Friday, February 22, 2008

Vík Húsanna

Nýjustu fréttir eru þannig:

Höddi getur ekki reddað bíl, þannig að það vantar tvo bíla til að ferja flotann norður.

Over and out!

21 comments:

Anonymous said...

ég er á yaris og hann á ekkert í þetta...hlótum að redda bílum á þetta helvíti trúi ekki öðru, koma svo megum ekki klikka á síðustu metrunum....svo er ein spurning, á ég að panta gistingu og mat fyrir borgþór???

Anonymous said...

það er eitt pláss eftir í mínum bíl

Anonymous said...

Ég ligg heima ælandi og veit ekki hvernig statustinn verður á mér á morgun. Bíllinn minn er á sumardekkjum þannig að ég treysti honum ekki norður. Þar sem veðurspáin er slæm legg ég til að við fáum frestun vegna veðurs.
kv. Hilmar

Anonymous said...

Við verðum að ákveða þetta strax, fólkið uppfrá er væntalega búið að kaupa lambið og svona, búinnað panta gistingu og allt....drullum okkur bara, persónulega finnst mér þetta bara vera væl og við bara reddum bílum í þetta og hilli klárar þennan ælupakka og bara lets go maður....

koma svo drengir og reply-a á þetta

kv

G

Anonymous said...

ég styð frestun, en það er skiljanlegt.
kv. Arnar sem hefur ekki atkvæðisrétt.

Anonymous said...

Ég styð G-manninn í þessu máli, hætta þessu væli og drullum okkur norður, ég er búinn að kaupa flugmiða og vesen og svo á bara að drulla upp á bak. Veðurspáin er fín. 1-3 metrar á sek., 3 stiga frost og sól á laugardag og skýjað á sunnudag. Við getum ekki farið að kenna því veðri um þetta... Við drullum okkur norður og þá spilar bara Borgþór á línunni hjá okkur..
kv. Eiki

Anonymous said...

Ég var að skoða bílaleigur og það kostar 6000 kall á mann að leiga einn Pajero í 2 daga. Finnst mönnum það of mikið? Hann tekur 5 manns og ólabíll fer með 4, þá er það komið. Hvað segið þið?
kv. Eiki

Anonymous said...

það komast fjórir í bílinn minn, þannig að það væri þá ég, konan, eiki og einhver einn í viðbót. En ég verð samt að segja að ég styð frestun,(sorry Gaui og Eiki):)

Anonymous said...

ok. þá setjið þið saman í púkk og skuldið mér 6000 kall:) Ég fæ farið ekki endurgreitt!!!!!

Anonymous said...

Ég er ekki bjartsýnn á að komast með. Ligg enn í pólitískri ælu minni og minni á dauðan hest eins og maðurinn orðaði það svo pent. Bergþór fer ekki þannig að ef ég fer ekki heldur þá erum við að tala um 7stk. Veðurspár eru einnig mismunandi og skv. Sigga stormi verður bylur á laugardag og tæplega flugveður á sunnudag. En það er minnsta mál í heimi að borga í flugmiðanum. En þetta er alfarið í ykkar höndum þar sem ég ætla að halda áfram störfum dagsins. Það þarf bara einhver að taka að sér að senda póst á volsungur@volsungur.is og robert@hsi.is ef við ákveðum að fara ekki og biðja um frestun vegna veðurs. Ef þið ákveðið að fara kem ég að sjálfsögðu með ef ég verð orðinn hress.

Anonymous said...

Það var semsagt Hilmar sem átti síðustu athugasemd.

Anonymous said...

heyrðu bíddu..

Þá þurfum við bara að redda einum bíl í viðbót

við förum strákar, verðum 4 og 4 í bíl með konunni hans óla

ég skal reyna að redda bíl

þetta er það eina sem við þurfum að redda, einn bíll!!!!

koma svo allir að reyna að troða einhverju í gang, einn bíll og málið er dautt

kv

Gaui

Anonymous said...

Ég verð að segja að ég styð báðar tillögur.
Þ.e. frestun og þá á maður sjálfur og kannski fleiri séns á að komast með (og svo kannski ekki, kannski komast enn færri, hver veit).

Hins vegar er það að menn eru búnir að vera vinna í því að vera koma sér norður, redda hinu og þessu og greiða einhvern kostnað með því. Menn hafa lagt vinnu í þetta og núna eru menn að fara bakka. Redda þessu litla sem eftir er og bara drífa sig.

(myndi pottþétt koma með ef ég væri ekki sjálfur í vinnu alla helgina)

Hætta þessum aumingjaskap og drífa sig...
Kv.
GRS

Ragnar said...

Frestum.
Algerlega.
Fer ekki Víkurskarðið nema í góðu veðri og á jeppa á nöglum. Það er bara svoleiðis.

Ragnar said...

.....+ fimm manns í bíl í sjö tíma eða svo er ekki mönnum bjóðandi.

Anonymous said...

jæja drengir þetta er off....

skil ekki hvað breyttist á einum degi, en ég verð að segja að þetta eru gríðarlega mikil vonbrigði, búið að græja og gera og eyða tíma í þetta svo bara beila menn útaf veðri.....

ég skal cansela matinn og gistinguna og unna á akureyri en þið getið sjálfir sent póst á völsung þar sem þið viljið fá frestun útaf veðri sem er ekki neitt neitt...

tek ekki að mér að græja svona aftur

yfir og út

Gaui

Anonymous said...

hver ætlar að senda póst á Völsung?

Anonymous said...

Ég skal senda á Völsung. Þakka samt mönnum fyrir að vera tilbúnir að fórna sér í þetta og eyða tíma í að græja og redda. Stundum ganga hlutirnir bara ekki upp. Vona að Völsungs-menn gangi að þessari frestun svo við fáum annan séns á að fara norður.
kv. Hilmar

Anonymous said...

Fékkst frestun?????

Anonymous said...

Rosalega ætla ég að vona að þið hafið fengið frestun, drengir. Það var verið að segja mér að Júmboys hefðu verið að tapa fyrir world class þannig að þeir eru bara einum leik á undan ykkur og eigiði ekki eftir að spila við þá tvisvar? Titilinn innan seilingar og læti....

Kv frá London,

Óli Eiríks

Anonymous said...

Ég fékk ekki svar frá Völsungunum en geri ráð fyrir að við höfum fengið frestun. Reyndar skiptir það ekki öllu máli þar sem Júmboys töpuðu fyrir WC og við erum öruggir með titilinn ef við vinnum alla okkar leiki. Vonast bara til að sjá sem flesta á æfingunni í kvöld.
kv. Hilmar