Leikurinn á miðvikudag var stórfínn á löngum köflum. Þó áttum við svoldið erfitt með að komast í gang og það var líkt og menn væru taugaveiklaðir. En eins og við vitum manna best, þá á enginn sjéns þegar við erum að spila vel.
Ég ætla ekki að draga nokkrun mann upp né niður þar sem við áttum allir fínann leik.
Það sem hinsvegar vekur athygli er pósturinn sem ég fékk frá HSÍ í dag.
----
Sælir,
Haukar hafa ákveðið að draga lið sitt úr keppni í utandeildinni í ljósi manneklu og falla allir leikir þeirra niður.
Kveðja,
Róbert Gíslason
Starfsmaður HSÍ
----
Við sumsé rotuðum þá ekki bara, heldur dauðrotuðum.
Reyndar er ég strax farinn að sakna þeirra!
Maður leiksins: Diddi
Friday, February 8, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Snilldar leikur síðast :). Bara gleði.
En svona til upplýsingar þá er hér linkur inn á gistihús á Húsavík. Fékk þær upplýsingar að hótelið er lokað yfir vetrartíman (þýðir einni krá minna) en hinir tveir staðirnir eru BauKurinn og Salka. BauKurinn er þó aðalstaðurinn :D.
http://arbol.1.is/IS/index.cfm
Kv.
GRS
Diddi maður leiksins, ég get ekki verið sammála þér hérna
Glæsilegt að slátra Haukunum svona og senda þá úr deildinni í leiðinni.
er æfing í kvöld??? mánudag 11. feb.
kv. Arnar
Auðvitað er æfing. Ég mæti.
kv. Hilmar
þyrftum að ræða Húsavík drengir hverja ætla að fara og slíkt, gisting, keyrsla, matur og fleira, ef við erum bara einhverjir sex sem komumst þá verðum við að gera einhverjar ráðstafanir.
ætlum við á laugardegi eða á föstudegi? Ein nótt eða tvær?
Gaui kemur í kvöld og mætir með leynigest...síðan var ég að fatta það að ég er off á Húsavík...
ég mæti í kvöld!
Er ekki annars leikur núna á miðvikudaginn??
Hemminn mætir í kvöld. Er ekki leikur á Föstudag en ekki miðvikudag ?
Fös. 15.feb.2008 21.15 Kaplakriki FH - Boltafélagið
mæti í kvöld.
Kv. Höddi
Post a Comment