Leikurinn við Hauka fer fram í Kaplakrika á morgun, föstudag, klukkan 21:15. Mæting 20:30. Óli Heimis ætlar að athuga með dómara og lætur vonandi vita sem fyrst hér fyrir neðan. Geri fastlega ráð fyrir því að það verði vel mætt og menn tilbúnir til að taka á því.
16 comments:
Það er nú eða aldrei. Höfum aldrei unnið haukana í ,,alvöru" leik. Nú er um að gera að rífa sig í gang og negla kvikindin...
Kv.
GRS
I am looking forward to it.
kv. Arnar
Er nokkuð að frétta af dómaramálum??? Við höfum ekki efni á að láta einhverja leikmenn fórna sér í að dæma í kvöld. Vona að Óli láti vita sem fyrst svo menn hafi einhvern fyrirvara ef við þurfum að leita annað. Minni alla á að koma með 500 kall til að borga dómurum.
kv. Hilmar
heyriði drengir,
Ég var að heyra í einum haukamanni áðan og hann sagði að enginn af þeim vissi af þessu...örvar erlendis og enginn að spá í neinu....spurning að heyra aðeins í þeim áður en við förum að fórna föstudagskvöldi í eitthvað no show
kv
Gaui
Ég er bara með númer og mail hjá Örvari. Vitið þið hverjir eru að vasast í þessu aðrir en Örvar??
kv. Hilmar
Sælir.
Vitið þið eitthvað meira um þetta? Ég heyrði í Ragnari og hann verður víst ekki með ef það verður leikur, og það væri sjálfsagt betra fyrir okkur hina að fá það á hreint til þess að geta þá planað kvöldið í eitthvað annað ef ekki verður af leik.
Kv,
Óli Eiríks
Ásgeir var að hringja í mig og segja mér að hann lennti í vinnuslysi (steig á nagla) og komist ekki í kvöld, það er möguleiki að ég nái í einhverja stráka sem eru á æfingu á undan okkur. Vonum það besta.
Fékk það staðfest hjá Örvari að þeir mæta í leikinn. Þá er bara að reyna að redda dómurum. Allir að reyna og ef ekkert gengur þá getum við reynt að plata strákana sem Óli talaði um. Best að reyna að redda sem fyrst. Við erum að tala um c.a. 3 þús fyrir hvorn dómara. Það hlýtur einhvern að vanta pening. Látið vita af stöðu mála hér fyrir neðan.
kv. Hilmar
Er eitthvað að frétta af leiknum í kvöld, hvort haukamenn mæti eða ekki? Eitthvað heyrst frá þeim?
kv.
Eiki
ok. aðeins of seinn að skrifa þetta:D
kv. Eiki
sælir félagar, ég kemst víst í kvöld, lenti í morgun. Vantar enn dómara - litli bróðir var eitthvað búinn að gefa grænt á dómgæslu í kvöld ef okkur vantar.
Hilli þú kannski bjallar bara á mig ef það vanntar enn dómara.
kv,
Beggi
Það vantar enn dómrara þannig að það væri frábært ef Beggi getur reddað. Einnig væri gott ef einhverjir eiga flautur að koma með þær.
kv. Hilmar
Beggi er búinn að redda dómurum.
kv. Hilmar
jibbí, jibbí
Hér með er það skriflegt að Óli tekur ekki fleiri víti :)
og enginn af okkur fer í hraðaupphlaup aftur :)
Post a Comment