Monday, December 17, 2007

Stórsigur og æfing

Já það var heldur betur kátt í "Höllinni" á föstudagskvöld. Þá komu HR í heimsókn og skíttöpuðu á móti b-liði Fimleikafélagsins. Við sumsé sigruðum með 40 mörkum gegn 17 mörkum gestana. Skýrslan væntanleg inn í kvöld. Það má heldur ekki gleyma stórtíðindum vetrarins, en FH-b spilaði í nýjum búningum sem þóttu prýða hvern kropp dásamlega.

En eru menn ekki að stefna á að mæta á æfingu í kvöld?

10 comments:

Anonymous said...

ég mæti
kv siggi

Anonymous said...

og Gaui líka, ekki lögga sko...

Anonymous said...

Kemst ekki í kvöld vegna veikinda en stefni á að mæta miðvikudag sem verður þá væntanlega síðasta æfing fyrir jólafrí.
kv. Hilmar

Beggi said...

crapp-fokker!

Það er nánast útséð með mætingaleysi af minni hálfu í kvöld. Ég er einnig OFF á miðvikudaginn sökum utanlandsferðar. Segi því Gleðileg jól piltar.

kv,
Beggi

Daniel said...

ég kem

kv daniel

Anonymous said...

Ég mæti

Anonymous said...

ég out fram á næsta ár, get varla gengið fyrir verkjum í hnjám, er að bíða eftir tíma hjá lækni. ER ÉG ORÐINN OF GAMALL??????
kv. Arnar

Anonymous said...

Mér fannst þú ekki virka nógu gamall í síðasta leik. :)
kv. Hilmar

Anonymous said...

Æfing í kvöld??? Hvernig var mæting á mánudaginn?? Hvar er leikskýrslan?
kv. Hilmar Höfundur Spurninga

Hermann Fannar said...

Æfingin á mánudag var klárlega með þeim betri á þessu "hausti". Orri Þórða var með, dýrvitlaus að vanda og Elvar Erlings mætti hel sprækur.

Skýrslan og umfjöllun er á leiðini. Óli hvar eru myndirnar?