Tuesday, February 12, 2008

Húsavík

Það styttist í Húsavíkurferðina góðu en leikurinn gegn þeim er settur laugardaginn 23. febrúar. Eitthvað virðist ætla að verða um forfoll en við þurfum að finna útúr því hverjir það eru sem komast og hvernig hægt væri að raða niðrá bíla. Þá þurfa menn að ákveða hvort þeir vilji gista á Húsavík eða bruna í bæinn beint eftir leik.

Líklega þarf að leggja af stað ekki seinna en um 7 á laugardagsmorgninum þar sem leikurinn er settur klukkan 14.00.

Endilega látið vita hvort þið komist og þá hvort þið hafið bíl eða hvernig þið sjáið þetta fyrir ykkur.

.-Hörm

24 comments:

Hermann Fannar said...

Sjálfur tel ég litlar líkur á að ég sé að fara í þessa ferð, en það er þó ekki alveg komið á hreint.

Anonymous said...

Ég hafði hugsað mér að best væri að keyra á laugardagsmorgni(jafnvel á bílaleigubíl), gista aðfaranótt sunnudags og keyra heim helþunnir og sigurreifir á sunnudegi. Ég var að senda víkingunum póst og athuga hvort hægt væri að seinka leiknum til 18:00 og hvort þeir gætu reddað okkur gistingu. Læt vita þegar ég fæ svar. En ég stefni á norðurferð.

kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég er að gera ráðstafanir hérna og mér sýnist ég sé að verða klár í þetta, segjum að ég sé 80% á mætingu, alveg pottþétt

Þá held ég að það sé klárt að við erum að fara að leggja af stað um 10 á lau og keyra svo í bæinn daginn eftir alveg helþunnir og allt í klassamálum..

Er það ekki annars? ég er allavega klár í ruglið

kv

Gaui

Anonymous said...

Litlar líkur á að ég farí í þessa ferð, verð þó að fá að sjá til hverning vinnan er og fleira
Tel 80% líkur á að ég komi ekki með í þessa ferð :(

Kv.
GRS

Anonymous said...

Ég er game í þessa ferð. Er til í ruglið!!
kv. Eiki

Anonymous said...

Ég er off á Húsavík og missi líka af leiknum á föstudag. Ég er bara í rugli.

kv. Daníel

Anonymous said...

ég er 90% í þessa ferð, þetta er allt í progress

Anonymous said...

ég er game í ferðina.
eins og þið vitið þá er ég alltaf í rugli.
kv. Arnar
hef ekki bíl til að fara á.

Ragnar said...

með klárlega

Ragnar said...

Hvað er málið með formann litlukallafélagsins? Þarf eitthvað að ýta undir að hann mæti?

Anonymous said...

Völsungarnir eru tilbúnir til að færa leikinn til 18 og eru að athuga með ódýra gistingu fyrir okkur. Ég minni menn á æfinguna í kvöld klukkan 21:30 þar sem ég ætla að berja þrjá í gólfið.
kv. Hilmar

Anonymous said...

Eina sem þú getur barið er harðfiskur og bara ef hann liggur fyrir á gólfinu...

Kv.

Anonymous said...

Fékk þetta svar frá Húsvíkingum:
Sæll Hilmar. Til að fá gistingu á góðu verði hringdu í Börk Emilsson
8963885
Hann er með gistihimili og rekur veitingastaðinn Sölku. Hann er líka
nílega tekinn við rekstrinum á ÁTVR á Húsavík. Matur vín og gisting
hjá
sama aðila.
Kv. Sveinn A
Ef þetta er eitthvað sem okkur líst á þá hringir kannski einhver sem er betri samningamaður en ég. En það væri samt gaman að heyra í jafn voldugum manni og þessum.

Anonymous said...

ég held að kálfinn ætti að hringja í Svein A

Anonymous said...

sammála, Gaui hringir í Börk Emilsson, let´s kick ass, or drink beer.
kv. Arnar

Anonymous said...

hefur einhver frétt af Sigga síðan á æfingunni í gær?

Hermann Fannar said...

Já, Siggi var bara pirraður eins og getur gerst hjá okkur öllum :) Hann verður líklega ekki með í kvöld þar sem hann á afmæli í dag!

Til hamingju með daginn Siggi!

Anonymous said...

til hamingju með daginn siggi

Anonymous said...

Til hamingju Siggi
kv. Arnar

Anonymous said...

jæja drengir,

Hann Börkur var hress og er með bara eitt einbýlishús til að lána okkur, uppábúinn rúm og allt klárt

Það er með tveimur tveggja manna herbergjum (oli og kellingin klárlega þar, king size rúm)

einu eins manna herbergi(veit ekki hver á að vera þar)

og einu stóru 4-6 manna herbergi

þarna eru 2 klósett og sturta

eldhús

og hann ætlar að leigja okkur þetta á 2500 manninn

hvernig hljómar þetta?

hann ætlaði síðan að gera okkur eitthvað tilboð í kvöldmat þarna hjá sér.

ég held að þetta sé alveg málið, getum bara haldið partý þarna og ekkert hótel vesen, erum bara útaf fyrir okkur

en þið commentið á þetta

kv

Gaui

Anonymous said...

snilld
kv. Arnar

Anonymous said...

Þetta er bara snilldin ein. Er ekki málið að ræða þetta eftir mánudagsæfingu og fá þá staðfest með bíla, húsið og hverjir fara? Svo sé ég fyrir mér að konan hans Óla verði búin að græja egg og beikon þegar við vöknum. Og svo er bara af stað...

kv. Hilmar

Anonymous said...

Fékk þetta sent frá honum í gær:

Sæll



Geri þér tilboð í mat



Pizzzuhlaðborð kr 1100



Skinkupasta með hvítlauksbrauði og salati kr 1500





Grillað lamb með rauðvínssósu og bakaðri kartöflu kr 2350







Verð miðast við að allir borði það sama







Veitingahúsið Salka / Salka Restaurant

Garðarsbraut 6

640 Húsavík

salka@husavik.com

Sími /tel. + 354-464-2551

Fax +354-464-2212

Anonymous said...

líst vel á allt þetta, fylgi meirihlutanum að máli, hvað eigi að éta.
kv. Arnar