Monday, February 18, 2008

Sigur á föstudag, æfing í kvöld!

Það var frekar þunnskipað þið sem mætti til leiks á föstudag. Mótherjinn að þessu sinni Boltafélagið. Fimleikafélagið sigraði leikinn með 32 mörkum gegn 27. Ég held það sé óhætt að fullyrða að þetta hafi verið einn slaksti leikur okkar á tímabilinu. Við getum þakkað Boltafélaginu fyrir stuttann rugl og tuð kafla sem þeir tóku. Þá misstu þeir tvo leikmenn af velli sem gaf okkur færi á að klára þá. Fram að því var leikurinn í járnum og Boltafélagið átti eitt mark á okkur ef ég man rétt.

Maður leiksins: Toby

Svo er það æfing í kvöld, við verðum að ná góðri mætingu til að eiga einhvern möguleika um helgina gegn Völsungi.

Minni menn sem spiluðu á föstudag á að mæta með cash monný fyrir dómarana.

6 comments:

Anonymous said...

Ég kemst ekki á æfingu í kvöld mánudag 18. feb. er allur að drepast eftir leikinn á föstudag, grunur um rifbeinsbrot. Hef lítið geta sofið um helgina vegna verkja.
borgaði á föstudag þússara.
kv. Arnar

Anonymous said...

Kemst ekki í kvöld vegna vinnu :(

Kv.
GRS

Anonymous said...

Ég mæti í kvöld

Anonymous said...

ég mæti með pening, og vonandi sprækari en á föstudaginn

Anonymous said...

Ég mæti í kvöld!
kv. Eiki

Beggi said...

skróp í gær!

Það urðu óvænt horföll hjá mér í gær - náði ekki að pósta ókomu á síðunni góðu.

kv,
Beggi