Wednesday, January 30, 2008

Sigur á sprikklandi Laugvetningum og Raggi maður leiksins

Jú kæru vinir, ísinn er brotinn. Við erum aftur komnir á svimandi siglingu eftir ágætan sigur á sprellihressum kennara nemum á Laugarvatni. Leikurinn þróaðist ágætlega og við höfðum alltaf yfirhöndina, mest 15 mörk ef ég man rétt. Við slökuðum hinsvegar óþarflega á undir lokin og loka staðan 30 - 39.

Raggi átti stórleik í markinu og Óli var heitur fyrir utan. Aðrir áttu fínann dag. Það var því miður ekki tekin skýrsla þannig að guð einn man markaskorun.

Annars var þetta skemmtileg ferð, gaman að taka svona road trip. Siggi, Valli og Óli eiga hrós skilið fyrir að fórna sér fyrir málstaðinn og keyra þetta austur fyrir.

Valli fær þó líklega "öryggis verðlaun FH-b" þar sem hann fór held ég aldrei yfir 60 kmh. Raggi óskaði eftir því í Kömbunum að hann "keyrði svo hægt, að hann færi næstum afturábak" sem Valli og gerði af stakri snilld. Skemmtum okkur konunglega yfir frábærum kynningum útvarpsmannsins knáa Hemma Feita á Xinu, stoppuðum og leituðum að Spaða disknum og fundum línur í Kömbunum. Á baka leiðinni ætluðum við svo að kaupa einn lítinn flösku bjór til að deila, en það er ekki í boði í Hveragerði. Kaffi Hveró lokað, Hótel Örk orðin að draugahúsi og restin, hárgreiðslustofur. Þetta er ferðasagan úr Valla bíl í stuttu máli.

17 comments:

Anonymous said...

Hverjir mættu í leikinn? Er ekki svo stefnt á fína mætingu í kvöld? Og svo er leikur á föstudaginn í Mýrinni við HR að mig minnir.
kv. Hilmar

Anonymous said...

ég mæti í kvöld

Anonymous said...

ég er ekki viss um að ég komist í kvöld
kv siggi
ps. ég var lang bestur í þessum leik

Anonymous said...

Siggi, Óli, Hemmi, Raggi, GRS, Valli, Höddi, Addi, Eiki, Pedda og Kálfinn mættu til leiks. Kálfinn fékk kosningu fyrir ljótustu buxurnar og jájá Siggi minn, allt í lagi.

Veit ekki hvort ég kemst í kvöld mun reyna mitt besta.

Kv.
GRS

Anonymous said...

Ég mæti í kvöld.

Eiki

Anonymous said...

Gaui og Gummi A mæta...

Anonymous said...

kemst ekki í kvöld en mæti í leik á föstudag.
kv. Arnar

Hermann Fannar said...

er leikur á föstudag ? getur einhver staðfest það. Ég nefnilega verð staddur í sveitinni.

Og já Siggi, þú vart góður, en Raggi á þetta samt skuldlaust :)

Anonymous said...

Það verður leikur í Mýrinni á föstudaginn klukkan 21:00. Mæting 20:15.

kv. Hilmar

Anonymous said...

ég mæti

Anonymous said...

ég kem
eiki

Anonymous said...

Bara datt í hug að sýna mönnum hversu erfið deild þetta er. Sjáið bara prógrammið hjá Völsungum...


Fös. 1.feb.2008 20.30 Selfoss Selfoss - Völsungur
Lau. 2.feb.2008 14.00 Húsavík Völsungur - Laugarvatn
Lau. 2.feb.2008 15.00 Strandgata Haukar - Völsungur

Þeir verða að teljast góðir ef þeir ná þessu...


Kv.
GRS

Anonymous said...

mæti

daníel

Anonymous said...

Ég mæti

kv. Hilmar

Anonymous said...

Ég stefni á hörkumætingu, og engar helvítis 2 mín að þessu sinni :D (þarf ekki einu sinni að skrifa undir þetta)

Anonymous said...

Gaui er að spá í að koma og koma líka með drenginn sinn aftur bara uppá stuðið....stuðfeðgar mæta sem sagt

kv

Stykk and Stykk jr

Anonymous said...

ætliði á hansen á eftir ?