Wednesday, February 6, 2008

VIÐ ERUM STÓRI BRÓÐIR!

Mæting í Strandgötuna uppúr níu á slaginu!

Leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur og kjörið tækifæri fyrir okkur að sýna okkar bestu hliðar. Eiki ætlar að skora 10 úr hraðaupphlaupum. Óli verður óstöðvandi og kemur til með að taka flugbrautina á þetta og setja 12. Siggi ætlar að klína hverju dauðafærinu á fætur öðru í netmöskvana, líklega 7 kvikindi frá einum efnilegasta miðjumanni sem leikið hefur í svöru búningunum. Höddi ætlar að skjóta í andlitið á ellilífeyrisþeganum í marki hauka og salla 5 inn eftir það, skemmtilegt á það að minnast að öll verða mörkin eftir gríðalega góða stimplun. Hann mun að auki setja 2 úr hraðaupphlaupi því ég hef nýtekið upp á því að horfa til hægri.
Svo má reikna með þessum klassísku 5-6 mörkum frá Línukónginum Hemma og eflaust 10 fimmtán í viðbót frá hinum snillingunum í liðinu. Ég mun verja um tuttugu bolta enda verður 5 -1 vörnin ROSALEG!

Spá mín og krafa er að við vinnum þennan leik 52 - 20.

Mætum nú með hausinn í lagi, gerum skyldu okkar og gerum þetta eins og menn!

Áfram FHb!

7 comments:

Beggi said...

Heyr heyr og orð í tíma töluð.

Sigur er það eina sem kemur til greina.

Anonymous said...

bring the shit(haukar) over.
Arnar

Anonymous said...

VIÐ ERUM STóRI BRÓÐIR :)

Anonymous said...

Jæja!!! Ég er spenntur. Hvernig fór á móti fuglunum??

Anonymous said...

FH VANN. 31-28...

Anonymous said...

Við unnum 33-28. stórgóður seinni hálfleikur af okkar hálfu.
kv. Eiki

Anonymous said...

Var að fá póst þess efnis að Haukarnir væru búnir að draga lið sitt úr keppni vegna manneklu. Úrslit í þeirra leikjum falla niður og því var sigurinn á miðvikudaginn eingöngu uppá stoltið. Við höfum greinilega brotið þá alveg niður! En þetta gerir það að verkum að ef við vinnum alla okkar leiki þá verðum við meistarar.

kv. Hilmar