Thursday, February 21, 2008

Húsavík

Það er ljóst að við förum á Húsavík enda erum við engir aumingjar! Þeir sem fara eru:
Hilmar, Höddi, Gaui, Siggi, Eiki, Óli, Raggi og Bergþór sem verður til taks ef eitthvað kemur uppá. Unni og Daddi bætast svo væntalega í hópinn þegar komið verður norður. Óli og frú ætla á bíl og Höddi var síðast þegar ég vissi að vinna í að redda átta manna bíl. Gaui er fararstjóri ferðarinnar og setur væntanlega inn frekari upplýsingar hér fyrir neðan og eins Höddi með bílamálin.

kv. Hilmar

5 comments:

Anonymous said...

bíllinn hans óla er fullur af einhverjum óléttum kellingum þannig að það er bara hann og konan sem fara í þeim bíl...
kv. Eiki

Anonymous said...



Það sem liggur fyrir er matur:

Kl 21

9 persónur

Grillað lamb með rauðvínssósu og bakaðri kartöflu kr 2350

Svo talaði ég við dadda og hann kemst ekki en unni ætlar að koma, er til í ruglið og við pikkum hann upp á akureyri.

þá er þetta þannig að við erum 8 sem spilum(og ein klappstýra) og það steinliggur.

Legg til að við leggjum af stað kl 10.30 og hittumst uppí krika þá á slaginu.

þá er þetta bara klárt drengir mínir

kv

Stykko

Anonymous said...

8 manns á að vera alveg nóg í þetta dæmi. Engan kellingaskap og berja á kvikindunum...

Svo er bara að fá sér eitt skot fyrir okkur sem ekki komast með (þá meina ég ekki í leiknum).

Kv.
GRS

Anonymous said...

það er pláss í bílnum fyrir þig Eiki minn, það er búið að redda því. Þannig að þér er velkomið að koma mðe mér. En strákar ég vill ekki eyðileggja stemminguna fyrir ferðina n hafið þið skoðað veðurspánna?

Anonymous said...

Hæg vestlæg eða breytileg átt, en vestan strekkingur með suðurströndinni á morgun. Él vestantil en léttskýjað austanlands. Hiti í kringum frostmarki við sjóinn sunnanlands, en yfirleitt frost 3 til 7 annars staðar.
Spá gerð: 21.02.2008 18:48. Gildir til: 22.02.2008 18:00.


Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðaustan strekkingur með snjókomu eða slyddu við suðausturströndina, en mun hægari breytileg átt og stöku él annars staðar. Frost 1 til 10 stig, en frostlaust við ströndina sunnantil á landinu.

Á sunnudag:
Suðvestlæg átt og stöku él, en bjartviðri norðan- og austanlands. Talsvert frost víðast hvar.