnir að draga sig úr keppni þannig að úrslit úr þeirra leikjum falla niður. Það hefur engin áhrif á þau lið sem við erum í baráttu við um sigur í deildinni. Við áttum leik við þá 18. apríl. Spurning hvort menn vilji ekki fá frestaða Júmboys leikinn þá í staðinn? Svo þurfum við að reyna að finna tíma fyrir Húsavík. Spurning hvort Stykkið taki ekki að sér að finna út úr því...
Monday, March 10, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
20 comments:
Hilmar mætir
rifbeinið mætir
já einmitt ég skal skipuleggja þessa húsavíkurferð, en hvað gerum við þegar veðurspáin segir él og frost....þá eru bara ákveðnir "menn" sem þora ekki að keyra í bíl...svo eru "menn" bara að fara í softball, getur verið að þetta sé að verða svolítið hommalegt strákar...viljið þið ekki bara baka og halda kökubasar í firðinum líka...
verð að vera sammála þessu, þ.e. með þetta helv.. softball crap - bara fullorðins fúss og skipt á tvö og málið dautt!!
Sælir
við Lukkumenn viljum ekki eyðileggja bjórstemmingu en erum að tala um miðvikudaginn 12.mars ekki 19.mars.
kv
Lukks
Þá frekar á mánudaginn
kv.
GRS
er enginn séns á miðvikudeginum?
lukkan
er stykkið hætt að mæta á æfingar, hvað er í gangi?
Er ekki málið að hafa leikinn annaðhvort á mánudaginn eða miðvikudaginn í næstu viku? Mér finnst morgundagurinn ekki spennandi fyrir utan það að það er leikur á sama tíma og ég efast um að það séu til tvær klukkur sem virka.
kv. Hilmar
Ef þú lest hér fyrir ofan Hilli minn að þá er miðvikudagurinn 19. ekki í boði :)
gerum þetta á morgun það er mjög góður tími. Eru ekki allir til í spil?
Erum við þá ekki bara að tala um mánudaginn? Annars höfum við leikinn bara á föstudaginn. Ég kemst ekki í kvöld.
kv. Hilmar
Ég get ekki verið með í kvöld...er ennþá meiddur í ökklanum
Annars er ég spenntastur fyrir mánudeginum
kv. dan
Ef það verður leikur í kvöld skal ég dæma fyrir smá bjór kv
siggalingur
ég er nefninlega enþá í fucki í öxl
Persónulega er mér slétt sama - þannig að allveg eins gott að klára bara þennan leik í kvöld.
Hins vegar þarf að taka ákvörðun. þýðir víst lítið ef við vitleysingarnir póstum bara eins og vindurinn.
Spurning hvort Hilli, Hemmi eða Raggi taki bara ekki ríkisákvörðun í þessu. Líðræði borgar sig seint í svona ákvörðunum!
Þar sem Hemminn var í þessu í upphafi og er búinn að vera í einhverjum tengslum við Lukkuna þá tel ég að hann taki bara ákvörðun (kannski í samráði við Hilla og Ragga)
kv.
GRS
er þá ekki málið að taka ákvörðun fyrir einhvern tilsettan tíma? Ég er sammála því að annað hvort Hilmar, Raggi eða Hemmi taki þessa ákvörðun
Já hvað er að gerast í þessu öllu
kv
siggaling
Er æfing eða leikur í kvöld??
Leikurinn verður á mánudag. Æfing í kvöld.
Post a Comment